10 staðreyndir um Færeyjar

Þessa helg­ina stendur yfir Ólafsvaka á Færeyjum, sem er gjarnan talin óop­in­ber þjóð­há­tíð þar í landi. Í til­efni hennar ákvað Kjarninn að taka saman tíu stað­reyndir um þessa smáu frænd­þjóð okkar.

1. 18 Færeyjar

Fær­eyj­arnar eru 18 tals­ins, þar af eru 17 þeirra í byggð, og spanna tæpa 1.400 fer­kíló­metra. Fær­ey­ingar telja rétt rúm­lega 50 þús­undum, en höf­uð­borg og fjöl­menn­asti bær eyj­anna er Þórshöfn, eða Tórshavn, með um 13 þús­und íbúa.

2. Tyrkjarán og hernám Breta

Elstu forn­leifar um manna­ferðir á eyj­unum eru 1700 ára gamlar, en nor­rænir og breskir menn sett­ust þar fyrst að um 800. Fyrstur þeirra er tal­inn vera Grímur Kamban, sem átti ættir sínar að rekja til Bret­landseyja. Saga Fær­ey­inga er að mörgu leyti svipuð og Íslands­saga, til að mynda átti sér stað Tyrkja­rán árið 1629, þjóð­ern­is­vakn­ing á 19. öld­inni og her­nám Breta árið 1940. Fær­ey­ingar hafa einnig löngum verið nánir banda­menn Íslands og lán­uðu íslenska rík­inu til dæmis 6,6 millj­örðum króna eftir hrunið í októ­ber 2008, fyrst allra þjóða. 

3. Heimastjórn undir Danmörku

Færeyjar til­heyra kon­ungs­ríki Dan­merkur, ásamt Danmörku og Græn­landi, og er því Dana­drottn­ing form­legur þjóð­höfð­ingi eyj­anna. Þjóðin hefur þó eigin heima­stjórn, sem hún fékk árið 1948. Heima­stjórnin hefur æðsta fram­kvæmda­vald í flestum mála­flokkum, utan lög­gæslu, æðsta dóms­valds og utan­rík­is­mála. Formaður heima­stjórn­ar­innar er kall­aður lög­maður Færeyja, en Aksel V. Johann­esen hefur gegnt því emb­ætti frá árinu 2015. 

4. Yvirgangsfólk við bumbu

Tungumál Fær­ey­inga, fær­eyska, kemur úr forn­nor­rænum mál­lýskum eins og íslenska. Nútíma­rit­mál á fær­eysku varð samt ekki til fyrr en undir lok 19. aldar og tók mið af íslensku rit­máli. Frels­is­hetjan Jón Sig­urðs­son var helsti aðstoð­ar­maður Fær­ey­ing­anna við að sníða fær­eyska staf­setn­ingu. Ritmálið lík­ist því mjög íslensku, þótt sömu orð hafi ekki alltaf sömu merk­ingu í báðum löndum. Til dæmis eru orðin „Hryðju­verka­menn með sprengju“ þýdd yfir á fær­eysku sem „Yvir­gangs­fólk við bumbu.“

5. Ríkari en Danmörk

Í fyrra var lands­fram­leiðsla Fær­ey­inga rúmar sex millj­ónir íslenskra króna á mann og var hún hærri en í Svíþjóð, Finn­landi og Danmörku. Helsta tekju­lind þeirra er sjáv­ar­út­vegur og fisk­eldi, en eitt stærsta fyr­ir­tæki eyj­anna er lax­eld­is­fyr­ir­tækið Bakka­frost. Stór hluti af þjóð­ar­tekjum Fær­ey­inga er í formi styrkja frá Danmörku, en árið 2011 námu þeir 13% af lands­fram­leiðslu.

6. Íþróttagarpar

Líkt og Íslend­ingar hafa ýmsir Fær­ey­ingar náð góðum árangri í íþróttum þrátt fyrir fámenni þjóðar sinnar. Þekkt­asti íþrótta­maður þeirra er Páll Joensen sund­maður, en hann náði brons­verð­launum á heims­meist­ara­móti Alþjóða­sund­sam­bands­ins, FINA, árið 2012. Einnig spil­aði fót­bolta­mað­ur­inn Gunnar Nielsen í ensku Úrvals­deild­inni með Manchester City. Gunnar spilar nú sem mark­maður FH.

7. Mikil lífsgæði

Færeyjar koma til­tölu­lega vel út á ýmsum mæli­kvörðum um lífs­gæði. Árið 2016 var atvinnu­leysi þar í landi 2,8%, auk þess sem eyj­arnar bjuggu við næst­mesta jöfnuð í heimi með Gini-stuðul upp á 0,23. Lífslífur við fæð­ingu voru 78 ár meðal karl­manna og 83,2 ár meðal kven­manna í fyrra, sem er nokkuð lægra en á Íslandi en hærra en í Danmörku.

8. Hvalveiðar og samkynhneigðir

Fær­ey­ingar hafa orðið þekktir fyrir íhalds­söm við­horf í garð sam­kyn­hneigðra, en þekkt var þegar þing­maður þeirra, Jenis av Rana, neit­aði að mæta til kvöld­verð­ar­boðs með Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur árið 2010. Jóhanna var þá for­sæt­is­ráð­herra Íslands, en Jenis kvaðst ekki vilja mæta vegna kyn­hneigðar hennar. Enn fremur sögðu Samtökin 78 sam­kyn­hneigða Fær­ey­inga yfir­gefa heima­landið sitt í stórum stíl vegna ótta við ofsóknir árið 2006. Síðan þá hefur margt áunn­ist í rétt­inda­bar­áttu þeirra, en sam­kyn­hneigðir fengu laga­lega vernd gegn ofsóknum seinna sama ár auk þess sem hjóna­bönd þeirra voru lög­leidd fyrir tveimur árum síðan.

Þjóðin hefur einnig verið gagn­rýnd fyrir hval­veiði sína, og þá sér­stak­lega veiði­að­ferð­ina sem þeir kalla Grind­ar­dráp.Síðasta Grind­ar­dráp átti sér stað síð­ast­lið­inn þriðju­dag, en talið er að Fær­ey­ingar veiði á bil­inu 800 til 900 grind­hvali með þess­ari aðferð árlega.

9. Nokkur „heimsmet“ Íslendinga slegin

Vegna lít­ils íbúa­fjölda hafa Fær­ey­ingar, líkt og Íslend­ingar, slegið mörg heims­met þegar miðað er við höfða­tölu. Raunar slá þeir einnig nokkur met sem stundum hafa verið eignuð Íslend­ingum á heims­vísu, til að mynda í fjölda nóbels­verð­launa­hafa miðað við mann­fjölda. Einnig er talið að þjóð­þing Fær­ey­inga, Tínganes, sé að minnsta kosti fimm árum eldra en Alþingi og því mögu­lega elsta starf­andi þjóð­þing í heimi.

10. Ólavsøka

Hátíðin Ólafsvaka, eða Ólavsøka er haldin hátíð­leg dag­ana 28. og 29. júlí, en Fær­ey­ingar líta gjarnan á hana sem þjóð­há­tíð sína. Hún er kennd við Ólaf Har­alds­son, kon­ung Noregs á ell­eftu öld og inni­heldur marga við­burði, líkt og kapp­róður, tón­leikar og dans­leikir þar sem dans­aður er fær­eyskur keðju­dans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

10staðreyndir

Skýring10staðreyndir

Tíu stað­reyndir um Íslend­inga

Hinn 1. jan­úar síð­ast­lið­inn voru Íslend­ingar 332.529, sam­kvæmt nýj­ustu tölum Hagstofu Íslands. Þeim fjölg­aði um 3.429 á einu ári, eða um sem nemur eitt pró­sent. Á ára­tug, eða frá árinu 2006, hefur lands­mönnum fjölgað um tæp­lega 33 þús­und manns, en 1. jan­úar 2006 voru lands­menn tæp­lega 300 þús­und 2. Kynja­hlut­föll lands­manna eru næstum jöfn. Í byrjun þessa árs voru...
Skýring10staðreyndir

Tíu stað­reyndir um lista­manna­laun

1 - Lista­manna­laun eru laun, eða styrkur, sem Alþingi veitir af fjár­lögum til sjálf­stætt starf­andi lista­manna. Til­gang­ur­inn er að efla lists­sköpun í land­inu og launa lista­menn í sam­ræmi við lög. Launin eru veitt úr sex sjóðum: launa­sjóðum hönn­uða, mynd­list­ar­manna, rit­höf­unda, sviðs­lista­fólks, tón­list­ar­flytj­enda og tón­skálda. 2 - Alþingi veitti fyrstu skálda­launin árið 1891 og lagði þannig grunn­inn að reglu­legum styrk­veit­ingum til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár