Verðbólgan komin upp í 6,7 prósent

Ekkert lát virð­ist vera á verð­hækk­unum, en vísi­tala neyslu­verðs mæld­ist 6,7 pró­sentum hærri í mars heldur en í sama mán­uði fyrir ári síðan. Nær allir vöru­flokkar hafa hækkað í verði, en þyngst vega þó verð­hækk­anir á hús­næði, bens­íni og olíum.

Bensín og olíur hafa nú hækkað um tæpan fjórðung í verði á síðustu tólf mánuðum.
Bensín og olíur hafa nú hækkað um tæpan fjórð­ung í verði á síð­ustu tólf mán­uðum. Mynd: Pexels

Almennt verð­lag hefur hækkað um 6,7 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum hér­lendis, sam­kvæmt nýbirtum tölum Hagstofu um vísi­tölu neyslu­verðs. Þetta er mesta verð­bólgan sem mælst hefur frá árinu 2010.

Verð­bólgan hefur verið á mik­illi upp­leið síð­ustu mán­uði, en hún hefur nú hækkað á milli mán­aða í níu mán­uði sam­fleytt. Lengst af hefur þar hús­næð­is­verð vegið þyngst í þeim mæl­ingum, en á síð­ustu mán­uðum eru þó umtals­verðar verð­hækk­anir byrj­aðar að mæl­ast í fleiri vöru­flokkum.

Ef hús­næð­islið­ur­inn er tal­inn frá væri verð­bólgan hér á landi um 4,6 pró­sent, en hús­næð­islið­ur­inn, sem er met­inn út frá þriggja mán­aða með­al­tali hús­næð­is­verðs, er nú 17 pró­sentum hærri en í sama mán­uði í fyrra.

Bensín og olíur hafa hins vegar hækkað mest í verði af öllum vöru­flokkum, en hann er nú 24 pró­sentum dýr­ari en í fyrra. Einnig hefur rekstur öku­tækja hækkað um 13 pró­sent og hús­gögn og heim­il­is­bún­aður orð­inn 12 pró­sentum dýr­ari. Matvörur hafa svo hækkað um 6 til átta pró­sent.

Líkt og myndin hér að ofan sýnir jókst hlut­deild hús­næð­islið­ar­ins og olíu­verðs í verð­bólgu­mæl­ingum á seinni hluta síð­asta árs. Það sem af er ári hefur hlut­deild þess­ara tveggja þátta, sem er nú yfir 50 pró­sent, hald­ist nokkuð stöðug. Á sama tíma hafa aðrir vöru­flokkar, líkt og mat­vara, byrjað að hækka hratt í verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár