Telur rétt að skoða Félagsdómsmál ef Samtök atvinnulífsins segja upp lífskjarasamningnum

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar segir að Samtök atvinnu­lífs­ins grípi til tækni­legra útúr­snún­inga þegar þau segi for­sendur lífs­kjara­samn­inga brostnar og telur rétt að skoða að vísa upp­sögn samn­inga til Félags­dóms, ef af þeim verður.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

„Raun­veru­legar ástæður þess að Samtök atvinnu­lífs­ins sækj­ast nú eftir að snúa sig út úr gild­andi kjara­samn­ingi koma eig­in­legum, umsömdum for­sendum samn­ings­ins ekk­ert við,“ ritar Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar í grein á vef Frétta­blaðs­ins.



Þar lýsir hún þeirri skoðun sinni að fari svo að aðild­ar­fyr­ir­tæki SA kjósi að segja upp lífs­kjara­samn­ingum, sem um samd­ist á vor­mán­uðum 2019, sé rétt að skoða að vísa slíkri upp­sögn til Félags­dóms, þar sem skorið verði úr um lög­mæti hennar.[links]

Hún segir SA stíga fram til upp­sagnar á gerðum kjara­samn­ingum „með klækja­brögð, óheil­indi og tæki­fær­is­mennsku að vopni“ og sé að nota tækni­at­riði til þess að segja for­sendur kjara­samn­inga brostnar, en í yfir­lýs­ingu á vef SA í gær sagði að ljóst væri að til­tekin tíma­sett vil­yrði í yfir­lýs­ingu stjórn­valda frá 3. apríl 2019 hefðu ekki gengið eftir og að það veitti báðum samn­ings­að­ilum heim­ild til að lýsa því yfir að for­sendur kjara­samn­inga hafi brostið.



Lof­orða­pakki stjórn­valda, þar sem aðal­lega stendur út af lof­orð um tak­mörkun á 40 ára verð­tryggðum lánum, er ein af þremur for­sendum sem bæði SA og ASÍ mega nota til að segja upp lífs­kjara­samn­ing­unum.

Hinar tvær snúa að um vaxta­lækk­unum og kaup­mátt­ar­aukn­ingu og ljóst er að vextir hafa lækkað og kaup­mátt­ar­aukn­ing átt sér stað síðan samn­ing­arnir voru und­ir­rit­aðir, þrátt fyrir að blikur séu á lofti um þróun kaup­máttar almenn­ings vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Sólveig Anna segir í grein sinni að bann við 40 ára verð­tryggðum lánum sé „atriði sem stjórn­völd lof­uðu að beiðni verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, ekki atvinnu­rek­enda“ og því sé meintur for­sendu­brestur varð­andi það verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að skera úr um, en ekki atvinnu­rek­enda. „Enn fremur liggur fyrir að frum­varp er í smíðum sem full­nægja mun umræddu lof­orði líkt og for­seti ASÍ lýsti í fréttum í gær­kvöldi,“ bætir hún við í grein sinni.

Hefur rætt málið við aðra forystumenn innan ASÍ

„Það er merki­legt að verða vitni að þessu, þessum blekk­ingum,“ segir Sólveig Anna í sam­tali við Kjarnann.

Spurð hvort hún hafi viðrað þá skoðun sína að rétt sé að fara með upp­sögn samn­ing­anna til Félags­dóms við aðra for­ystu­menn innan ASÍ segir hún að það hafi hún gert og verið sé að skoða málið, en í ljós á eftir að koma hvort fyr­ir­tækin innan SA vilja segja samn­ing­unum upp.

Hún segir að upp­sögn kjara­samn­ing­anna myndi koma verst niður á þeim minni­hluta starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði sem séu á stríp­uðum töxtum.

„Það er fólkið sem þarf mest á því að halda að fá þessar hóf­stilltu hækk­anir sem samið var um. Þetta er fólkið sem fer með allar sínar krónur beint út í nærum­hverfið og eyðir þeim öllum til að örva hér hag­vöxt­inn,“ segir Sólveig Anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár