Formaður Blaðamannafélags Íslands fordæmir ákvörðun ráðherra

Mögulegt fram­sal Julian Assange hefur vakið hörð við­brögð í dag. Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands auk Félags frétta­manna RÚV hafa for­dæmt mögu­legt fram­sal Assange til Banda­ríkj­anna.

Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands hefur for­dæmt ÞÁ ákvörðun inn­an­rík­is­ráð­herra Bret­lands að sam­þykkja fram­sals­beiðni banda­rískra yfir­valda um Julian Assange, stofn­anda Wikileaks. Þetta kemur fram í umfjöllun RÚV.

Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, sagði í sam­tali við RÚV að óvið­un­andi væri að Assange yrði fram­seldur til Banda­ríkj­anna eins og hver annar glæpa­maður og að hann hefði komið mik­il­vægum upp­lýs­ingum á fram­færi við almenn­ing.

Fyrr í dag for­dæmdi Félag frétta­manna RÚV hand­töku Assange og skor­aði á íslensk stjórn­völd að beita sér gegn fram­sali hans. Sagði í til­kynn­ingu félags­ins: „Lýð­ræði þrífst ekki án sjálf­stæðra fjöl­miðla. Sjálf­stæðir fjöl­miðlar þríf­ast vart ef ­stjórn­völd ofsækja upp­ljóstr­ara sem koma upp­lýs­ingum á fram­færi,“ segir enn fremur í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Assange

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár