Intenta segist í stakk búið til að taka við verkefnum sem Capacent sinnti áður

Ingvi Þór Elliða­son, ráð­gjafi og fram­kvæmda­stjóri Intenta, sem fyrr­ver­andi starfs­menn Capacent stofn­uðu skömmu fyrir gjald­þrot fyr­ir­tæk­is­ins, segir Intenta með þekk­ingu og getu til að taka við verk­efnum sem Capacent sinnti áður.

Nýtt ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki, sem fyrr­ver­andi starfs­menn Capacent á Íslandi stofn­uðu snemma í síð­asta mán­uði eftir að ljóst var orðið að Capacent var á leið í þrot, seg­ist í stakk búið til þess að taka við hluta þeirra verk­efna sem Capacent áður sinnti fyrir við­skipta­vini sína.

Fyr­ir­tækið heitir Intenta og er ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki með „skýran fókus á við­skipta­greind, rekstr­ar­ráð­gjöf og stefnu­mótun á staf­rænni veg­ferð“ eins og Ingvi Þór Elliða­son, ráð­gjafi og fram­kvæmda­stjóri Intenta, orðar það í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fjallað var um stofnun félags­ins á vef Frétta­blaðs­ins í síð­ustu viku og þar haft eftir Ingva að á næstu dögum myndi skýr­ast hvernig starf­sem­inni yrði háttað. Kjarninn spurði hvort það hefði eitt­hvað skýrst nú.

Ingvi Þór segir í svari sínu að Intenta sé enn að stíga sín fyrstu skref, en þar starfi nú þegar níu ráð­gjafar sem hafi mikla reynslu af ráð­gjafa­þjón­ustu á íslenskum mark­aði.

Spurður hvort Intenta muni reyna að taka við verk­efnum sem Capacent fékkst áður við segir Ingvi að fyr­ir­tækið hafi „vissu­lega getu og þekk­ingu til að taka við sumum þeirra verk­efna sem Capacent sinnti áður.“

„Hvort svo verður er í höndum við­skipta­vina,“ bætir Ingvi Þór við, en Intenta er ekki eina fyr­ir­tækið sem er að verða til eftir gjald­þrot Capacent á Íslandi.

Við­skipta­blaðið greindi frá því í gær að Snorri Jak­obs­son, sem var for­stöðu­maður grein­ing­ar­deildar Capacent, væri að stofna eigið félag um vinnu sína og hefði að eigin sögn þegar tryggt sér við­skipti flestra þeirra sem grein­ing­ar­deild Capacent áður þjón­u­staði.

Capacent reis á rústum gamla Capacent 2010

Ingvi Þór, sem nú leiðir Intenta, var sjálfur stjórn­andi Capacent á árum áður. Á því skeiði, eða árið 2010, varð gamla Capacent gjald­þrota og námu kröfur í bú félags­ins alls tæpum 1,8 millj­arði króna. Langstærstur hluti krafna var vegna banka­láns í erlendri mynt sem slegið var fyrir hrun til þess að fjár­magna útrás til hinna Norð­ur­land­anna.

Stofnað var nýtt félag á grunni þess gamla, sem var til að byrja með í fullri eigu starfs­manna. Það félag sendi frá sér til­kynn­ingu um gjald­þrot 28. maí og nú er Intenta að rísa úr ösku þess, en það var stofnað þegar ljóst þótti í hvað stefndi hjá Capacent á Íslandi. Fram kom í frétt Vísis um stofnun Intenta í síð­ustu viku að stofn­gögnum hefði verið skilað inn 8. maí.

„Eftir þrot­lausa vinnu síð­ustu vikur við að bjarga félag­inu þar sem starfs­menn lögð­ust á eitt er staðan því miður sú að rekstr­ar­grund­völlur félags­ins er erf­iður og erfitt að segja til um hversu hratt veru­legur bati verður þar á. Stjórn félags­ins hefur af þessum sökum í dag óskað eftir gjald­þrota­skiptum frekar en að freista þess að halda áfram rekstri með óhjá­kvæmi­legri skulda­söfnun,“ sagði í til­kynn­ingu frá Capacent á Íslandi 28. maí. Á fimmta tug starfs­manna störf­uðu hjá fyr­ir­tæk­inu.

Gjaldþrotið á Íslandi sögð arðsöm langtímaákvörðun fyrir hluthafa Capacent ytra

Capacent á Íslandi var í meiri­hluta­eigu Capacent Holding AB í Svíþjóð og átti í sam­starfi við aðskildar rekstr­ar­ein­ingar undir sama nafni í Svíþjóð og Finn­landi. Þær starfa áfram.


Capacent Holding AB er skráð á hluta­bréfa­markað í Stokk­hólmi og í til­kynn­ingu sænska félags­ins til kaup­hallar vegna gjald­þrots íslenska dótt­ur­fé­lags­ins sagði að upp­haf þessa árs hefði sýnt að ekki væri útlit fyrir að við­snún­ingur yrði á rekstr­inum hjá Íslandi, sem skilað hefði tapi eftir skatta í fyrra. Því hefði ákvörðun um að óska eftir gjald­þrota­skiptum fyrir Capacent á Íslandi verið tekin.

Edvard Björken­heim for­stjóri félags­ins segir í til­kynn­ing­unni að þegar horft sé fram­hjá ein­skiptis­kostn­aði við afskrift eign­ar­innar í íslenska dótt­ur­fé­lag­inu, komi ákvörð­unin til með að skila hlut­höfum Capacent Holding auk­inni arð­semi af hverjum hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár