Spurt og svarað um hlutabætur – og dæmi um útfærslu

Hvenær á ég rétt á hluta­bótum og hversu háum greiðslum á ég rétt á ef starfs­hlut­fall mitt er minnkað? Eiga náms­menn og sjálf­stæðir atvinnu­rek­endur rétt á hluta­bótum?

Vegna þeirra þreng­inga sem blasa við vegna heims­far­ald­urs COVID-19 vilja íslensk stjórn­völd koma til móts við fyr­ir­tæki og laun­þega með hluta­bótum. Fyr­ir­tækjum í rekstr­ar­vanda verður þannig gert kleift að lækka starfs­hlut­fall hjá launa­fólki tíma­bundið og við­halda þar með ráðn­ing­ar­sam­bandi á meðan erf­ið­ustu mán­uð­irnir ganga yfir.

Hér að neðan má finna svör við algengum spurn­ingum sem kunna að vakna vegna breytts starfs­hlut­falls fólks á íslenskum vinnu­mark­aði. Upp­lýs­ing­arnar eru fengnar af vef stjórn­ar­ráðs­ins.

[adspot]

Hvað eru hlutabætur?

Hluta­bætur eru atvinnu­leys­is­bætur sem launa­fólk getur sótt um hjá Vinnu­mála­stofnun (https://www.vinnumalastofnun.is/) ef atvinnu­rek­andi hefur óskað eftir minnk­uðu starfs­hlut­falli vegna þess efna­hags­á­stands sem nú ríkir. Við­kom­andi fær þá greiddar hluta­bætur á móti launum hjá atvinnu­rek­anda.

Hvenær á ég rétt á hlutabótum?

Þegar starfs­hlut­fall er minnkað að frum­kvæði vinnu­veit­anda um a.m.k. 20% vegna sam­dráttar í starf­semi. Gert er að skil­yrði að laun­þegi haldi að lág­marki 25% starfs­hlut­falli hjá vinnu­veit­anda.

Ákveði laun­þegi sjálfur að minnka starfs­hlut­fall sitt á hann ekki rétt til hluta­bóta.

Ef starfshlutfall mitt var minnkað fyrir gildistöku laganna – á ég þá ekki rétt á bótum?

Ef skil­yrði lag­anna eru að öðru leyti upp­fyllt gilda þau jafn­framt um þá aðila sem fóru í minnkað starfs­hlut­fall að beiðni vinnu­veit­enda fyrir gild­is­töku lag­anna.

Hversu háum greiðslum á ég rétt á ef ég fer í minnkað starfshlutfall?

Þeir sem fara niður í allt að 25% starfs­hlut­fall munu eiga rétt á hluta­at­vinnu­leys­is­bótum á móti þeim launum sem þeir fá frá vinnu­veit­anda fyrir hluta­starfið.

Greiðsla til ein­stak­lings sem er færður úr 100% starfs­hlut­falli í 50% verður þá 50% af 456.404 krónum eða 228.202 krónur ásamt 11,5% mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð.

Þetta er með þeim fyr­ir­vörum að laun frá vinnu­veit­anda og greiðslur atvinnu­leys­is­bóta sam­an­lagt geta ekki numið hærri fjár­hæð en 700.000 krónum á mán­uði og skulu ekki nema hærri fjár­hæð en 90% af með­al­tali heild­ar­launa launa­manns.

Laun undir 400.000 krónum á mán­uði, miðað við fullt starf, skerð­ast ekki.

Heild­ar­laun ein­stak­lings geta ekki hækkað við það að fara í lægra starfs­hlut­fall.

Dæmi I: Launa­maður í 100% starfi hefur 400 þús­und krónur í mán­að­ar­laun en vinnu­veit­andi ákveður að minnka starfs­hlut­fall hans um 75% vegna erf­ið­leika í rekstri. Þessi ein­stak­lingur sækir um 75% atvinnu­leys­is­bætur hjá Vinnu­mála­stofnun og vinnu­veit­andi greiðir honum 25% laun. Hann fær því 100 þús­und frá vinnu­veit­anda og 300 þús­und frá Vinnu­mála­stofnun. Laun hans og atvinnu­leys­is­bætur munu þá sam­an­lagt jafn­gilda þeim launum sem hann hafði áður en hann fór í hið minnk­aða starfs­hlut­fall, eða 400 þús­und krónur á mán­uði.

[links]Dæmi II: Launa­maður í 100% starfi hefur 600 þús­und krónur í mán­að­ar­laun en vinnu­veit­andi ákveður að minnka starfs­hlut­fall hans um 50% vegna erf­ið­leika í rekstri. Þessi ein­stak­lingur sækir um 50% atvinnu­leys­is­bætur hjá Vinnu­mála­stofnun. Hann fær því 300 þús­und krónur frá vinnu­veit­enda og 228 þús­und frá Vinnu­mála­stofnun. Laun hans og atvinnu­leys­is­bætur munu þá sam­an­lagt nema 528 þús­und á mán­uði eða 84% af heild­ar­launum.

Dæmi III: Launa­maður í 100% starfi hefur 900 þús­und krónur í mán­að­ar­laun en vinnu­veit­andi ákveður að minnka starfs­hlut­fall hans niður í 60% vegna erf­ið­leika í rekstri. Þessi ein­stak­lingur sækir um 40% atvinnu­leys­is­bætur hjá Vinnu­mála­stofnun. Hann fær því 540 þús­und krónur frá vinnu­veit­enda og 160 þús­und frá Vinnu­mála­stofnun. Laun hans og atvinnu­leys­is­bætur munu þá sam­an­lagt nema 700 þús­und á mán­uði eða tæpum 80% af heild­ar­launum.

Dæmi IV: Launa­maður í 50% starfi hefur 250 þús­und krónur í mán­að­ar­laun en vinnu­veit­andi ákveður að minnka starfs­hlut­fall hans um helm­ing vegna erf­ið­leika í rekstri. Þessi ein­stak­lingur sækir um 25% atvinnu­leys­is­bætur hjá Vinnu­mála­stofnun. Hann fær því 125 þús­und frá vinnu­veit­enda og 114 þús­und frá Vinnu­mála­stofnun. Við þetta lækkar við­kom­andi í heild­ar­tekjum en ekki vegna skerð­ingar bóta - hann fær óskert 25% af hámarks­tekju­teng­ingu atvinnu­leys­is­bóta þar sem hann er með laun undir 400 þús­und krónum.

Ég er í hlutastarfi. Fæ ég greiðslur?

Já. Sömu reglur gilda um ein­stak­linga í hluta­starfi við útreikn­inga á hluta­at­vinnu­leys­is­bótum.

Ég er sjálfstætt starfandi. Fæ ég greiðslur?

Já, að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum – þ.e. sjálf­stætt starf­andi þurfa að hafa til­kynnt um veru­legan sam­drátt í rekstri og breyt­ingu á reikn­uðu end­ur­gjaldi til launa­greið­enda­skrár Skatts­ins.

Ég er námsmaður. Fæ ég greiðslur?

Já, náms­menn sem upp­fylla önnur skil­yrði ákvæð­is­ins eiga rétt til hluta­bóta.

Skerðist réttur minn til atvinnuleysisbóta ef ég fer á hlutabætur og missi vinnuna í kjölfarið?

Nei. Greiðslur hluta­at­vinnu­leys­is­bóta skerða ekki áunnin rétt­indi sam­kvæmt lögum um atvinnu­leys­is­trygg­ingar.

Verður eitthvað eftirlit með þeim fyrirtækjum sem nýta úrræðið?

Vinnu­mála­stofnun er heim­ilt að óska eftir upp­lýs­ingum og gögnum frá vinnu­veit­anda þar sem fram komi nán­ari rök­stuðn­ingur fyrir sam­drætti í starf­sem­inni, svo sem fækkun verk­efna eða sam­dráttur í þjón­ustu.

Ef fyrirtæki sem ég vinn hjá verður gjaldþrota í kjölfar minnkaðs starfshlutfalls á ég þá minni rétt til greiðslna úr Ábyrgðarsjóði launa?

Nei. Í til­vikum þegar starfs­hlut­fall launa­manns hefur verið lækkað að kröfu vinnu­veit­anda vegna sam­dráttar í starf­semi hans verður miðað við tekjur launa­manns­ins líkt og þær voru áður en starfs­hlut­fall var lækkað, við útreikn­ing á kröfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár