Verðbólgan komin upp í 6,2 prósent

Bens­ín­verð hefur hækkað um 20 pró­sent og verðið á hús­gögnum hefur hækkað um 12,6 pró­sent á milli ára. Nú er verð­bólgan komin upp fyrir sex pró­sent, í fyrsta skiptið í tæp tíu ár.

Mjólk, ostur og egg eru nú 7 prósentum dýrari en í fyrra.
Mjólk, ostur og egg eru nú 7 pró­sentum dýr­ari en í fyrra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 1,16 á milli jan­úar og febr­úar. Með því er verð­bólgan, sem mælist sem árs­hækkun vísi­töl­unnnar, komin upp í 6,2 pró­sent. Þetta kemur fram í nýj­ustu verð­lags­tölum Hagstofu, sem birt­ust í morgun.

Samkvæmt töl­unum hefur verðið á bens­íni og olíum hækkað mest allra vöru­flokka og er nú tæp­lega 20 pró­sentum dýr­ari en á sama mán­uði í fyrra. Þar á eftir kemur reiknuð húsa­leiga, sem tekur mið af fast­eigna­verði, en hún hefur hækkað um 16 pró­sent á einu ári.

Þætt­irnir sem höfðu mest áhrif á hækkun verð­bólg­unnar á milli jan­úar og febr­úar voru hins vegar hús­gögn og heim­il­is­bún­aður, sem eru 12,6 pró­sent dýr­ari en í febr­úar í fyrra. Þessi verð­hækkun jók verð­bólg­una um 0,5 pró­sentu­stig.

Rekstur öku­tækja hefur einnig hækkað tölu­vert í verði, og er nú 10 pró­sentum dýr­ari en í fyrra. Þessi liður hafði einnig tölu­verð áhrif á verð­bólg­una, sem er 0,15 pró­sentu­stigum meiri vegna hans.

Ýmsar mat­vörur eru einnig byrj­aðar að hækka tölu­vert í verði. Þannig hefur verðið á mjólk, ostum og eggjum, auk feit­metis og kjöts hækkað um meira en sjö pró­sent á milli ára. Heilt yfir hafa mat­vörur hækkað um 4,3 pró­sent í verði á síð­ustu 12 mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár