Segir endurheimt raunlauna leiða af sér minni hagvöxt, meiri verðbólgu og hærri stýrivexti

Ef kjara­samn­ingar skila til baka þeim raun­launum sem tap­ast hafa vegna verð­bólgu telur Seðla­bank­inn að hag­vöxtur á næsta ári verði sá minnsti síðan 2002, ef frá eru talin sam­drátt­ar­árin í kjöl­far banka­hruns­ins og kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Í nýjasta riti Pen­inga­mála, sem birt var á mið­viku­dag, er sér­stök ramma­grein þar sem spáð er í hvað ger­ist ef kom­andi kjara­samn­ingar feli í sér meiri launa­hækk­anir en nú sé gert ráð fyrir í grunn­spá Seðla­bank­ans.

Í ramma­grein­inni segir að núgild­andi kjara­samn­ingar, sem und­ir­rit­aðir voru í apríl 2019, hafi skilað launa­fólki því að raun­laun hafi heilt yfir hækkað um 7,2 pró­sent og kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna á mann hafi hækkað um ríf­lega 13 pró­sent frá und­ir­ritun og fram á mitt ár 2022. Raunlaun hafa hins vegar gefið eftir und­an­farið og Seðla­bank­inn telur að ætla megi að þau hafi hækkað minna en lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ing­anna þar sem verð­bólga hefur verið langt umfram spár. „ Ummæli for­ystu­manna verka­lýðs­fé­laga und­an­farið virð­ast m.a. snúa að því að vinna upp þá hækkun raun­launa sem á vantar. Í ljósi þess að spenna er á vinnu­mark­aði og kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga hefur veikst gætu laun því hækkað nokkru meira á spá­tím­anum en núver­andi grunn­spá gerir ráð fyrir.“

Dregur upp svarta mynd ef endurheimta eigi raunlaunastig

Til að kanna hver áhrif þeirra launa­hækk­ana gætu orðið not­að­ist Seðla­bank­inn við hið svo­kall­aða DYNIMO-líkan sitt og gerði þar ráð fyrir að nafn­laun hækki um lið­lega fimm pró­sentu­stig meira á næsta ári „í þeirri við­leitni að end­ur­heimta sam­bæri­legt raun­launa­stig og var í upp­hafi árs­ins, áður en verð­bólgan tók að grafa undan kaup­mætti.“

[adspot]Því er gert ráð fyrir að laun hækki þá um ell­efu pró­sent á næsta ári í stað þeirra sex pró­senta sem grunn­spá Seðla­bank­ans reiknar með og sam­tals um 24 pró­sent á næstu þremur árum í stað 18 pró­sent.

Þetta telur Seðla­bank­inn að muni hækka jað­ar­kostnað fyr­ir­tækja tölu­vert meira en í grunn­spánni sem leiði til þess að þau bregð­ast „bæði við með því að ganga á hagn­að­ar­hlut­deild sína og hag­ræða í rekstri, m.a. með því að stytta vinnu­tíma starfs­fólks eða með upp­sögnum. Það dugar þó ekki til sam­kvæmt lík­an­inu og því bregð­ast þau einnig við með því að hækka afurða­verð sitt.“

Afleið­ingin yrði meðal ann­ars hæg­ari vöxtur á einka­neyslu, hag­vöxtur dregst saman, verð­bólga verður meiri og stýri­vextir hærri.

Sá minnsti frá 2002 utan hamfaratíma

Raunar segir Seðla­bank­inn að hag­vöxtur á næsta ári, sem yrði 1,75 pró­sentu­stigum minni á árinu 2023, yrði sá minnsti hér­lendis síðan 2002 ef frá eru talin sam­drátt­ar­árin í kjöl­far banka­hruns­ins og kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Seðla­bank­inn segir að þrátt fyrir lak­ari hag­vaxt­ar­horfur yrði verð­bólga samt sem áður meiri á spá­tím­anum, sem nær út árið 2025, en sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi grunn­spá. Til að tryggja að verð­bólgan verði í sam­ræmi við verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans til lengri tíma þyrfti auk þess að hækka stýri­vexti enn frekar, en þeir hafa nú þegar verið hækk­aðir tíu sinnum í röð og standa í sex pró­sentu­stigum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár