Ólga í Rúgbrauðsgerðinni

Allir þrír starfs­menn­irnir á skrif­stofu Kjara­fé­lags við­skipta­fræð­inga og hag­fræð­inga hafa sagt upp störfum hjá félag­inu. Vara­for­maður stjórn­ar­innar til­kynnti í yfir­lýs­ingu í dag að hún væri hætt í stjórn­inni vegna sam­starfsörð­ug­leika innan hennar.

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga er þriðja stærsta félagið innan vébanda Bandalags háskólamanna.
Kjara­fé­lag við­skipta­fræð­inga og hag­fræð­inga er þriðja stærsta félagið innan vébanda Banda­lags háskóla­manna. Mynd: Af vef Arkitektafélags Íslands

Allir þrír starfs­menn­irnir á skrif­stofu Kjara­fé­lags við­skipta­fræð­inga og hag­fræð­inga (KVH) hafa sagt upp störfum og munu láta af störfum á næstu vikum og mán­uðum. Frá þessu var greint í yfir­lýs­ingu frá vara­for­manni stjórnar félags­ins, Ástu Leon­hards­dóttur, sem birt­ist á vef KVH í dag.

Ásta sagði í þess­ari sömu yfir­lýs­ingu að upp­sagnir starfs­manna á skrif­stofu stétt­ar­fé­lags­ins mætti rekja til hnökra í sam­starfi stjórnar félags­ins og að brestir í sam­starfi stjórn­ar­innar hefðu haft afleið­ingar á skrif­stofu félags­ins sem skapað hefur „stig­vax­andi ókyrrð í starfs­ör­yggi grand­lausra starfs­manna þar“. Sjálf ætlar hún að hætta í stjórn­inni. Formaður stjórnar KVH er Stefán Þór Björns­son.

Starfs­menn­irnir á skrif­stofu félags­ins eru þrír tals­ins, fram­kvæmda­stjóri og tveir aðrir sér­fræð­ingar. Skrif­stofa KVH er með aðsetur á sama stað og Bandalag háskóla­manna (BHM) í Borg­ar­túni 6, í húsi sem gjarnan gengur undir nafn­inu Rúg­brauðs­gerðin frá fyrri tíð. Félags­menn KVH eru um 1.700 tals­ins og er félagið það þriðja stærsta innan BHM.

Segir rekstrarrof framundan hjá félaginu

„Nú er svo komið að allir starfs­menn á skrif­stofu KVH hafa sagt upp störfum. Sú þekk­ing sem býr í starfs­fólki skrif­stof­unnar mun á næstu dögum og vikum hverfa með brott­hvarfi þeirra. Er það mjög miður og er hér um altjón félags­ins að ræða. Komast hefði mátt hjá þess­ari stöðu en stjórn sneiddi hjá tæki­færum til þess þrátt fyrir við­vör­un­ar­merki í þá veru. Framundan er rekstr­ar­rof á skrif­stofu KVH,“ segir í yfir­lýs­ingu Ástu.

[adspot]

Þar segir einnig að hún sem kjör­inn full­trúi í stjórn KVH sé miður sín yfir því að „horfa á bak metn­að­ar­fullum og fag­legum sér­fræð­ingum félags­ins ganga út og hverfa til ann­arra starfa“.

Ásta seg­ist sjálf ætla að hverfa úr stjórn félags­ins í „von um að það verði til þess að auka sam­starfsvilja og virð­ingar innan stjórnar sem kunni að tak­marka það tjón sem þegar er orðið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár