Skora á íslensk stjórnvöld að beita sér gegn framsali Assange

Félag frétta­manna RÚV for­dæmir hand­töku Assange og skora á íslensk stjórn­völd að beita sér gegn fram­sali hans.

Félag frétta­manna RÚV for­dæmir hand­töku Julians Assange harð­lega og mót­mælir ákvörðun inn­an­rík­is­ráð­herra Bret­lands um að sam­þykkja beiðni banda­rískra stjórn­valda um fram­sal hans. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu félags­ins.

Félagið telur enn fremur að fram­ganga Banda­ríkj­anna í máli Assange sé ógn við frelsi fjöl­miðla, en Banda­ríkin hafa ákært Assange fyrir land­ráð.

[adspot]Ákær­urnar varða meintar ólög­mætar til­raunir Assange til að verða sér úti um og birta gögn er varða þjóðar­ör­yggi og með því brjóta lög um njósn­a­starf­semi, að því er kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu. Félagið segir að upp­lýs­ing­arnar sem Assange, Chelsea Manning og Wikileaks hafi upp­ljóstrað hafi átt mikið erindi við almenn­ing.

Vegið að heimildavernd fjölmiðla

„Hætt er við því að mann­rétt­indi Assange verði þar fyrir borð borin þar sem stjórn­völd ganga fram af mik­illi og ómak­legri hörku í máli hans. Með ákæru banda­rískra stjórn­valda gegn Assange og hugs­an­legu fram­sali Breta á honum til Banda­ríkj­anna er einnig vegið gróf­lega að heim­ilda­vernd fjöl­miðla. Vernd sem hefur verið kveðið skýrt á um í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu að sé meðal grunn­skil­yrða fyrir tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Félagið telur að án slíkrar verndar gætu ýmsir heim­ild­ar­menn forð­ast það að veita fjöl­miðlum upp­lýs­ingar í málum er varða hags­muni almenn­ings. Þar af leiðir gæti verið grafið undan eft­ir­lits­hlut­verki fjöl­miðla sem dragi úr mögu­leikum þeirra til að miðla áreið­an­legum og nákvæmum upp­lýs­ingum.

„Lýðræði þrífst ekki án sjálf­stæðra fjöl­miðla. Sjálf­stæðir fjöl­miðlar þríf­ast vart ef stjórn­völd ofsækja upp­ljóstr­ara sem koma upp­lýs­ingum á fram­færi,“ segir enn fremur í til­kynn­ing­unni.

Skora á íslensk stjórnvöld

Félag frétta­manna skorar á íslensk stjórn­völd að beita sér fyrir því að Assange verði ekki fram­seldur til Banda­ríkj­anna og vísa til þings­á­lykt­unar sem sam­þykkt var á Alþingi um að Ísland ætti að skapa sér sér­stöðu varð­andi vernd tján­ingar- og upp­lýs­inga­frelsis.

„Lengi var lítið um efndir en nú hafa verið stigin skref í átt að því að standa við álykt­un­ina þótt að lengra megi og verði að ganga. Félagið skorar á stjórn­völd að starfa í anda þings­á­lykt­un­ar­innar frá 16. júní 2010, innan lands jafnt sem utan, og beita sér fyrir tján­ing­ar­frelsi og upp­lýs­inga­frelsi,“ segir í til­kynn­ing­unni að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Assange

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár