Biden og Trump yrðu ekki á sama stað í næstu kappræðum

For­seta­fram­bjóð­endur Banda­ríkj­anna, Joe Biden og Donald Trump, myndu ekki vera á sama stað í næstu kapp­ræðum þeirra, sam­kvæmt úrskurði kapp­ræðu­nefndar þar í landi.

Donald Trump Bandaríkjaforseti
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti Mynd: EPA

For­seta­kepp­ræðu­nefnd Banda­ríkj­anna til­kynnti í dag að næstu kapp­ræður for­seta­fram­bjóð­end­anna tveggja í næstu viku verða haldnar á sitt­hvorum staðnum. Þetta kemur fram í frétt vef­mið­ils­ins Axios um málið.

Samkvæmt frétt­inni myndu áhorf­endur kapp­ræðn­anna og stjórn­andi þeirra, Steve Scully, vera á sama stað í fund­ar­sal í Miami.

Ýmsar sótt­varn­ar­ráð­staf­anir hafa verið gerðar frá síð­ustu kapp­ræðum for­seta­fram­bjóð­end­anna, en Donald Trump Banda­ríkja­for­seti greind­ist með COVID-19 stuttu eftir þær. Vara­for­seta­fram­bjóð­endur Banda­ríkj­anna, sitj­andi vara­for­set­inn Mike Pence og öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Kamala Harris, mætt­ust í kapp­ræðum í gær­kvöldi, en þar voru fjórir metrar og veggur af plex­i­gleri á milli fram­bjóð­end­anna.

Axios bætir þó við að óvíst sé hvort kosn­ingateymi Trump og Pence muni fall­ast á nýjar reglur nefnd­ar­innar, en það gerði lítið úr ráð­stöf­un­unum í kapp­ræð­unum í gær. “Ef Harris vill hafa virk­is­vegg í kringum hana, verði henni af því,” sagði Katie Miller, tals­maður vara­for­set­ans.

Uppfært kl. 13:33

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að taka þátt í næstu kapp­ræðum, sam­kvæmt nýrri frétt Politico. Í við­tali við Fox Business sagð­ist for­set­inn ekki ætla að eyða tím­anum sínum í sýnd­ar­kapp­ræðum. „Þú situr fyrir framan tölv­una og rök­ræðir. Það er fárán­legt, og þeir geta klippt á þig hvenær sem þú vilt“, sagði for­set­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

biden

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár