Tíu staðreyndir um listamannalaun

1 - Lista­manna­laun eru laun, eða styrkur, sem Alþingi veitir af fjár­lögum til sjálf­stætt starf­andi lista­manna. Til­gang­ur­inn er að efla lists­sköpun í land­inu og launa lista­menn í sam­ræmi við lög. Launin eru veitt úr sex sjóðum: launa­sjóðum hönn­uða, mynd­list­ar­manna, rit­höf­unda, sviðs­lista­fólks, tón­list­ar­flytj­enda og tón­skálda.

2 - Alþingi veitti fyrstu skálda­launin árið 1891 og lagði þannig grunn­inn að reglu­legum styrk­veit­ingum til lista­manna. Næstu ára­tug­ina á eftir mynd­að­ist ákveðin hefð um úthlutun lista­manna­launa en ákvarð­anir Alþingis og úthlut­un­ar­nefnda voru ætíð umdeildar, er fram kemur í rit­gerð Óskars Völ­und­ar­sonar frá 2013. Mikil umræða skap­ast iðu­lega ár hvert þegar laun­þegar eru gerðir opin­berir og er árið í ár engin und­an­tekn­ing.

3 - Lista­manna­laun eru greidd mán­að­ar­lega. Þau sem njóta starfs­launa í sex mán­uði eða lengur skulu ekki gegna fullu starfi meðan á starfs­launa­tím­anum stendur.

4 - Í ár fengu 378 lista­menn lista­manna­laun (þar af 78 í 14 sviðs­lista­hópum) og er það aukn­ing um 20 pró­sent frá því í fyrra. Þá bár­ust 769 umsóknir frá ein­stak­lingum og hópum um laun eða ferða­styrki og 267 fengu.

5 - Starfs­laun lista­manna eru 351.400 krónur á mán­uði.

6 - Ákvarð­anir úthlut­un­ar­nefnda byggja á umsóknum. Varða þær list­rænt gildi þeirrar vinnu sem sótt er um laun fyrir, grein­ar­gerð um vinn­una, tíma­á­ætlun, náms- og starfs­feril umsækj­anda sem og verð­laun og við­ur­kenn­ingar.

7 - Lista­manna­laun eru skatt­skyld og flokkuð sem verk­taka­greiðslur sem lista­menn fá greidd einu sinni í mán­uði.

8 - Erla Þór­ar­ins­dóttir mynd­list­ar­kona er eini lista­mað­ur­inn 2016 sem fékk úthlutað launum í 24 mán­uði, sem er lengsti tím­inn.

9 - Meira en helm­ingur Íslend­inga eru fylgj­andi lista­manna­launum, eða 53 pró­senr, sam­kvæmt nýj­ustu skoð­ana­könnun MMR. Stuðn­ingur hefur auk­ist frá árinu 2010, þegar 39 pró­sent voru fylgj­andi.

10 - Mjög skiptar skoð­anir eru varð­andi lista­manna­laun þegar litið er til stuðn­ings stjórn­mála­flokka. 77 pró­sent þeirra sem styðja Fram­sókn­ar­flokk eru and­víg þeim og 68 pró­sent þeirra sem styðja Sjálf­stæð­is­flokk. Hins vegar eru um 80 pró­sent þeirra sem styðja Sam­fylk­ingu og Vinstri græn fylgj­andi því að ríkið greiði lista­manna­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

10staðreyndir

Skýring10staðreyndir

Tíu stað­reyndir um Íslend­inga

Hinn 1. jan­úar síð­ast­lið­inn voru Íslend­ingar 332.529, sam­kvæmt nýj­ustu tölum Hagstofu Íslands. Þeim fjölg­aði um 3.429 á einu ári, eða um sem nemur eitt pró­sent. Á ára­tug, eða frá árinu 2006, hefur lands­mönnum fjölgað um tæp­lega 33 þús­und manns, en 1. jan­úar 2006 voru lands­menn tæp­lega 300 þús­und 2. Kynja­hlut­föll lands­manna eru næstum jöfn. Í byrjun þessa árs voru...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár