Assange verður ekki sleppt úr fangelsi

Dómari í London komst að þeirri nið­ur­stöðu í dag að Julian Assange skyldi ekki sleppt úr fang­elsi gegn trygg­ingu. Sami dóm­ari hafn­aði fram­sals­kröfu Banda­ríkj­anna á hendur Assange á mánu­dag, en banda­rísk yfir­völd ætla að áfrýja þeirri nið­ur­stöðu.

Julian Assange verður ekki sleppt úr fangelsi gegn tryggingu, á meðan að áfrýjun Bandaríkjanna verður tekin fyrir.
Julian Assange verður ekki sleppt úr fang­elsi gegn trygg­ingu, á meðan að áfrýjun Banda­ríkj­anna verður tekin fyrir. Mynd: EPA

Julian Assange stofn­andi Wikileaks sér nú fram á að dúsa marga mán­uði til við­bótar í örygg­is­fang­elsi í Bret­landi, en dóm­ari við dóm­stól í Lundúnum hafn­aði í dag beiðni hans um að fá að ganga laus gegn trygg­ingu.

Sami dóm­ari, Vanessa Baraitser, komst á mánu­dag að þeirri nið­ur­stöðu að Assange skyldi ekki fram­seldur til Banda­ríkj­anna vegna við­kvæmrar and­legrar heilsu sinnar, en banda­rísk yfir­völd ætla að áfrýja þeirri nið­ur­stöðu.[links]

Lögmenn Assange reyndu í dag að færa rök fyrir því að hann ætti að fá að ganga laus gegn trygg­ingu á meðan áfrýjun Banda­ríkj­anna er tekin fyrir, en dóm­ar­inn féllst ekki á beiðni þeirra.

Samkvæmt frá­sögnum úr dóm­sal sagð­ist dóm­ar­inn – eftir að hafa hlýtt á rök­semdir lög­manna Assange og bresku lög­mann­anna sem reka málið fyrir hönd Banda­ríkj­anna – telja nægi­lega ástæðu til að ætla að Assange myndi ekki mæta á stað­inn þegar áfrýj­unin verður tekin fyrir.

Assange verður því fluttur aftur í Belmarsh-örygg­is­fang­elsið í Lundúnum, en þar hefur þessum tæp­lega fimm­tuga Ástrala hefur verið haldið í nærri tvö ár, eftir að hann var hand­tek­inn í sendi­ráði Ekvador í London vorið 2019.

[adspot]

Mál Banda­ríkj­anna gegn Assange teng­ist birt­ingu Wiki­leaks á 470.000 trún­að­ar­skjölum frá banda­ríska hernum um utan­rík­is­þjón­ustu og stríðin í Afganistan og Írak. ­Síðar birti Wiki­leaks 250.000 skjöl til við­bót­ar.

Banda­rísk stjórn­völd hafa haldið því fram að um lög­brot og njósnir sé að ræða en Assange, Wiki­leaks og fjöl­margir aðrir hafa sagt að upp­lýs­ing­arnar sem Wiki­leaks birti og urðu frétta­efni víða um heim, hafi átt ríkt erindi við almenn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Assange

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár