10 staðreyndir um verðbólgu

Fréttir af verð­hækk­unum hafa verið áber­andi í efna­hags­um­ræðu síð­ustu mán­aða. Kjarninn tók saman tíu stað­reyndir um verð­bólg­una og sögu­leg áhrif hennar á Íslandi.

1. Húsnæðisliðurinn langstærstur

Verð­bólgan sýnir hversu mikið verðið á dæmi­gerðum vörum og þjón­ustu sem heim­ili lands­ins neyta hafa hækkað í verði, miðað við sama mánuð ári fyrr. Hag­stofan mælir þetta út frá vísi­tölu neyslu­verðs, en þar fær hver vöru­flokkur mis­mikið vægi eftir því hversu stór hluti hann er af útgjöldum heim­il­anna.

Lang­mesta vægið fær svo­kall­aði hús­næð­islið­ur­inn sem mælir öll hús­næð­is­gjöld heim­il­anna, en hann er um þriðj­ungur vísi­töl­unnar. Þar er inni­falið leigu­verð hús­næðis og verð á við­haldi þess, sem og orku­kostn­að­ur­inn vegna raf­magns og hita. Einnig er kostn­að­ur­inn við að búa í eigin hús­næði met­inn, en sá kostn­aður fylgir að ein­hverju leyti fast­eigna­verði.

Næst­stærsti lið­ur­inn í vísi­töl­unni sam­anstendur svo af mat og drykkj­ar­vörum, en vægi hans er 14,5 pró­sent. Ferðir og flutn­ingar, sem inni­halda rekstur bíla og bens­ín­kostnað þeirra, er svo með tæp­lega 14 pró­senta vægi.

2. Fasteignaverð hefur áhrif

Þar sem hús­næð­islið­ur­inn hefur mikið vægi í neyslu­verðs­vísi­töl­unni hefur fast­eigna­verð haft tölu­verð áhrif á verð­bólgu í gegnum tíð­ina, sér­stak­lega þegar verð­hækk­anir þar eru miklar. Sú er raunin þessa stund­ina, en sam­kvæmt Hagstofu mæld­ist verð­bólgan í jan­úar 5,7 pró­sent, á meðan hún væri 3,7 pró­sent ef ekki væri fyrir hús­næð­islið­inn.

Hús­næð­islið­ur­inn hefur hins vegar unnið gegn sveiflum í verð­bólg­unni í sögu­legu til­liti, þar sem hann hefur ekki hækkað í takti við aðrar neyslu­vörur. Ef ekki væri fyrir lið­inn hefði verð­bólgan á síð­ustu þremur ára­tugum sveifl­ast meira, bæði upp og niður.

3. Húsnæðisliðurinn er mikilvægur hluti af vísitölunni

Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks­ins og Flokks fólks­ins hafa nú lagt til að hús­næð­islið­ur­inn yrði fjar­lægður úr vísi­tölu neyslu­verðs og hafa haldið því fram að hann sé ekki til staðar í verð­bólgu­mæl­ingum ann­arra landa.

Þetta er hins vegar rangt, önnur lönd mæla einnig kostn­að­inn af því að búa í eigin hús­næði, líkt og alþjóð­legir staðlar kveða á um. Aftur á móti eru reikni­að­ferð­irnar til að meta þennan kostnað mis­mun­andi á milli landa, þar sem sum lönd miða við leigu­verð og önnur líta fram hjá skamm­tíma­sveiflum í fast­eigna­verði.

4. Gengið býr til sveiflur

Annar stór áhrifa­þáttur verð­bólg­unnar er gengi krón­unnar, sem fer eftir trú erlendra fjár­festa og neyt­enda á íslenska fram­leiðslu. Eftir því sem krónan er veik­ari verða erlendir gjald­miðlar dýr­ari og þar af leið­andi hækka inn­fluttar vörur í verði. Þar sem um helm­ingur af allri neyslu heim­il­anna er á inn­fluttum vörum og þjón­ustu veldur geng­is­veik­ing því alla jafna verð­bólgu.

Geng­is­styrk­ing dregur aftur á móti úr verð­bólgu­þrýst­ingi, þar sem hún leiðir til þess að inn­fluttar vörur lækka í verði. Slíkt gerð­ist á seinni hluta árs­ins 2016 og fyrri hluta árs­ins 2017, en þá dró veru­lega úr inn­fluttri verð­bólgu á meðan gengið styrkt­ist. Ef ekki hefði verið fyrir hús­næð­islið­inn hefði verð­bólgan verið nei­kvæð og breyst í verð­hjöðnun á þessum tíma.

5. 103 prósenta verðbólga árið 1983

Breyt­ingar í gengi var einmitt drif­kraftur óstöð­ug­leika í verð­lagi á níunda ára­tugnum, en þá fór verð­bólga í sögu­legar hæðir. Í ágúst 1983 mæld­ist verð­bólgan í 103 pró­sentum og hefur hún aldrei verið hærri hér­lendis.

Á þessum tíma voru geng­is­breyt­ing­arnar hand­stýrðar af stjórn­völdum. Gengið var reglu­lega látið falla á átt­unda og níunda ára­tugnum til þess að bæta stöðu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í land­inu, sem hagn­ast á veik­ara gengi þar sem fisk­ur­inn varð þá ódýr­ari í augum útlend­inga.

Þessar geng­is­fell­ingar leiddu svo til hærra verðs inn­fluttra vara, en í kjöl­far þess kröfð­ust laun­þegar hærri launa. Hærri laun þrengdu loks að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­um, sem leiddi til ann­arrar geng­is­fell­ingar að hálfu stjórn­valda.

Til við­bótar við þessa víxl­verkun magn­að­ist verð­bólgan svo enn frekar þar sem verka­lýðs­hreyf­ingin var óviss um fram­tíð­ar­verð­lag og upp­færði því kröfur sínar með stuttu milli­bili og tíðum verk­föllum. Ekki náð­ist að binda endi á þennan víta­hring fyrr en með Þjóð­ar­sátt­inni árið 1990, þegar stjórn­völd, verka­lýðs­fé­lög og sam­tök vinnu­veit­enda sam­mælt­ust um að halda öll að sér höndum til að koma böndum á verð­bólg­una.

6. Verðtryggingin

Ein afleið­ing verð­bólgu­ár­anna á átt­unda ára­tugnum voru verð­tryggð hús­næð­is­lán, sem voru sett á með Ólafslög­unum svoköll­uðu árið 1979. Á þessum tíma höfðu magn­ast áhyggjur yfir því að verð­bólgan væri byrjuð að grafa undan fjár­mála­kerf­inu og mögu­leikum þess til að fjár­magna atvinnu­líf lands­manna, þar sem lánin svo til brunnu upp í verð­bólg­unni.

Með verð­trygg­ing­unni eru lánin tengd vísi­tölu neyslu­verðs og hækka þau því í takt við verð­bólgu. Slíkt fyr­ir­komu­lag eyðir óvissu bank­anna um að virði útlána þeirra hverfi ef verð­bólgan er langt umfram vænt­ingar og gátu þeir því boðið upp á lán með lægri vöxtum. Heimilin högn­uð­ust einnig á fyr­ir­komu­lag­inu, þar sem lægri vextir draga úr greiðslu­byrði lán­anna.

Verð­trygg­ing er almenn­ari á Íslandi en víð­ast ann­ars staðar en hún er þó þekkt í mörgum löndum í ein­hverjum mæli. Það eru helst lönd sem búa við óstöðugan, lít­inn gjald­miðil og mikla verð­bólgu sem búa við verð­trygg­ingu í miklum mæli. Segja má að verð­trygg­ingin sé alla jafna hag­kvæm­ari eftir því sem verð­bólga og óvissa er meiri.

7. Stórauknar skuldir eftir fjármálahrunið

Í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins árið 2008 versn­aði þó skulda­staða heim­ila sem höfðu tekið verð­tryggð hús­næð­is­lán til muna, þar sem verð­lag hækk­aði hratt vegna geng­is­breyt­inga. Í jan­úar árið 2009 náði verð­bólgan hámarki og mæld­ist þá í 18,6 pró­sentum, en hún komst ekki niður fyrir tíu pró­sent fyrr en í októ­ber sama ár.

Á sama tíma dróst eft­ir­spurnin eftir nýjum hús­næð­is­lánum hratt saman og stýri­vextir voru hækk­aðir til þess að koma böndum á verð­bólg­una. Þetta tvennt leiddi til lægra fast­eigna­verðs, en sam­kvæmt Þjóðskrá lækk­aði það um 13 pró­sent á milli októ­ber­mán­aða 2008 og 2009.

Þessi lækkun, til við­bótar við mikla verð­bólgu, leiddi til þess að skuldir vegna verð­tryggðra hús­næð­is­lána voru í sumum til­fellum orðnar mun meiri en mark­aðsvirði fast­eign­anna sem tekið var lán fyrir.

8. Mun færri sem taka verðtryggð lán núna

Vegna óvissu um verð­bólgu og hárra vaxta á hús­næð­is­lánum héldu þó verð­tryggð lán vin­sældum sínum eftir efna­hags­á­fallið, en á árunum 2010-2018 var meiri­hluti útlána banka­kerf­is­ins til heim­ila verð­tryggður.

Á síð­ustu árum hefur þessi staða hins vegar gjör­breyst, en sam­hliða lækk­andi vöxtum á hús­næð­is­lánum hefur ásóknin í óverð­tryggð hús­næð­is­lán auk­ist til muna. Nú eru ein­ungis 30 pró­sent allra útlána til heim­ila verð­tryggð, og hefur það hlut­fall aldrei verið jafn­lágt á þess­ari öld. Þrátt fyrir það er virði útistand­andi verð­tryggðra hús­næð­is­lána enn tölu­vert, en sam­kvæmt Seðla­bank­anum nam það 906 millj­örðum króna í nóv­em­ber í fyrra.

9. Margar ástæður fyrir verðbólgunni núna

Eftir að heims­far­ald­ur­inn braust út hefur verð­bólga auk­ist tölu­vert hér­lendis, eða úr tveimur pró­sentum í tæp sex pró­sent. Í byrjun far­ald­urs­ins var hún fyrst og fremst vegna verð­hækk­ana á inn­fluttum vörum, þar sem gengi krón­unnar hafði veikst tölu­vert. Einnig hækk­aði verðið á ýmsum vörum inn­an­lands sem meiri eft­ir­spurn varð eftir vegna far­ald­urs­ins, líkt og mat­vöru og raf­tæki.

Eftir sem leið á far­ald­ur­inn fór þó gengið að styrkj­ast hægt aftur og dró því úr verð­hækk­unum á ýmsum inn­fluttum neyslu­vörum. Hins vegar byrj­aði hús­næð­islið­ur­inn að hafa meiri áhrif á verð­bólg­una, þar sem fast­eigna­verð hækk­aði hratt hér­lendis í kjöl­far vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans.

Á síð­ustu mán­uðum hefur vægi bens­ín­verðs í verð­bólg­unni svo auk­ist tölu­vert, en heims­mark­aðs­verð á olíu hækk­aði mikið í fyrra sökum mik­illar eft­ir­spurnar og lít­ils fram­boðs af orku.

10. 2,5 prósenta verðbólgumarkmið

Eitt af mark­miðum Seðla­bank­ans er að halda stöð­ugu verð­lagi, en frá árinu 2001 hefur bank­inn haft það lög­bundna mark­mið að halda verð­bólgu í 2,5 pró­sentum. Mest not­aða tæki bank­ans til að stýra verð­lags­þróun eru stýri­vextir, sem segja til um kjörin sem bankar lands­ins geta fjár­magnað sig með.

Með hærri stýri­vöxtum versna fjár­mögn­un­ar­kjör banka og þurfa þeir því venju­lega að hækka vexti á lán­unum sem þeir gefa út. Með hærri vöxtum minnkar eft­ir­spurnin eftir nýjum lánum og því dregur venju­lega úr virkni í efna­hags­líf­inu vegna þess. Sömu­leiðis getur hærra vaxta­stig aukið áhuga erlendra fjár­festa á íslensku krón­unni, en með því styrk­ist gengi hennar. Báðir þessir þættir leiða til lægra verð­lags, svo við­búið er að verð­bólgan minnki þegar stýri­vextir hækka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

10staðreyndir

Skýring10staðreyndir

Tíu stað­reyndir um Íslend­inga

Hinn 1. jan­úar síð­ast­lið­inn voru Íslend­ingar 332.529, sam­kvæmt nýj­ustu tölum Hagstofu Íslands. Þeim fjölg­aði um 3.429 á einu ári, eða um sem nemur eitt pró­sent. Á ára­tug, eða frá árinu 2006, hefur lands­mönnum fjölgað um tæp­lega 33 þús­und manns, en 1. jan­úar 2006 voru lands­menn tæp­lega 300 þús­und 2. Kynja­hlut­föll lands­manna eru næstum jöfn. Í byrjun þessa árs voru...
Skýring10staðreyndir

Tíu stað­reyndir um lista­manna­laun

1 - Lista­manna­laun eru laun, eða styrkur, sem Alþingi veitir af fjár­lögum til sjálf­stætt starf­andi lista­manna. Til­gang­ur­inn er að efla lists­sköpun í land­inu og launa lista­menn í sam­ræmi við lög. Launin eru veitt úr sex sjóðum: launa­sjóðum hönn­uða, mynd­list­ar­manna, rit­höf­unda, sviðs­lista­fólks, tón­list­ar­flytj­enda og tón­skálda. 2 - Alþingi veitti fyrstu skálda­launin árið 1891 og lagði þannig grunn­inn að reglu­legum styrk­veit­ingum til...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár