10 staðreyndir um kosninganóttina

Í nótt verður kjör­stöðum lokað í Banda­ríkj­unum og hefst þá taln­ing atkvæða fyrir for­seta þar í landi. Kjarninn tók saman tíu stað­reyndir sem gætu komið að notum fyrir kosn­inga­nótt­ina.

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Joe Biden forsetaefni Demókrata
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti og Joe Biden for­seta­efni Demókrata Mynd: Samsett

1. Níu sveifluríki og Texas

Kosið er um 538 kjör­menn í öllum 50 ríkjum Banda­ríkj­anna og gildir þá sú regla í lang­flestum til­vikum að sá fram­bjóð­andi sem fær flest atkvæði í hverju ríki taki til sín alla kjör­menn þess. Munurinn á fylgi fram­bjóð­enda er þó mik­ill á milli ríkja og því eru úrslitin talin nær örugg í flestum þeirra nú þegar.

Vefsíðan 270ToWin, sem tekur saman skoð­ana­kann­anir úr ýmsum áttum, spáir að Joe Biden, for­seta­efni Demókrata, eigi 183 kjör­menn örugga og að Donald Trump sitj­andi for­seti eigi 77 kjör­menn örugga. Fram­bjóð­end­urnir þurfa að tryggja sér að minnsta kosti 270 kjör­menn til þess að sigra kosn­ing­arnar.

Beðið verður hins vegar eftir úrslitum í níu ríkjum með eft­ir­vænt­ingu, það er í Flórída, Arizona, Penn­syl­vaníu, Ohio, Michigan, Norður-Karólínu, Wisconsin, Iowa og Georgíu. Þessi ríki, sem í dag­legu tali eru kölluð sveiflu­ríki (e. Swing states) munu lík­lega ráða úrslitum kosn­ing­anna.

Til við­bótar við þessi ríki gætu nið­ur­stöð­urnar í Texas einnig haft mikil áhrif á loka­nið­ur­stöður kosn­ing­anna. Ríkið inni­heldur 38 kjör­menn, sem yrði stór biti fyrir hvorn for­seta­fram­bjóð­and­ann. Líklegra er að Trump ná flestum atkvæðum þar, en sam­kvæmt vef­síð­unni FiveT­hir­tyEight eru þó 38 pró­senta líkur á að Biden sigri í rík­inu, sem eru meiri sig­ur­líkur en Trump hefur í sveiflu­rík­inu Flórída.

2. Metkjörsókn fyrir kjördag

Sökum yfir­stand­andi kór­ónu­veiru­far­ald­urs hefur meiri­hluti ríkj­anna leyft kjós­endum að póst­leggja atkvæði sín, auk þess sem kjör­staðir hafa verið opnir í lengri tíma en venju­lega. Stór hluti banda­rískra kjós­enda hefur nýtt sér þessar leiðir, en sam­kvæmt New York Times voru nær 100 millj­ónir Banda­ríkja­manna búnar að greiða atkvæði fyrir kjör­dag. Til sam­an­burðar kusu alls 137 millj­ónir í síð­ustu for­seta­kosn­ingum þar í landi.

3. Talning póstatkvæða og mannekla gæti seinkað niðurstöðum

Mikill fjöldi póst­at­kvæða gæti þó leitt til þess að nið­ur­stöður kosn­ing­anna komi seinna en í fyrri kosn­ingum, þar sem lengri tíma tekur að telja slík atkvæði. Í mörgum ríkjum skiptir heldur ekki máli hversu snemma atkvæðin bár­ust, þar sem óheim­ilt er að telja þau áður en að kjör­köss­unum er lokað. Einnig mega póst­lögð atkvæði í öðrum ríkjum ber­ast kjör­stjórn­inni alveg fram að næstu viku, svo lengi sem þau voru send í gær.

Til við­bótar við mik­inn fjölda póst­at­kvæða hafa fréttir borist af mann­eklu á kjör­stöðum, þar sem eldri sjálf­boða­liðar hafa hætt við að bjóða fram krafta sína vegna smit­hættu. Ýmis ríki hafa brugð­ist við þeim skorti með ýmsum leiðum, meðal ann­ars með því að virkja þjóð­varð­ar­liðið og borga opin­berum starfs­mönnum fyrir að telja atkvæði.

4. Óvíst hvort niðurstöður liggi fyrir í nótt

Líklegt er að var­úð­ar­ráð­staf­an­irnar sem gerðar hafa verið vegna far­ald­urs­ins leiði til þess að það muni taka marga daga að telja öll atkvæðin. Samkvæmt grein­ingu Washington Post hefur atkvæða­taln­ing í fylk­is­kosn­ingum sem haldnar hafa verið í heims­far­aldr­inum að með­al­tali tekið fjóra daga.

Á heima­síð­unni FiveT­hir­tyEight má sjá spá um birt­ingu talna í hverju ríki fyrir sig. Samkvæmt henni mætti búast við tölum frá Flórída mjög fljótt, en nið­ur­stöð­urnar ætti að liggja fyrir aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að kjör­staðir loka.

Ef staðan er ekki hní­f­jöfn mætti einnig búast afger­andi nið­ur­stöðum í Georgia, Texas, Arizona, Norður-Karólínu, Ohio og Wisconsin. Aftur á móti gæti end­an­leg nið­ur­staða þar ekki borist fyrr en nokkrum dögum seinna póst­lögð atkvæði ráða úrslitum.

Búist er við að loka­tölur frá Wisconsin muni liggja fyrir undir lok kosn­inganæt­ur­innar þar Vestra, eða snemma mið­viku­dags­morg­uns á íslenskum tíma. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir að tölur liggi fyrir í Penn­syl­vaníu eða Michigan fyrr en eftir nokkra daga.

5. Blátt, rautt og svo aftur blátt

Mikill munur er á kosn­inga­hegðun þeirra sem kjósa Trump og þeirra sem kjósa Biden. Demókratar eru mun lík­legri en Repúblikanar fyrir að hafa kosið fyrir kjör­dag, hvort sem það var utan kjör­fundar eða ekki. FiveT­hir­tyEight spáir því að þessi mis­munur muni hafa áhrif á birt­ingu úrslit­anna.

Samkvæmt vef­síð­unni eru fyrstu nið­ur­stöð­urnar í mörgum ríkjum lík­legri til að vera Biden í vil, en svo gætu þær hallað meira í átt að Trump þegar líður á kosn­inga­nótt­ina og atkvæði frá kjör­deg­inum sjálfum eru talin. Póstlögð atkvæði verða svo talin síð­ast, en lík­legt er að nið­ur­stöð­urnar muni þá aftur styrkja stöðu Biden á næstu dögum.

6. Fulltrúadeildin örugg en barátta um öldungadeildina

Til við­bótar við for­seta­kosn­ing­arnar kjósa Banda­ríkja­menn einnig til beggja deilda þings­ins þar í landi. Samkvæmt skoð­ana­könn­unum er nokkuð öruggt að Demókratar vinni neðri deild­ina, sem kölluð er full­trúa­deildin og inni­heldur 435 þing­sæti. Samkvæmt spá FiveT­hir­tyEight eru 97 pró­senta líkur á því að Demókratar haldi meiri­hlut­anum sínum þar.

Spáin um öld­unga­deild­ina er tví­sýnni, en sam­kvæmt FiveT­hir­tyEighteru fjórð­ungs­líkur á að Repúblík­anar nái meiri­hluta þar. Fari svo myndi mynd­ast patt­staða á þingi (e. Lame duck parli­ament), þar sem Repúblikanar yrðu lík­legir til þess að hafna öllum laga­frum­vörpum sem kæmu frá Demókrötum úr neðri deild­inni.

7. Þetta er ekki 2016

Í síð­ustu for­seta­kosn­ingum Banda­ríkj­anna fyrir fjórum árum síðan bentu flestar skoð­ana­kann­anir til þess að sig­ur­líkur Hillary Clinton, þáver­andi for­seta­fram­bjóð­anda Demókrata, væru meiri en hjá Donald Trump. Annað kom svo í ljós þegar talið var úr kjör­köss­unum, en Trump tryggði sér for­seta­til­nefn­ing­una með naumum sigri í þremur ríkjum.

Samkvæmt umfjöllun CBC um málið rýrðu úrslit for­seta­kosn­ing­anna árið 2016 traust til kosn­inga­spáa þar í landi. Hins vegar bætir frétta­stofan við að miklar breyt­ingar hafi verið gerðar í gerð spá­anna, svo að ólík­legra sé að sömu mis­tök verði gerð aftur.

Stærstu breyt­ingar á skoð­ana­könn­un­unum eru þær að nú eru við­mæl­endur vigtaðir eftir mennt­un­ar­stigi, en með því ætti að vera auð­veld­ara að heim­færa nið­ur­stöður þeirra yfir á alla þjóð­ina.

Til við­bótar við betri skoð­ana­kann­anir er fylg­is­mun­ur­inn á milli Biden og Trump mun meiri en hann var á milli Clinton og Trump rétt fyrir kosn­ing­arnar árið 2016. Þess vegna er enn ólík­legra að kosn­inga­spárnar í ár spái fyrir um rangan sig­ur­veg­ara, jafn­vel þótt skoð­ana­kann­an­irnar væru jafn óná­kvæmar og þær voru fyrir fjórum árum síðan.

8. Twitter leyfir sjö fréttaveitum að “kalla” kosningarnar

Sam­fé­lags­mið­illin Twitter til­kynnti í gær að hann hygð­ist leyfa sjö frétta­veitum að lýsa yfir nið­ur­stöðum kosn­ing­anna á sam­fé­lags­miðl­inum. Þessir miðlar eru ABC News, AP, CBS, Decision Desk HQ, Fox News og NBC. Allir þessir miðlar sam­mæld­ust um að fylgja ráðum óháðra sér­fræð­inga til að finna út hvenær úrslitin yrðu ráðin.

Samkvæmt Twitter munu úrslitin verða talin opin­ber á sam­fé­lags­miðl­inum þegar tveir þess­ara miðla hafa til­kynnt þau. Þangað til megi búast við við­vörun frá miðl­inum ef reynt væri að lýsa yfir sigri ann­ars hvors fram­bjóð­and­ans.

9. Trump gæti lýst yfir sigri

Áform Twitter um að stýra umfjöllun um kosn­ing­arnar komu fram degi eftir að mið­ill­inn Axios greindi frá því að Donald Trump hygð­ist ætla að lýsa yfir sigri á kosn­inga­n­óttu ef hann teldi það lík­legt að hann myndi vinna. For­set­inn sjálfur hefur neitað ásök­unum, en Axios heldur því fram að hann hafi viðrað þessar hug­myndir í einka­sam­tölum við aðra.

Samkvæmt Axios þyrfti Trump þó að vera með sann­fær­andi for­skot í Ohio, Flórída, Norður-Karólínu, Texas, Iowa, Arizona og Georgia til þess að það myndi ger­ast.

10. Hæstiréttur gæti blandað sér í málin

Trump hefur einnig látið í veðri vaka að kosn­inga­úr­slitin gætu verið í höndum hæsta­réttar Banda­ríkj­anna, þar sem hann hefur haldið því fram að póst­kosn­ingar bjóði upp á kosn­inga­svindl.

Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna hefur áður úrskurðað nið­ur­stöðu for­seta­kosn­inga þar í landi, en Al Gore, for­seta­efni Demókrata árið 2000 fór fram á end­ur­taln­ingu á atkvæðum eftir að hann tap­aði gegn George W. Bush með 537 atkvæðum í Flórída.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

10staðreyndir

Skýring10staðreyndir

Tíu stað­reyndir um Íslend­inga

Hinn 1. jan­úar síð­ast­lið­inn voru Íslend­ingar 332.529, sam­kvæmt nýj­ustu tölum Hagstofu Íslands. Þeim fjölg­aði um 3.429 á einu ári, eða um sem nemur eitt pró­sent. Á ára­tug, eða frá árinu 2006, hefur lands­mönnum fjölgað um tæp­lega 33 þús­und manns, en 1. jan­úar 2006 voru lands­menn tæp­lega 300 þús­und 2. Kynja­hlut­föll lands­manna eru næstum jöfn. Í byrjun þessa árs voru...
Skýring10staðreyndir

Tíu stað­reyndir um lista­manna­laun

1 - Lista­manna­laun eru laun, eða styrkur, sem Alþingi veitir af fjár­lögum til sjálf­stætt starf­andi lista­manna. Til­gang­ur­inn er að efla lists­sköpun í land­inu og launa lista­menn í sam­ræmi við lög. Launin eru veitt úr sex sjóðum: launa­sjóðum hönn­uða, mynd­list­ar­manna, rit­höf­unda, sviðs­lista­fólks, tón­list­ar­flytj­enda og tón­skálda. 2 - Alþingi veitti fyrstu skálda­launin árið 1891 og lagði þannig grunn­inn að reglu­legum styrk­veit­ingum til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár