Skorar á íslenska þingmenn að mótmæla fangelsun Assange líkt og breskir þingmenn

Julian Assange varð fimm­tugur í dag en í tvö ár hefur hann setið í einu mesta örygg­is­fang­elsi Bret­lands. Rit­stjóri Wikileaks skorar á íslenska þing­menn að láta í sér heyra.

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks.
Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks. Mynd: EPA

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, skorar á íslenska þing­menn að láta í sér heyra varð­andi mál Julian Assange sem dúsar enn í fang­elsi í London. Ekki er búið að um það ákvörðun í áfrýj­un­ar­rétti í London hvort Banda­ríkja­mönnum verður leyft að áfrýja dómi um að hann verði ekki fram­seldur til Banda­ríkj­anna. Á meðan situr hann í mesta örygg­is­fang­elsi Bret­lands.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Kristins á Facebook-síðu hans í gær.

Hann bendir á í færsl­unni að Jeremy Corbyn, fyrrum leið­togi Breska verka­manna­flokks­ins, hafi síð­ast­lið­inn þriðju­dag ásamt tveimur öðrum breskum þing­mönnum farið að Belmarsh fang­els­inu til að afhenta mót­mæla­bréf frá þverpóli­tískum hópi 20 þing­manna þar sem þess var kraf­ist að þeir fái fund með fang­anum Julian Assange. „Það hefur verið hindrað,“ skrifar Kristinn.

Þá bendir rit­stjór­inn enn fremur á að sama dag hafi 11 þing­menn Ástralíu úr öllum flokkum sent vid­eo­á­kall til Joe Bidens Banda­ríkja­for­seta um að fella málið gegn Assange niður.

„Deutsche Welle segir fréttir af því í dag að þing­menn allra þýskra flokka (að und­an­skyldum öfga­flokknum AfD) hafi sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem vitnað er í fréttir Stund­ar­innar og sagt að hún sýni að ásak­anir á hendur Julian séu til­bún­ingur. Skorað er á Biden að stöðva þessar ofsóknir og á Merkel að beita sér fyrir því,“ skrifar Kristinn.

Corbyn tísti í dag, á afmæl­is­degi Assange, og sagði að Bretland og Banda­ríkin væru ákveðin í að kveða niður óhentug sann­indi – það sýndi fang­elsun Assange.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár