Vill allt að 14 milljarða króna inn í LSR á fjáraukalögum svo ekki þurfi að skerða lífeyri

Ríkið samdi við opin­bera starfs­menn fyrir sex árum um breytt fyr­ir­komu­lag líf­eyr­is­mála. For­sendur sam­komu­lags­ins hafa breyst vegna þess að um tvö þús­und manns bætt­ust við sem þiggj­endur úr líf­eyr­is­auka­sjóði og fólk fór almennt að lifa lengur.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur farið þess á leit við fjár­laga­nefnd, fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar, að sú breyt­ing verði gerð á frum­varpi til fjár­auka­laga við aðra umræðu þess að fjár­heim­ildir verði hækk­aðar um allt að 14 millj­arða króna. Þessir fjár­munir eiga að renna í svo­kall­aðan líf­eyr­is­auka­sjóð innan A-deildar Lif­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR). Fáist ekki fram­lag úr rík­is­sjóði verða rétt­indi sjóðs­fé­laga lækkuð.

Í bréfi sem ráðu­neytið sendi fjár­laga­nefnd segir að verið sé að ljúka mati á end­an­legri fjár­þörf í þessu máli og mögu­legt sé að það þurfi ekki að nýta alla heim­ild­ina.

Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­auka­laga­frum­varpi þarf þegar að sækja næstum 75 millj­arða króna við­bót­ar­heim­ildir til að láta árið 2022 ganga upp í rík­is­rekstri. Þar munar lang­mestu um 37 millj­arða króna vegna end­ur­met­innar þarfar um vaxta­gjöld rík­is­sjóðs, sem eru til­komin vegna áhrifa verð­bólgu á verð­tryggðar skuldir rík­is­sjóðs.

[adspot]Þá eru óskað eftir 16,6 millj­arða króna við­bót­ar­heim­ildum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, að uppi­stöðu vegna auk­ins rekstr­ar­kostn­aðar heil­brigð­is­stofn­ana sem taka til sín 15 af þeim millj­örðum króna. Þá þarf að leggja tæp­lega 1,8 millj­arð króna til í umfram­út­gjöld vegna end­ur­greiðslna vegna kvik­mynda­gerð­ar.

Bara við­bót­ar­heim­ild­irnar vegna greiðslna í líf­eyr­is­auka­sjóð LSR hækka útgjöld rík­is­sjóðs á fjár­auka­lögum um tæp 19 pró­sent.

Samið um breytt fyrirkomulag 2016

Málið er flókið og á sér nokk­urra ára aðdrag­anda. Þann 19. sept­em­ber 2016 náð­ist sam­komu­lag milli opin­berra launa­greið­enda við BSRB, BHM og Kenn­ara­sam­band Íslands, heild­ar­sam­tök opin­berra starfs­manna, um breytt fyr­ir­komu­lag lif­eyr­is­mála. Einn liður í því sam­komu­lagi var að fella niður baká­byrgð rík­is­sjóðs á A-deild LSR, sem er langstærsta deildin innan líf­eyr­is­sjóðs­ins. Á móti voru fram­reikn­aðar skuld­bind­ingar metnar og sjóðnum tryggt fram­lag til að jafna áfallna stöðu deild­ar­innar, sem var nei­kvæð. Alls var um að ræða tíu millj­arða króna sem greiddir voru inn í deild­ina.

Samhliða var stofn­aður svo­kall­aður líf­eyr­is­auka­sjóður innan A-deild­ar­innar. Hann var fjár­magn­aður með 106,8 millj­arðar króna fram­lagi úr rík­is­sjóði. Það fram­lag end­ur­spegl­aði trygg­inga­fræði­legt mat á verð­mætti rétt­inda sem þurfti að greiða úr sjóðnum á þeim tíma sem sam­komu­lagið var gert. Auk þess voru 8,4 millj­arðar króna settir í sér­stakan vara­sjóð til að mæta mögu­legum kostn­aði vegna frá­vika frá þeim trygg­inga­fræði­legu for­sendum.

Ógjörningur að velta kostnaðinum á almenna sjóðsfélaga

Í frum­varp­inu sem varð að lögum var hópi sem greiddi ekki iðgjald til LSR á tíma­bil­inu júní 2016 til júní 2017 tryggður réttur á greiðslum úr líf­eyr­is­auka­sjóðnum ef þeir myndu hefja á ný greiðslur til sjóðs­ins eigi síðar en tólf mán­uðum eftir gild­is­töku lag­anna, eða til loka maí 2018.

Í ljós hefur komið að alls um 1.100 manns nýttu sér þessa leið á ofan­greindu tíma­bili, og hófu aftur að greiða til LSR til að fá þessar greiðslur. Enn liggur ekki fyrir hversu margir til við­bótar bætt­ust við frá jún­í­byrjun 2017 og fram til loka maí 2018 en talið er að það séu svipað margir. Í minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um málið, sem skilað var inn til fjár­laga­nefndar í síð­ustu viku, segir að trygg­inga­stærð­fræð­ingur LSR meti við­bót­ar­kostnað líf­eyr­is­auka­sjóðs­ins á bil­inu tíu til 14 millj­arðar króna.

[adspot]Í minn­is­blað­inu segir: „Að mati fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins er ógern­ingur að rétt­læta að kostn­aði vegna þessa van­mats verði velt yfir á almenna sjóð­fé­laga í LSR með því að skerða rétt­indi þeirra, sem er það sem van­matið óhjá­kvæmi­lega felur í sér fyrr eða síðar. Er því lagt til að í við­ræðum við heild­ar­sam­tök opin­berra starfs­manna verði tekið fram af hálfu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis að auknum skuld­bind­ingum vegna fjölg­unar umfram áður gefnar for­sendur [...] verði mögu­lega mætt með sér­stakri fjár­mögnun úr rík­is­sjóði. Sú afstaða sé hins vegar háð því að sam­komu­lag náist um aðra þætti.“

Lengri lífaldur gjörbreytir stöðunni

Ofan á þetta hafa for­sendur varð­andi lífslíkur breyst mikið. Jöfn ávinnsla líf­eyr­is­rétt­inda var upp­haf­lega stillt af miðað við lífslíkur á árunum fyrir 1996 þannig að 15,5 pró­sent iðgjald myndi standa undir jöfnum rétt­indum. Síðan hafa lífslíkur ein­fald­lega breyst umtals­vert til hins betra.

[links]Það þýðir á manna­máli að sjóðs­fé­lagar eru að lifa lengur og fá greitt úr líf­eyr­is­sjóði í fleiri ár en áður var reiknað með að þeir myndu fá slíkar greiðslur. Við það skap­ast gat.

Þessar breyt­ingar hafa enda haft mikil áhrif á skuld­bind­ingar A-deildar LSR síð­ustu þrjú ár og nemur hækkun heild­ar­skuld­bind­inga sjóðs­ins vegna lengri lífald­urs alls 162,7 millj­örðum króna.

Fyrir vikið er heild­ar­staða A-deild­ar­innar nei­kvæð, alls um 40 millj­arða króna í lok árs 2021. Það þýðir að 40 millj­arða króna vantar í sjóð­inn til að hann geti staðið við allar gerðar skuld­bind­ingar sínar eins og þær eru reikn­aðar út. Vert er að taka fram að LSR er stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins. LSR átti hreina eign upp á 1.347 millj­arða króna í lok síð­asta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár