Spurt og svarað um laun í sóttkví

Hversu háar greiðslur fæ ég ef ég sæti sótt­kví og get ekki unnið? Fá sjálf­stætt starf­andi einnig greiðslur í sótt­kví? Hvaða rétt hef ég í sjálf­skip­aðri sótt­kví?

Íslensk stjórn­völd hafa í sam­starfi við Alþýðu­sam­band Íslands og Samtök atvinnu­lífs­ins tryggt að ein­stak­lingum í sótt­kví séu tryggð laun á meðan hún varir, en á þeim tíma eiga önnur rétt­indi, svo sem veik­inda­réttur sam­kvæmt kjara­samn­ingum ekki við.

Á þetta við um tíma­bilið 1. febr­úar 2020 til og með 30. apríl 2020 og er miðað við að þetta taki til þeirra sem ekki geta sinnt starfi sínu úr sótt­kví. Gert er ráð fyrir að atvinnu­rek­andi greiði laun­þega laun en geti svo gert kröfu á rík­is­sjóð til end­ur­greiðslu upp að vissri hámarks­fjár­hæð.

Það sama gildir um sjálf­stætt starf­andi ein­stak­linga hafi þeir þurft að leggja niður störf vegna sótt­kvíar á fram­an­greindu tíma­bili.

Hér að neðan er að finna svör við spurn­ingum sem kunna að vakna vegna launa í sótt­kví. Þau eru fengin af vef stjórn­ar­ráðs­ins.

[adspot]

Hversu háar greiðslur fæ ég ef ég sæti sóttkví og get ekki unnið?

Greiðslur taka mið af heild­ar­launum í þeim alm­an­aks­mán­uði eða alm­an­aks­mán­uðum sem ein­stak­lingur er í sótt­kví. Greiðsl­urnar verða aldrei hærri en 633.000 krónur á mán­uði, eða 21.100 krónur á dag.

Ég er sjálfstætt starfandi. Fæ ég greiðslur?

Já. Greiðslur til sjálf­stætt starf­andi ein­stak­linga sem sæta sótt­kví taka mið af 80% af mán­að­ar­legum með­al­tekjum árið 2019. Greiðslur nema að hámarki 633.000 krónur á mán­uði eða 21.100 krónur á dag.

Með­al­tekj­urnar taka mið af með­al­tali þess reikn­aða end­ur­gjalds sem mynd­aði stofn til trygg­inga­gjalds á tekju­ár­inu 2019.

Hvaða rétt hef ég í sjálfskipaðri sóttkví?

Ákvörðun um sótt­kví er tekin á grund­velli sótt­varn­ar­laga af við­eig­andi yfir­völdum. Ein­stak­lingar í sjálf­skip­aðri sótt­kví eiga ekki rétt á greiðslum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár