Ekki endilega sigur fyrir blaðamennskuna

Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks segir að nið­ur­staða dóm­ara í fram­sals­máli Julian Assange sé ekki endi­lega sigur fyrir blaða­mennsku, þar sem áhyggjur af and­legri heilsu Assange voru einu rök dóm­ar­ans fyrir því að hafna fram­sals­beiðni Banda­ríkj­anna.

Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks í London í dag.
Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks í London í dag. Mynd: EPA

Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks ávarp­aði fjöl­miðla og stuðn­ings­menn Julians Assange fyrir utan Old Bailey-dóm­stól­inn í London í dag, eftir að nið­ur­staða dóm­ara í fram­sals­máli Assange lá ljós fyrir. Hann sagði nið­ur­stöð­una sigur fyrir Assange, en þó ekki endi­lega sigur fyrir blaða­mennsku.

Nið­ur­staða dóm­ar­ans, Vanessu Baraitser, var á þá leið að and­leg heilsa hans væri of brot­hætt til að öruggt væri að hann myndi ekki valda sjálfum sér skaða í banda­rísku fang­elsi, þar sem hann myndi lík­lega sæta strang­ari ein­angrun en í Belmarsh-fang­els­inu í London, en þar hefur Assange verið haldið í tæp­lega tvö ár.[links]

Að mati dóm­ar­ans eru þau meintu brot sem Banda­ríkin hafa ákært Assange fyrir og tengj­ast öflun og birt­ingu á trún­að­ar­gögnum frá banda­ríska hernum um m.a. stríðin í Afganistan og Írak, ekki varin af tján­ing­ar­frelsi hans.

Einnig blés dóm­ar­inn á rök­semdir lög­fræð­inga Assange um að það að senda hann til Banda­ríkj­anna myndi brjóta gegn lögum sem banna fram­sal manna sem eru sak­sóttir fyrir „póli­tíska glæpi“.

[adspot]

Dómarinn taldi heldur ekki ástæðu til að ætla að rétt­ar­höld yfir Assange á banda­rískri grundu yrðu ósann­gjörn.

Baráttunni ekki lokið fyrr en Assange gengur frjáls

Kristinn sagði í ávarpi sínu að það væri áhyggju­efni að lög­fræð­ingar banda­rískra yfir­valda hefðu þegar gefið í skyn að nið­ur­stöð­unni yrði áfrýjað og hvatti hann banda­rísk stjórn­völd til þess að láta málið gegn Assange niður falla.

Hann sagði að slag­ur­inn væri ekki búinn þrátt fyrir þennan áfanga­sigur og yrði ekki búinn fyrr en Assange gæti snúið heim til fjöl­skyldu sinnar. Eftir að nið­ur­staðan lá ljós fyrir í morgun var Assange fluttur aftur í Belmarsh-fang­elsið.

Á mið­viku­dag verður beiðni Assange um að fá að ganga laus gegn trygg­ingu tekin fyrir. Kristinn segir í sam­tali við Kjarnann að hann búist við því að ákvörðun dóm­ara um mögu­lega lausn Assange úr haldi gæti legið fyrir sam­dæg­urs.

Mann­rétt­inda­sam­tökin Amnesty International lýstu þvi yfir á Twitter að þau fagni nið­ur­stöðu dags­ins, en um leið ávíta þau bresk stjórn­völd fyrir sinn þátt í því að málið gegn Assange, sem þau segja af póli­tískum meiði, hefur náð að kom­ast á þennan stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár