Kosið um björgunarpakka Bidens í vikunni

Síðasta atkvæða­greiðslan um nýjan björg­un­ar­pakka vegna kór­ónu­veirunnar fer fram í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings í síð­asta lagi á morgun. Umfang efna­hags­að­gerð­anna nemur um 1,9 billjón Banda­ríkja­dala.

Joe Biden og Kamala Harris ræddu við blaðamenn eftir að öldungadeildin samþykkti björgunarpakka forsetans. Málið fer nú aftur til fulltrúadeildarinnar til lokastaðfestingar.
Joe Biden og Kamala Harris ræddu við blaða­menn eftir að öld­unga­deildin sam­þykkti björg­un­ar­pakka for­set­ans. Málið fer nú aftur til full­trúa­deild­ar­innar til loka­stað­fest­ingar. Mynd: EPA

Upp­haf­lega stóð til að full­trúa­deild Banda­ríkja­þings myndi kjósa um björg­un­ar­pakka Joe Bidens vegna kór­ónu­veirunnar í dag en nú er útlit fyrir að þingið taki málið til afgreiðslu á morgun. Björg­un­ar­pakk­inn var naum­lega sam­þykktur af öld­unga­deild Banda­ríkja­þings um helg­ina en full­trúa­deildin þarf að sam­þykkja pakk­ann áður en hann kemst á borð Bidens til und­ir­rit­unar og lög­fest­ingar. Búist er við því að sam­þykki fáist í full­trúa­deild­inni, sam­kvæmt umfjöllun New York Times.

Kosning helg­ar­innar í öld­unga­deild­inni fylgdi flokkslínum, 50 greiddu atkvæði með pakk­anum. Allir öld­unga­deild­ar­þing­menn Repúblik­ana, utan eins sem var fjar­ver­andi, greiddu atkvæði gegn efna­hags­að­gerð­unum.

Aðgerð­irnar eru gríð­ar­legar að vexti, umfang þeirra nemur um 1,9 billjón Banda­ríkja­dala. Það sam­svarar um 245 billjónum íslenskra króna. Til sam­an­burðar nam verg lands­fram­leiðsla hér á landi á síð­asta ári rétt innan við þrjú þús­und millj­arðar króna sam­kvæmt bráða­birgða­tölum Hag­stof­unnar eða rétt um 1,2 pró­sentum af umfangi björg­un­ar­pakka Bidens. [adspot]

180 þúsund krónur á mann

Allir ein­stak­lingar sem þéna innan við 75 þús­und Banda­ríkja­dali í heild­ar­tekjur á ári, um 9,7 millj­ónir króna, eiga rétt á 1.400 dala ávísun, sem sam­svarar rétt um 180 þús­und krónum. Ein­stæðir for­eldrar fá styrk­inn óskertan ef árs­tekjur þeirra eru innan við 112.500 Banda­ríkja­dalir, um 14,5 millj­ónir króna. Hjón með innan við 150 þús­und dali í árs­tekjur, eða um 19,4 millj­ónir króna, eiga rétt á tveimur slíkum ávís­unum, eina á mann. Þá munu þeir for­eldrar sem eiga rétt á greiðslu fá sam­bæri­lega ávísun fyrir hvert barn á heim­il­inu.

Tekju­teng­ing gerir það að verkum að greiðslur lækka með hækk­andi tekjum. Ein­stak­lingar með yfir 80 þús­und dali, eða um 10,3 millj­ónir króna, í árs­tekjur fá þannig enga ávísun. Það sama gildir um ein­stæða for­eldra sem hafa 120 þús­und dali, 15,5 millj­ónir króna, í árs­tekjur. Þá missa hjón rétt­inn til greiðslna fari árs­tekjur þeirra yfir 160 þús­und dali, um 20,6 millj­ónir króna. Styrkur vegna barna lækkar að sama skapi eftir því sem tekjur fólks hækka.

Í pakk­anum er einnig að finna fé sem er eyrna­merkt dreif­ingu á bólu­efni vegna COVID-19 sem og fé til skimunar, rað­grein­ingar og smitrakn­ingar. Um 350 millj­arðar Banda­ríkja­dala munu fara til ríkja- og sveita­stjórna og um 130 millj­arðar dala til skóla. Þá mun fé vegna björg­un­ar­pakk­ans einnig rata til háskóla, í sam­göngur, hús­næð­is­að­stoð, barnaumönnun og mat­ar­að­stoð.

Viðbótargreiðslur til atvinnulausra standa í stað

Fram kemur í umfjöllun New York Times að upp­haf­lega hafi staðið til að hækka við­bót­ar­greiðslur til atvinnu­lausra úr 300 doll­urum á viku í 400, eða úr tæpum 40 þús­und krónum í rúmar 50 þús­und. Til að tryggja stuðn­ing allra Demókrata var fallið frá þess­ari hækkun. Samþykki full­trúa­deildin björg­un­ar­pakk­ann verður þetta úrræði í gildi fram í sept­em­ber en því var fyrst komið á fót með fyrri björg­un­ar­pakka sem sam­þykktur var í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Þá hefur fyr­ir­huguð hækkun lág­marks­launa verið felld úr frum­varp­inu. Til stóð að hækka lág­marks­laun úr 7,25 dölum á klukku­stund upp í 15 dali fyrir árið 2025. Með því að strika til­lög­una um hækkun lág­marks­launa varð afgreiðsla máls­ins auð­veld­ari í öld­unga­deild­inni. Hefðu Demókratar haldið hækk­un­inni í frum­varp­inu hefði það þurft fleiri atkvæði til sam­þykktar, 60 atkvæði sam­tals, í stað ein­falds meiri­hluta. Þar að auki eru þing­menn Demókrata ekki ein­huga um hækk­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

biden

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár