Hvaðan kemur verðbólgan?

Verð­bólga hér á landi mælist nú í rúmum fjórum pró­sentum og hefur ekki verið jafn­mikil í rúm sjö ár. Hvað veldur þess­ari miklu hækkun?

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra segir nauðsynlegt að ræða áhrif launabreytinga á verðbólgu
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir nauð­syn­legt að ræða áhrif launa­breyt­inga á verð­bólgu Mynd: Bára Huld Beck

Allt frá byrjun heims­far­ald­urs­ins á fyrstu mán­uðum síð­asta árs hafa miklar verð­hækk­anir átt sér stað hér á landi. Verð­bólgan er með því mesta sem mælist í allri Evrópu og hefur hækkað hrað­ast af þeim öllum á tíma­bil­inu. Fjár­mála­ráð­herra bendir á að ræða þurfi áhrif nýlegra launa­hækk­ana á verð­bólg­una en sam­kvæmt Seðla­bank­anum stafar verð­bólgan fyrst og fremst af veik­ingu krón­unnar.

Mesta hækkunin eftir COVID-19

Líkt og Kjarninn hefur greint frá mæld­ist verð­bólga hér á landi ein­ungis hærri í Tyrk­landi og Póllandi af öllum þeim 33 Evr­ópu­löndum sem Eurostat, hag­stofa Evr­ópu­sam­bands­ins, fylgist með. Verð­bólgan í þessum löndum hefur hins vegar verið há í langan tíma, til að mynda var hún svipuð í Póllandi á sama tíma í fyrra. Verð­hækk­anir hafa því auk­ist hrað­ast hér á landi í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins af öllum lönd­unum sem Eurostat mælir. Samkvæmt mæl­ingum Hagstofu hefur hún mælst yfir fjórum pró­sentum á fyrstu tveimur mán­uðum þessa árs.

Ráðherra nefnir húsnæðisverð og launahækkanir

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var spurður út í verð­bólg­una í við­tali við frétta­stofu RÚV fyrir helgi. Þar sagði hann áhyggju­efni að liður hús­næð­is­kostn­aðar væri að hækka í vísi­tölu neyslu­verðs. Hann sagði það einnig vera nauð­syn­legt að skoða und­ir­liggj­andi áhrifa­þætti verð­bólg­unnar og velti því upp hversu mik­inn þátt launa­hækk­anir síð­ustu mán­aða hefðu á hana. 

„Kaup­máttur launa hefur aldrei í sög­unni verið hærri en einmitt nú og launa­hækk­anir hafa verið tölu­verðar,” sagði Bjarni í við­tal­inu. “Við þurfum að spyrja okkur að hvaða marki launa­breyt­ingar í land­inu eru að þrýsta á verð­bólgu­aukn­ingu og ræða það í fullri alvöru.”

Vægi launabreytinga óljóst

Á síð­asta ári hækk­aði launa­vísi­tala Hagstofu um 10,3 pró­sent. Það er mesta hækkun sem mælst hefur milli ára á þess­ari öld, en ein­ungis má finna sam­bæri­lega þróun þegar laun hækk­uðu um 10,1 pró­sent árið 2007 og um slétt 10 pró­sent árið 2002. 

Hins vegar er óljóst hversu mikið þessi hækkun vísi­töl­unnar hefur áhrif á verð­þróun. Í síð­asta hefti Pen­inga­mála benti Seðla­bank­inn á að þrátt fyrir að launa­vísi­talan hefði hækkað umtals­vert hækk­uðu stað­greiðslu­skyld laun á vinnu­stund aðeins um 1,8 pró­sent á fyrstu tíu mán­uðum síð­asta árs.

Í Pen­inga­málum bætti Seðla­bank­inn einnig við að skýr­ingin á hækkun með­al­launa á almenna vinnu­mark­aðnum á þriðja fjórð­ungi síð­asta árs væri sú að lágláuna­störfum hefði fækkað, en að sú hækkun hafi ekki sést á vinnu­mark­aðnum í heild sinni, þar sem öfug þróun átti sér stað hjá opin­berum störfum.

Húsnæði þrýstir ekki vísitölunni upp

Sömu­leiðis virð­ist meiri hús­næð­is­kostn­aður heldur ekki vera meg­in­á­stæða verð­bólg­unnar. Líkt og sést í tölum Hagstofu væri verð­bólgan meiri ef hús­næð­is­verð væri ekki tekið með í reikn­ing­inn, sem þýðir að sá kostn­aður hefur ekki auk­ist jafn­hratt og verð á öðrum hlutum.

Líkt og Kjarninn hefur áður greint frá hækk­aði íbúða­verð tölu­vert á síð­asta ári, eða um 7,7 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ástæða þess­arar miklu hækk­unar eru fyrst og fremst umfangs­miklar vaxta­lækk­anir í kjöl­far yfir­stand­andi kreppu, sem hafa gert fleirum kleift að fjár­festa í íbúðum með hús­næð­is­láni. Aftur á móti hefur leigu­verð lækkað tölu­vert á sama tíma, líkt og Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun greindu frá í síð­asta mán­uði. Á milli jan­ú­ar­mán­aða 2020 og 2021 lækk­aði vísi­tala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 1,9 pró­sent, en sú lækkun hefur nei­kvæð áhrif á mæl­ingu Hagstofu á hús­næð­is­kostnað.

Krónan er aðalástæðan

Samkvæmt síð­ustu þremur heftum Pen­inga­mála Seðla­bank­ans virð­ist meg­in­þungi und­an­far­inna verð­hækk­ana frekar liggja í veik­ara gengi krón­unnar. Með veik­ari krónu hækkar verð vöru og þjón­ustu í öðrum gjald­miðlum. Þannig leiðir geng­is­veik­ing til verð­hækk­unar á inn­fluttum vörum, en Seðla­bank­inn sagði þessa þróun vera meg­in­skýr­ing­una á auk­inni verð­bólgu í ágúst og í nóv­em­ber á síð­asta ári.

Í síð­asta riti pen­inga­mála sem birt­ist í jan­úar sagði Seðla­bank­inn einnig að meg­in­þungi verð­hækk­ana á fjórð­ungnum fælist í hækkun á inn­fluttri vöru, einkum fatn­aði, ýmsum heim­il­is­bún­aði og tóm­stunda­vörum. Þó bætir bank­inn við að það virð­ist sem dregið hefði úr áhrifum geng­is­lækk­unar krón­unnar að und­an­förnu, enda hækk­aði gengið í nóv­em­ber og des­em­ber síð­ast­liðnum.

Uppfært 10. mars: Setn­ingin um að laun á vinnu­stund hafi verið nær óbreytt í fyrra sam­kvæmt Hagstofu var tekin í burtu, þar sem Hagstofa hefur breytt töl­unum sínum. Samkvæmt nýjum tölum hafa laun á vinnu­stund hækkað um 5,6 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár