Líkamsræktarstöðvar og krár opna á mánudaginn

Hvatt er í nýrri aug­lýs­ingu heil­brigð­is­ráð­herra til þess að við­halda tveggja metra nálægð­ar­mörkum eftir því sem kostur er.

Allt að 200 manns verður heim­ilt að koma saman næst­kom­andi mánu­dag í stað 50 nú, heim­ilt verður að opna lík­ams­rækt­ar­stöðvar með sömu tak­mörk­unum og gilda um sund- og bað­staði og öllum veit­inga­stöðum, þar með töldum krám og skemmti­stöðum, og einnig spila­sölum, verður heim­ilt að hafa opið til klukkan 23:00. Þetta kemur fram í nýrri aug­lýs­ingu Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mörkun á sam­komum vegna far­sóttar sem tekur gildi þann 25. maí næst­kom­andi.

Aug­lýs­ingin birt­ist á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag en hún gildir til 21. júní næst­kom­andi.

Hvatt er til þess að við­halda tveggja metra nálægð­ar­mörkum eftir því sem kostur er. Aug­lýs­ingin er í fullu sam­ræmi við til­lögur sótt­varna­læknis, að því er fram kemur í til­kynn­ingu heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Ráðherra kynnti ákvörðun sína um breyt­ingar á tak­mörkun á sam­komum á fundi rík­is­stjórnar í morgun.

Tilslakanir virðast ekki hafa leitt til fjölgunar sjúkdómstilfella

Með nýrri aug­lýs­ingu verður fram­kvæmd tveggja metra regl­urnar breytt nokkuð. Horft er til þess að vernda þá sem eru við­kvæmir með því að skapa þeim sem það kjósa aðstæður til að við­halda tveggja metra fjar­lægð­ar­reglu. Þannig verði til dæmis á veit­inga­stöðum, í leik­húsum og bíó­sölum boðið upp á að minnsta kosti nokkur sæti sem geri þetta kleift.

Á lík­ams­rækt­ar­stöðvum verður, líkt og á sund- og bað­stöðum, tak­mörkun á fjölda gesta sem mið­ast við að þeir séu aldrei fleiri en nemur helm­ingi af leyfi­legum hámarks­fjölda sam­kvæmt starfs­leyfi. Eins og fram kemur í aug­lýs­ing­unni verða áfram gerðar sömu kröfur um sótt­hreinsun og þrif almenn­ings­rýma og hingað til.

„Frá upp­hafi COVID-19 far­ald­urs­ins hér á landi hafa greinst smit hjá rúm­lega 1.800 ein­stak­lingum. Und­an­farið hefur nýsmitum fækkað veru­lega og hafa aðeins fimm ein­stak­lingar greinst það sem af er maí­mán­uði. Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis segir að þær til­slak­anir sem gerðar voru á sam­komu­tak­mörk­unum 4. maí síð­ast­lið­inn virð­ist ekki hafa leitt til fjölg­unar sjúk­dómstil­fella,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár