Mál Julians Assange vindur enn upp á sig – „Réttarfarslegur skandall og farsakenndur“

Banda­ríkja­stjórn hefur fengið leyfi til að áfrýja því að Julian Assange skuli ekki fram­seldur frá Bret­landi til Banda­ríkj­anna, þar sem hann sætir ákæru fyrir njósnir. Rit­stjóri Wikileaks hvetur íslensk stjórn­völd til að beita sér í mál­inu.

Stella Moris, unnusta Julians Assange, ásamt tveimur sonum þeirra, Max og Gabriel á fimmtugsafmæli hans um helgina.
Stella Moris, unnusta Julians Assange, ásamt tveimur sonum þeirra, Max og Gabriel á fimm­tugs­af­mæli hans um helg­ina. Mynd: EPA

Hæsti­réttur í London hefur veitt Banda­ríkja­stjórn leyfi til að áfrýja að hluta til þeim dómi sem féll þann 4. jan­úar síð­ast­lið­inn að Julian Assange stofn­andi Wikileaks skuli ekki fram­seldur til Banda­ríkj­anna vegna heilsu­fars­á­stæðna. Assange hefur nú dúsað í örygg­is­fang­elsi í Bret­landi í yfir tvö ár.

Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks segir í sam­tali við Kjarnann að þessi nið­ur­staða komi ekki á óvart en að auð­vitað hafi málið áhrif á Assange.

„Það þarf nú ein­hvern ofur­mann­legan styrk til þess að það geri það ekki. Við þekkjum nú þá sögu hvernig það er að sitja í gæslu­varð­haldi mán­uðum saman, hvað þá í þessu til­felli í rúm­lega tvö ár eins og hann hefur þurft að þola núna. Þetta er nátt­úru­lega algjör­lega óaf­sak­an­legt í rétt­ar­ríki. Honum var varpað í mesta örygg­is­fang­elsi Bret­lands með hryðju­verka­mönnum, morð­ingjum og ofbeld­is­fullum glæpa­mönnum. Og hann er lát­inn dúsa þar í allan þennan tíma á meðan kerfið er að dunda sér við að tefja fram­vindu máls­ins árum saman.“

Efuðust um sérfræðiálit

Kristinn segir að dóm­ur­inn í jan­úar hafi fyrst og fremst snúið að heilsu­fari Assange og þeirri áhættu sem fram­salið myndi skapa honum. „Og eins hitt að þeir höfðu efa­semdir um það að banda­ríska fang­els­is­kerfið myndi taka þannig við honum að heilsu hans væri ekki hætta búin. Það liggur fyrir að hann þarf að sæta ein­angr­un­ar­vist á meðan hann bíður rétt­ar­halda í Banda­ríkj­unum og ef hann er dæmdur, sem allar líkur eru á, þá mun hann þurfa að dúsa í örygg­is­fang­elsi í ákveðið langan tíma um ævina.“

[links]Hann bendir á að Banda­ríkja­menn hafi efast um lækn­is­fræði­legt mat á heilsu­fari Assange og gengið býsna nærri því að höggva að trú­verð­ug­leika þeirra sem mátu hann á sínum tíma. „Hitt er að þeir telja sig geta farið mildum höndum og mjúk­lega í fang­els­is­kerf­inu sínu og að honum sé engin hætta búin ef hann kemur til Banda­ríkj­anna og er dæmdur.“

Taka skal fram að í leyf­inu til áfrýj­unar var ekki fall­ist á að Banda­ríkja­stjórn gæti áfrýjað á þeim grund­velli að ekki væri mark tak­andi á álitum sér­fræð­inga varð­andi heilsu­far Assange.

Réttarfarslegur skandall

„Það er nátt­úru­lega mjög sorg­legt að enn skuli vera haldið áfram þessu skelfi­lega máli, sem er rétt­ar­fars­legur skandall – og far­sa­kenndur sem slíkur,“ segir Kristinn. Málið sé dregið áfram svo mán­uðum skiptir og ekk­ert sé hugað að því að mað­ur­inn sitji í varð­haldi á meðan sem frjáls maður. „Þetta er fáheyrt í bresku rétt­ar­kerfi.“

Hann segir að það muni ráð­ast á næstu dögum hvenær málið verði flutt í rétt­ar­sal. „En miðað við gang mála þá verður það vænt­an­lega eftir ein­hverja mán­uði.“

Hvetur íslensk stjórnvöld til að beita sér

Kristinn skor­aði á íslenska þing­menn um liðna helgi að láta í sér heyra varð­andi þetta mál en þing­menn víðs­vegar að úr heim­inum hafa látið sig málið varða og mót­mælt fang­elsun Assange.

„Mér þætti mjög verð­mætt að fá þetta inn í umræð­una, ekki síst þegar búið er að varpa ljósi á að þáttur Íslands kemur inn í þessa maka­lausu sögu,“ segir Kristinn og vísar í umfjöllun Stund­ar­innar þar sem fram kemur að boð FBI til að hjálpa íslenskur stjórn­völdum árið 2011 að stöðva hóp tölvu­hakk­ara hafi verið blekk­ing til þess að fram­kalla aðstöðu á Íslandi til að koma böndum á upp­ljóstr­ar­a­sam­tökin Wikileaks og stofn­and­ann Julian Assange.

Hann hvetur enn fremur íslensk stjórn­völd til að beita sér í þessu máli. „Það væri ánægju­legt ef stjórn­völd tækju þetta upp og gerðu eilítið hreint fyrir sínum dyrum – því ekki er búið að gera upp það mál hvernig íslensk stjórn­völd voru þvæld inn í þennan blekk­ing­ar­leik sem búinn var til. Það hefur nú verið opin­berað að fullu og teygir sig allt frá árinu 2011 fram til 2019.“ Honum finnst alvar­legt að íslensk stjórn­völd hafi látið hafa sig út í málið með þessum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár