Ekki einungis hægt að vísa ábyrgð á launafólk

Katrín Jak­obs­dóttir segir atvinnu­líf og stjórn­völd bera mikla ábyrgð á brátt­unni við verð­bólg­una og að ekki sé hægt að vísa ábyrgð­inni ein­göngu á launa­fólk í kom­andi kjara­samn­ingum.

Í ávarpi sínu fór Katrín yfir þann lærdóm sem hægt er að draga af kórónuveirufaraldrinum, meðal annars að samheldni samfélagsins hafi reynst okkar mestu verðmæti.
Í ávarpi sínu fór Katrín yfir þann lær­dóm sem hægt er að draga af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, meðal ann­ars að sam­heldni sam­fé­lags­ins hafi reynst okkar mestu verð­mæti. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ávarp­aði Við­skipta­þing í dag í fyrsta sinn í tvö ár. Þar sagði hún atvinnu­líf og stjórn­völd bera mikla ábyrgð á bar­átt­unni gegn verð­bólg­unni og að ekki væri ein­göngu hægt að vísa ábyrgð á launa­fólk í kom­andi kjara­samn­ingum ef það fengi að horfa upp á him­in­háar launa­greiðslur til topp­anna eða him­in­háar arð­greiðslur til eig­enda fyr­ir­tækja.

[links]Í ávarpi sínu fór Katrín yfir þann lær­dóm sem hægt er að draga af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, meðal ann­ars að sam­heldni sam­fé­lags­ins hafi reynst okkar mestu verð­mæti. Við nýjar áskor­anir þyrftum við að reiða okkur á þessa sömu sam­heldni.

Í bar­átt­unni gegn verð­bólg­unni verði allir að leggja sitt af mörk­unum, og atvinnu­lífið geti stutt við þetta verk­efni með sinni fram­göngu. Stjórn­völd muni svo sann­ar­lega leggja sitt af mörkum með því að fylgja eftir þeirri lang­tíma­sýn á hús­næð­is­mark­að­inn sem kynnt var í gær.

Íslenskukennslu á vinnutíma

Þá tók Katrín sér­stak­lega upp mál­efni inn­flytj­enda á íslenskum vinnu­mark­aði og sagði inn­flytj­endur hátt í 20 pró­sent íbúa á Íslandi og atvinnu­þátt­taka þeirra væri með því mesta sem ger­ist. Það væri skylda okkar að virkja þau til þátt­töku í sam­fé­lag­inu og ein mik­il­væg­asta leiðin til þess er að tryggja þeim íslensku­kennslu, til dæmis á vinnu­tíma.

Að lokum ræddi hún lofts­lags­vána, sem hvergi hafi farið þrátt fyrir heims­far­aldur og stríð í álf­unni. Stjórn­völd hafi í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins kynnt enn metn­að­ar­fyllri mark­mið en áður. Til þess að þau náist þurfi öll að leggja sitt af mörkum og þátt­taka atvinnu­lífs­ins í þessu verk­efni geti skipt sköpum fyrir fram­tíð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár