Biden: „Það verður enginn friður án samheldni“

Joe Biden var svar­inn í emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna fyrr í dag. Í inn­setn­ing­ar­ræðu sinni kall­aði hann eftir auk­inni sam­heldni meðal Banda­ríkja­manna svo að hægt yrði að takast á við þau erf­iðu verk­efni sem biðu þjóð­ar­innar.

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sór embættiseið fyrr í dag.
Joe Biden, for­seti Banda­ríkj­anna, sór emb­ætt­is­eið fyrr í dag. Mynd: EPA

Sam­heldni var ofar­lega í huga Joe Biden, for­seta Banda­ríkj­anna í inn­setn­ing­ar­ræðu sinni í dag. Hann sagði þjóð­ina eiga erfitt verk fyrir höndum sér sem krefð­ist þess að Banda­ríkja­menn hlust­uðu aftur á hvern annan og ynnu saman.

Inn­setn­ing­ar­at­höfnin fór fram í Washington um hádegi að stað­ar­tíma í dag, eða fimm­leytið á íslenskum tíma. Þar sór Biden emb­ætt­is­eið, ásamt Kamala Harris, vara­for­seta Banda­ríkj­anna.

Fáir áhorf­endur voru við­staddir athöfn­ina, en gesta­fjöldi var tak­mark­aður sökum sótt­varn­ar­ráð­staf­ana. Þó var mæt­ingin góð meðal fyrrum og núver­andi ráða­manna í banda­rískum stjórn­málum, en fyrrum for­setar og vara­for­setar síð­ustu ára­tuga, að Donald Trump und­an­skildum, voru þar.

Í ræðu sinni sagði Biden að banda­ríska þjóðin hafi lært hversu verð­mætt og brot­hætt lýð­ræðið sé, en ein­ungis tvær vikur eru síðan æstur múgur réðst inn í þing­hús Banda­ríkj­anna til að reyna að koma í veg fyrir að öld­unga­deild Banda­ríkja­þings stað­festi for­seta­kjör hans. „Í dag hefur lýð­ræðið sigrað,“ bætti Biden þó við.

For­set­inn lagði áherslu á sættir innan banda­rísks þjóð­fé­lags og sagði þjóð­ina eiga erfitt verk fyrir höndum sér. Þeirra á meðal væri heims­far­ald­ur­inn, sem hefði orðið fleiri Banda­ríkja­mönnum að bana en seinni heims­styrj­öldin, auk fjögur hund­ruð ára gam­als ákalls um jafn­ræði milli kyn­þátta, sem muni ekki vera frestað lengur. Einnig minnt­ist Biden á hvíta kyn­þátta­hyggju í ræðu sinni sem og hryðju­verkaógn inn­an­lands sem þjóðin þyrfti að horfast í augu við og sigr­ast á. Sjá má ræð­una í fullri lengd hér að neðan.

Biden bætti þó við að þessar áskor­anir krefð­ust ein­ingar og sam­heldni, sem væri vand­fundin í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. „Því það verður eng­inn friður án sam­heldni. Aðeins heift og bit­urð.“ Í því sam­hengi bað hann um nýtt upp­haf og að Banda­ríkja­menn ættu að byrja að hlusta á hvern annan aftur, þótt þeir væru ekki sam­mála, „því ósætti ætti ekki að leiða til sundr­ungar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

biden

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár