Miðstjórn ASÍ fer fram á rannsókn á ríkisstuðningi við fyrirtæki í faraldrinum

Mið­stjórn ASÍ krefst þess að með­ferð opin­berra fjár­muna í tengslum við stuðn­ings­úr­ræði til fyr­ir­tækja vegna áhrifa far­ald­urs­ins verði rann­sökuð. Dæmi séu um að fyr­ir­tæki séu „bein­línis að greiða út arð fyrir skattfé“.

Drífa Snædal er forseti Alþýðusambands Íslands.
Drífa Snædal er for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­stjórn Alþýðu­sam­band Íslands krefst þess að fram fari rann­sókn á með­ferð opin­berra fjár­muna í tengslum við stuðn­ings­úr­ræði til fyr­ir­tækja vegna efna­hags­legra áhrifa COVID- far­ald­urs­ins. Þetta kemur fram í ályktun sem mið­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í dag og segir þar að það sé „eðli­leg og rétt­mæt krafa að þessir þættir verði rann­sak­aðir“, enda hafi óheyri­legum fjár­munum verið veitt til stuðn­ings fyr­ir­tækja.

„Sum þeirra voru sann­ar­lega í brýnni þörf, en nú er að koma á dag­inn að önnur voru það ekki. Þá stendur upp á stjórn­völd að skýra hvers vegna skil­yrði voru sett gagn­vart sumum stuðn­ings­úræðum, en öðrum ekki og hvers vegna háar girð­ingar eru reistar gagn­vart ein­stak­lingum í neyð, en ekki fyr­ir­tækjum,“ segir í álykt­un­inni.

Í henni er bent á að Alþýðu­sam­bandið hafi farið fram á það, þegar „rík­is­hirsl­urnar voru opn­aðar til að veita fyr­ir­tækjum rík­is­stuðn­ing af óþekktri stærð“ í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins fyrir tæpum tveimur árum síðan, að reist yrðu skil­yrði fyrir slíkum stuðn­ingi.

„Meðal ann­ars lagði ASÍ áherslu á að fyr­ir­tækjum yrði gert skylt að nýta eigin bjargir áður en til stuðn­ings kæmi, að fyr­ir­tæki und­ir­gengjust skil­yrði um að greiða ekki út arð næstu tvö árin eftir fyr­ir­greiðslu eða nýta aðrar leiðir til að taka fé úr fyr­ir­tækj­unum og að fyr­ir­tæki eða eig­endur þeirra væru ekki skráð í skatta­skjól. Að auki krafð­ist ASÍ þess að laun æðstu stjórn­enda fyr­ir­tækja sem fengju aðstoð væru ekki óhóf­leg sam­an­borið við laun almenns starfs­fólks. Sem sagt, aðstoðin yrði neyð­ar­að­stoð en ekki til þess að fyr­ir­tækja­eig­endur gætu makað krók­inn,“ segir í ályktun mið­stjórn­ar­innar.

Mið­stjórn ASÍ bendir á að ein­ungis hafi verið reist skil­yrði fyrir stuðn­ingi á grund­velli laga um hluta­bótalið­ina svoköll­uðu, en að aðrir styrkir og stuðn­ingur til fyr­ir­tækja hafi að mestu eða öllu leyti verið án skil­yrða. „Þetta veldur því að nú eru dæmi um fyr­ir­tæki sem eru bein­línis að greiða út arð fyrir skattfé,“ segir í ályktun mið­stjórn­ar­innar.

Þar segir enn fremur að ströng skil­yrði séu sett við „allri aðstoð sem ein­stak­lingar njóta þegar í harð­bakk­ann slær“ og að það eigi jafnt við um atvinnu­leys­is­bætur, fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­lag­anna, almanna­trygg­ingar og önnur vel­ferð­ar­úr­ræði.

„En þegar kemur að fyr­ir­tækjum er nálg­unin önnur. Þótt enn sjái ekki fyrir end­ann á krepp­unni, ber­ast þegar fréttir af launa­hækk­unum æðstu stjórn­enda, bónus­kerfum og gríð­ar­legri arð­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja og ýmissa ann­arra fyr­ir­tækja,“ segir í ályktun mið­stjórn­ar­innar, sem telur sem áður segir bæði eðli­legt og rétt­mætt að stjórn­völd láti ráð­ast í rann­sókn á með­ferð opin­berra fjár­muna í tengslum við stuðn­ings­úr­ræði sem komið var á vegna far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár