Opnað á framsal Assange til Bandaríkjanna

Áfrýj­un­ar­dóm­stóll í Bret­landi sneri í dag fyrri ákvörðun dóm­stóls þar í landi í máli Julians Assange. Því hefur verið opnað á að stofn­andi Wikileaks verði fram­seldur til Banda­ríkj­anna.

Julian Assange gæti orðið framseldur til Bandaríkjanna í kjölfar niðurstöðu dagsins.
Julian Assange gæti orðið fram­seldur til Banda­ríkj­anna í kjöl­far nið­ur­stöðu dags­ins. Mynd: EPA

Breskum yfir­völdum er heim­ilt að fram­selja Julian Assange stofn­anda Wikileaks til Banda­ríkj­anna, sam­kvæmt nið­ur­stöðu áfrýj­un­ar­dóm­stóls í Bret­landi í dag. Með þessum dómi er fyrri nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms, frá 4. jan­úar á þessu ári, um að ekki mætti fram­selja Assange til Banda­ríkj­anna, snúið við.

Banda­ríkja­stjórn fékk í sumar leyfi til að áfrýja nið­ur­stöð­unni, en upp­haf­leg nið­ur­staða hér­aðs­dóm­ara var sú að synja bæri fram­sals­beiðni Banda­ríkj­anna vegna and­legrar heilsu Assange, sem glímdi við sjálfs­vígs­hugs­anir.

Samfara áfrýjun Banda­ríkja­stjórnar, sem vill hneppa Assange í allt að 175 ára fang­elsi á grund­velli 18 ákæru­liða fyrir að ljóstra upp um stríðs­glæpi með því að birta trún­að­ar­gögn banda­ríska hers­ins á Wikileaks, voru lögð fram lof­orð um hugað yrði að vel­ferð Assange.

[adspot]

Á meðal þess sem lög­fræð­ingar Banda­ríkja­stjórnar lof­uðu, og varð til þess að nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms var snúið, var það að Assange yrði ekki lát­inn sæta ein­angr­un­ar­vist fyrir eða eftir rétt­ar­höld í Banda­ríkj­unum né að hann yrði vistaður í háör­ygg­is­fang­elsi.

Lög­fræð­ingar Banda­ríkja­stjórnar hafa einnig lofað því að Assange verði veitt heim­ild til þess að afplána fang­els­is­dóm, ef ein­hver verður, í Ástralíu, sem er heima­land hans. Þeir hafa talað um að lík­leg nið­ur­staða í máli Assange yrði 4-6 ára fang­els­is­dómur, þrátt fyrir að ákæra á hendur honum feli í sér mögu­leik­ann á allt að 175 ára dómi ef refsiramm­inn yrði nýttur til fulls.

Ekki er ljóst á þess­ari stundu hvort mögu­legt verður fyrir Assange og lög­menn á hans vegum að áfrýja nið­ur­stöð­unni, eða hvort hún standi sem end­an­leg, sam­kvæmt frétt BBC.

„Þessum slag lýkur ekki hér“

Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks tjáði sig um nið­ur­stöð­una á Twitter skömmu eftir að hún lá fyrir. Sagði hann að þessum slag myndi ekki ljúka hér. Hann minnt­ist einnig á það að í dag, 10. des­em­ber, er mann­rétt­inda­dagur Sam­ein­uðu þjóð­anna og að breski dóm­stóll­inn hefði með ákvörðun sinni í dag bæði varpað skugga yfir rann­sókn­ar­blaða­mennsku og tekið ákvörðun um að halda áfram „pynt­ingum“ í garð Assange.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Assange

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár