Biden staðfestur sigurvegari hjá öllum stærstu fjölmiðlunum

Eftir mikla bið hafa allir stærstu miðl­arnir „kallað“ Penn­syl­vaníu og stað­fest þar með sigur Joe Biden í for­seta­kosn­ing­unum.

Joe Biden verður 46. forseti Bandaríkjanna þegar hann tekur við embætti.
Joe Biden verður 46. for­seti Banda­ríkj­anna þegar hann tekur við emb­ætti. Mynd: EPA

Á fimmta tím­anum stað­festu allir stærstu miðl­arnir vest­an­hafs að Joe Biden hefði sigrað nýaf­staðnar for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum. Joe Biden verður því 46. for­seti Banda­ríkj­anna þegar hann tekur við emb­ætti í jan­úar. Þetta þýðir að Kamala Harris verður fyrsta konan til að gegna emb­ætti vara­for­seta Banda­ríkj­anna.

Kosn­ingar fóru fram í Banda­ríkj­unum á þriðju­dag og hafa margir beðið í ofvæni eftir úrslitum kosn­ing­anna. Decision Desk HQ reið á vaðið í gær og lýsti yfir sigri Bidens.

Nú hafa allir stærstu frétta­miðl­arnir gert slíkt hið sama með því að lýsa yfir sigri Bidens í Penn­syl­vaníu og þar með í kosn­ing­unum. Ríkið færði Biden 20 kjör­menn sem kom honum upp í 273 kjör­menn alls en 270 kjör­menn þarf til að sigra kosn­ing­arnar.

Ekki eru öll kurl komin til grafar

Talning stendur enn yfir í mörgum ríkjum og ekki er búið að kalla öll ríki Banda­ríkj­anna. Úrslit í þeim ríkjum sem enn á eftir að kalla ættu þó ekki að breyta nið­ur­stöðum kosn­ing­anna – Biden hefur kom­ist yfir 270 kjör­manna múr­inn.

Stóra spurn­ingin er hversu auð­veld­lega valda­um­skiptin munu ganga. Skömmu eftir að stóru miðl­arnir fóru hverjir á eftir öðrum að stað­festa sigur Bidens hófst blaða­manna­fundur sem hald­inn var af fram­boðsteymi Trumps. Þar til­kynnti Rudy Giuliani, lög­maður Trumps að til stæði að kæra úrslit kosn­inga í mörgum af þeim ríkjum sem skipta mestu máli í kosn­ing­unum, til dæmis í Penn­syl­vaníu.

Kamala fyrsti kvenkyns varaforsetinn

Með kjöri Bidens hefur verið brotið blað í stjórn­mála­sögu Banda­ríkj­anna því Kamala Harris verður þar með fyrsta konan til að gegna emb­ætti vara­for­seta. Það hefur ein­ungis tvisvar gerst áður að vara­for­seta­efni hjá öðrum af stóru flokk­unum tveimur hafi verið kven­kyns. Árið 1984 var Ger­aldine Ferraro vara­for­seta­efni demókrata og árið 2008 var Sarah Palin vara­for­seta­efni Repúblik­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

biden

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár