Svona er nýja tveggja metra reglan

Hvernig verður tveggja metra reglan útfærð þegar 200 í stað 50 mega koma saman eftir helgi þegar þriðja og stærsta skrefið í aflétt­ingu tak­mark­ana á sam­komum verður tekið?

Íslendingar voru flestir fljótir að temja sér tveggja metra regluna. Ennþá skal gera þeim sem það kjósa að halda tveggja metra fjarlægð.
Íslend­ingar voru flestir fljótir að temja sér tveggja metra regl­una. Ennþá skal gera þeim sem það kjósa að halda tveggja metra fjar­lægð. Mynd: EPA

Sótt­varna­læknir segir að aflétt­ing tak­mark­ana í skrefum, meðal ann­ars með opnun sund­lauga, virð­ist ekki hafa leitt til aukn­ingar á sjúk­dómstil­fellum. Þriðja skrefið í aflétt­ingu verður tekið á mánu­dag, 25. maí. Það er stórt miðað við fyrri skref og fyrir utan að fjöldi þeirra sem koma má saman fer úr 50 í 200 og opna megi lík­ams­rækt­ar­stöðvar, skemmti­staði og krár að nýju, þá verða breyt­ingar á tveggja metra regl­unni.

Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis sem liggur til grund­vallar breyt­ingum á sam­komu­banni er aug­lýstar voru í dag, segir að hug­myndin sé að sett verði regla sem er svipuð reglu er varðar aðgengi fatl­aðs fólks að ýmissi þjón­ustu. Sem sagt, að gert verði ráð fyrir að ein­stak­lingar, sér­stak­lega þeir sem við­kvæmir ery, þurfi meira pláss en aðrir og að einnig geti reglan verið val fólks. „Þannig má fólk sitja eða standa þétt en bjóða þarf þeim sem það vilja að halda tveggja metra fjar­lægð,“ stendur í minn­is­blaði Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis.

Eftir að þriðja skrefið verður tekið eftir helgi er fólk þó áfram hvatt til þess að við­halda tveggja metra fjar­lægð í sam­skiptum við aðra „eftir því sem aðstæður leyfa“ en frá og með mánu­deg­inum verður fram­kvæmd regl­urnar hins vegar breytt nokkuð. Horft er til þess að vernda þá sem eru við­kvæmir með því að skapa þeim sem það kjósa aðstæður til að við­halda tveggja metra fjar­lægð­ar­reglu. Þannig verði til dæmis á veit­inga­stöðum, í leik­húsum og bíó­sölum boðið upp á að minnsta kosti nokkur sæti sem geri þetta kleift.

Í aug­lýs­ing­unni segir að í rýmum sem gert er ráð fyrir að almenn­ingur eigi aðgang að, hvort sem er án skil­yrða eða að upp­fylltum skil­yrðum, svo sem með greiðslu aðgangs­gjalds eða vegna vinnu­sam­bands, „skal leit­ast við að bjóða ein­stak­lingum að halda tveggja metra fjar­lægð frá öðrum eins og kostur er“.

[links]Svo segir: „Þar sem veitt er lög­bundin þjón­usta eða almenn­ingur á ekki kost á öðru en að mæta skal vera unnt að tryggja þeim sem það kjósa að halda tveggja metra fjar­lægð frá öðrum.“ Undir rými í þessum skiln­ingi falla meðal ann­ars: Versl­anir, veit­inga­staðir, sund- og bað­staðir, lík­ams­rækt­ar­stöðvar, íþrótta­mann­virki, heil­brigð­is­stofn­anir, vinnu­staðir, almenn­ings­sam­göngur, leik- og bíó­hús og mót­tökur stofn­ana og fyr­ir­tækja.

Frá upp­hafi COVID-19 far­ald­urs­ins hér á landi hafa greinst smit hjá rúm­lega 1.800 ein­stak­lingum. Und­an­farið hefur nýsmitum fækkað veru­lega og hafa aðeins fimm ein­stak­lingar greinst það sem af er maí­mán­uði.

Tak­mark­anir á sam­komum vegna yfir­stand­andi far­ald­urs COVID-19 voru fyrst settar 13. mars og síðan hertar þann 24. sama mán­aðar. Samkvæmt aug­lýs­ingu frá 24. mars áttu tak­mark­an­irnar að standa til 12. apríl. Sótt­varna­læknir sendi minn­is­blað til ráð­herra 1. apríl þar sem lagt var til að tak­mörk­unum á sam­komum yrði fram­haldið til 4. maí og voru þær til­lögur stað­festar.

Í dag hafa 1.803 ein­stak­lingar greinst með COVID-19 hér á landi. Af þeim hafa 115 lagst inn á sjúkra­hús, 30 á gjör­gæslu­deild og 18 hafa þurft á aðstoð önd­un­ar­véla að halda. Tíu hafa lát­ist. Nýsmitum hefur hins vegar fækkað veru­lega á und­an­förnum dögum og hafa ein­ungis fimm ein­stak­lingar greinst sem af er maí mán­uði.

Fyrsta aflétt­ing á sam­komu­tak­mörk­unum var gerð 4 maí sem ekki virð­ist hafa leitt til aukn­ingar á sjúk­dómstil­fellum, segir í minn­is­blaði sótt­varna­læknis. Önnur aflétt­ing var gerð 18. maí en þá voru sund­laugar opn­aðar með 50 pró­sent leyfi­legum hámarks­fjölda gesta og næsta aflétt­ing tak­mark­ana er svo fyr­ir­huguð 25. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár