ESB þrýstir á Biden til að setja tæknifyrirtækjunum þröngar skorður

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins fagn­aði í gær inn­setn­ingu Joe Biden í emb­ætti Banda­ríkja­for­seta, en hvatti til auk­ins sam­starfs milli ríkj­anna við að tak­marka vald stóru tækni­fyr­ir­tækj­anna.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB.
Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB. Mynd: EPA

Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB), sagði inn­setn­ingu Joe Biden í emb­ætti Banda­ríkja­for­seta marka „nýja dögun“ þar í landi, og bætti við að Evrópa ætti sér loks­ins vin í Hvíta hús­inu eftir fjögur löng ár. Hún sagði mik­il­vægt að ESB og Banda­ríkin vinni saman í að koma í veg fyrir hat­urs­orð­ræðu og fals­fréttir með fjöl­þjóð­legum reglu­gerðum fyrir tækni­fyr­ir­tækin.

Þetta kemur fram í frétt á vef Reuters sem birt­ist í gær. Samkvæmt frétt­inni hefur fram­kvæmda­stjórnin útbúið nýja sam­vinnu­á­ætlun við Banda­ríkin, en í henni er von­ast til frekara sam­starfs við Banda­ríkin í lofts­lags­málum, heil­brigð­is­málum, staf­rænni þróun og lýð­ræð­is­málum.

Í ávarpi sínu til fram­kvæmda­stjórn­ar­innar í gær sagði von der Leyen að hún fyndi fyrir miklum létti nú, þar sem ein­angr­un­ar­stefna Donald Trump væri á enda. Þó var­aði hún við að slíkur léttir ætti ekki að blinda fólki sýn, þar sem stuðn­ings­menn Trump væru enn til staðar og nauð­syn­legt væri að takast á við eggjun þeirra til ofbeldis.

Að mati von der Leyen væri hægt að tak­marka orð­ræð­una sem leiddi til inn­rás­ar­innar í banda­ríska þing­húsið fyrir tveimur vikum síðan með laga­setn­ingu gegn hat­urs­orð­ræðu og dreif­ingu fals­frétta. „Slíkt póli­tískt vald, sem er núna algjör­lega í höndum netrisanna, þarf að tak­marka,“ hefur Reuters eftir von der Leyen.

Fram­kvæmda­stjór­inn lagði til að sér­stakt tækni­ráð yrði sett upp með full­trúum frá bæði Banda­ríkj­unum og ESB. Hlutverk slíks ráðs væri að leggja drög að alþjóð­legri reglu­gerð fyrir tækni­fyr­ir­tæki sem lönd um allan heim gætu fylgt. Samkvæmt Evr­ópu­sam­band­inu þyrfti skýrar reglur um upp­bygg­ingu gervi­greindar og flók­inna algríma sem byggð væru á mik­illi gagna­söfnun, án þess að þær kæmu niður á kost­ina sem slík tækni getur boðið upp á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

biden

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár