Assange ekki framseldur til Bandaríkjanna

Dómari í Bret­landi hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Julian Assange stofn­andi Wikileaks skuli ekki fram­seldur til Banda­ríkj­anna, vegna heilsu­fars­á­stæðna. Búast má við því að banda­rísk yfir­völd áfrýji þess­ari nið­ur­stöðu.

Julian Assange, stofnandi Wikileaks. Dómari hefur komist að þeirri niðurstöðu að hann skuli ekki sæta framsali til Bandaríkjanna.
Julian Assange, stofn­andi Wikileaks. Dómari hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hann skuli ekki sæta fram­sali til Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Dómari í fram­sals­máli Julian Assange í Bret­landi hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Assange skuli ekki fram­seldur frá Bret­landi til Banda­ríkj­anna, þar sem hann sætir ákæru fyrir njósnir. Frá þessu greina breskir og banda­rískir fjöl­miðlar í dag.

Í frétt BBC um nið­ur­stöð­una kemur fram að dóm­ar­inn hafi synjað fram­sals­beiðni Banda­ríkj­anna vegna and­legrar heilsu Assange, sem glími við sjálf­vígs­hugs­anir. Áhyggjur séu uppi um um að hann kunni að valda sjálfum sér skaða í haldi banda­rískra yfir­valda.

Banda­rísk yfir­völd hafa þegar gefið út að nið­ur­stöðu dóm­ar­ans verði áfrýjað. Samkvæmt umfjöllun New York Times hafa þau 15 daga til að áfrýja nið­ur­stöð­unni.

Málið gegn Assange teng­ist birt­ingu Wikileaks á 470.000 trún­að­ar­skjölum frá banda­ríska hernum um utan­rík­is­þjón­ustu og stríðin í Afganistan og Írak. Síðar birti Wikileaks 250.000 skjöl til við­bótar.

Banda­rísk stjórn­völd hafa haldið því fram að um lög­brot og njósnir sé að ræða en Assange, Wikileaks og fjöl­margir aðrir hafa sagt að upp­lýs­ing­arnar sem Wikileaks birti og urðu frétta­efni víða um heim, hafi átt ríkt erindi við almenn­ing.

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, hefur fylgst náið með rétt­ar­höld­unum yfir Assange.

„Það á að slátra manni fyrir að upp­lýsa um grimmd­ar­verk og glæpi. Fyrir að opin­bera sann­leik­ann,“ rit­aði Kristinn um rétt­ar­höldin í októ­ber á síð­asta ári, eftir að hafa varið mán­uði í London að fylgj­ast með fram­gangi þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár