Talsvert fleiri í tveimur eða fleiri störfum hér á landi

Mun hærra hlut­fall starf­andi fólks gegna tveimur eða fleiri störfum hér á landi en í öðrum Evr­ópu­ríkjum. Jafn­framt vinna fleiri Íslend­ingar langar vinnu­vikur eða alls 18 pró­sent lands­manna.

Að jafnaði eru konur líklegri en karlar til að gegna fleiri en einu starfi.
Að jafn­aði eru konur lík­legri en karlar til að gegna fleiri en einu starfi. Mynd: Pexels

Íslend­ingar vinna að jafn­aði meira en aðrar Evr­ópu­þjóðir. Hvergi ann­ars staðar í Evrópu er hærra hlut­fall starf­andi fólks í fleiri en einu starfi eða alls 10,7 pró­sent í fyrra. Þá vinna fleiri Íslend­ingar langar vinnu­vikur á miðað við önnur Evr­ópu­lönd, fyrir utan Tyrkland, og vinna einnig oftar á kvöldin utan hefð­bund­ins vinnu­tíma. Þetta kemur fram í evr­ópsku vinnu­mark­aðs­rann­sókn­inni.

Ekki nóg að horfa eingöngu til efnahagslegra þátta þegar meta á velsæld

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur birt

skýrslu

starfs­hóps um til­lögur að mæli­kvörðum um hag­sæld og lífs­gæði hér á landi. Skýrslan er hluti af mark­miðum rík­i­s­tjórn­ar­innar um að öðl­ast betri skiln­ing á vel­sæld, vel­megun og félags­legum fram­förum. Hug­myndin er að með skil­virk­ari söfnun, grein­ingu og fram­setn­ingu á gögnum sem mæla hag­sæld og lífs­gæði geti lönd tryggt og aukið vel­sæld allra í sam­fé­lag­inu.

Starfs­hóp­ur­inn lagði til 39 mæli­kvarða um vel­sæld og lífs­gæði, þar á meðal eru atvinnu­mæli­kvarðar. Í skýrsl­unni segir að jafn­vægi milli vinnu og einka­lífs sé lyk­il­þáttur í vel­sæld fólks og fjöl­skyldna. Of lítil vinna hafi bein áhrif á tekjur heim­il­is­ins og mögu­leika fólks á að njóta góðra lífs­kjara en of mikil vinna þrengir að tíma heim­il­is­ins og getur haft áhrif á heilsu og líðan og þannig dregið úr sam­veru og gæða­stundum.

Konur líklegri til gegna tveimur eða fleiri störfum

Í nið­ur­stöðum evr­ópsku vinnu­mark­aðs­rann­sókn­ar­innar kemur fram að í fyrra var Ísland það land í Evrópu þar sem hæst hlut­fall starf­andi fólks var í meira en einu starfi eða alls 10,7 pró­sent starf­andi fólks á aldr­inum 20 til 64 ára. Hlut­fallið hækk­aði milli 2010 og 2016, úr 9,3 pró­sent að jafn­aði í 12,3 pró­sent. Þá eru konur lík­legri en karlar til að vinna tvö eða fleiri störf.

Í skýrsl­unni segir að ýmsar ástæður séu fyrir því að fólk vinnur fleiri en eitt starf. Hin aug­ljósa ástæða sé að tekjur fólks nægja ekki fyrir útgjöldum en einnig megi ætla að fag­legur áhugi eða aðrar ástæður búi að baki í ein­hverjum til­fellum.

Tæplega fimmtungur vinnur langar vinnuvikur

Þá er hlut­fall fólks sem vinnur langa vinnu­viku, sem skil­greind er sem 49 tímar á viku eða meira, hér á landi hátt á meðal Evr­ópu­þjóða. Árið 2018 var Ísland með annað hæsta hlut­fall starf­andi fólks sem vann langar vinnu­vikur að jafn­aði, tæp 18 pró­sent.

Jafn­framt er safnað upp­lýs­ingum um hve oft fólk vinnur utan hefð­bund­ins vinnu­tíma eða heiman frá sér í evr­ópsku vinnu­mark­aðs­rann­sókn­inni. Um er að ræða tvo hópa, í fyrsta lagi fólk sem gerir þetta venju­lega( til dæmis vakta­vinnu­fólk á kvöldin) og í öðru lagi fólk sem vinnur stundum eftir vinnu en er ann­ars í hefð­bundnu dag­vinnu­starfi. 

Árið 2018 var hlut­fall starf­andi sem vann stundum á kvöldin það hæsta í Evrópu, 43,5 pró­sent, og hlut­fallið sem vann stundum heima hjá sér það næst hæsta, eða 26,5 pró­sent.

Í skýrsl­unni segir að æski­legt væri að fella mæl­ingar á tíðni til­fallandi kvöld- og helg­ar­vinnu og vinnu á heim­ili saman í mæl­ingu á þessu rofi marka vinnu og heim­il­is­lífs.

Safna ætti upplýsingum um hvort að vinna komi niður á einkalífi

Langir vinnu­tímar og vinnu­vikur þrengja að þeim tíma sem fólk hefur til að sinna öðrum hliðum lífs síns, svo sem fjöl­skyldu, heim­il­is­haldi, félags­legum tengslum og áhuga­málum. Í skýrsl­unni segir að jafn­vægi milli vinnu og einka­lífs sé lyk­il­þáttur í vel­sæld fólks. Hér á landi er hins vegar ekki safnað upp­lýs­ingum um sam­spil vinnu og einka­lífs með reglu­bundnu milli­bili og telja skýrslu­höf­undar fulla ástæða til að huga að bættri gagna­öflun á því sviði.

Það mætti til dæmis gera með því að safna upp­lýs­ingum um hversu algengt er að langur vinnu­tími komi niður á einka­lífi eða hversu oft fólk komi of þreytt heim úr vinnu til að sinna þeim verk­efnum sem það þarf að sinna á heim­il­inu. Þá væri mjög til bóta sam­kvæmt skýrslu höf­undum ef evr­ópska tíma­rann­sóknin (European Time Use Survey) yrði inn­leidd á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár