Blaða- og fréttamenn í eina sæng

Á aðal­fundi Félags frétta­manna í gær var sam­ein­ing félags­ins við Blaða­manna­fé­lag Íslands sam­þykkt en aðal­fundur BÍ sam­þykkti sam­ein­ing­una í apríl.

Félagar í Blaða­manna­fé­lagi Íslands og félagar í Félagi frétta­manna, sem er stétt­ar­fé­lag frétta­manna á RÚV, hafa sam­þykkt að sam­eina félögin undir merkjum Blaða­manna­fé­lags Íslands. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri frétta­til­kynn­ingu frá BÍ og FF. Félags­menn hins nýja félags verða um 600 tals­ins en í BÍ voru um 550 félagar og í FF voru á sjötta tug félaga.

Með sam­ein­ing­unni verður stétt blaða- og frétta­manna á Íslandi sam­einuð í einu félagi en sam­ein­ingin mun taka gildi 1. júní. Sam­ein­ingin var sam­þykkt á aðal­fundi BÍ 28. Apríl og á aðal­fundi FF í gær­kvöldi.

„Á und­an­förnum árum hefur verið sótt að fag­legri blaða- og frétta­mennsku á Íslandi í síauknum mæli,“ er haft eftir Sigríði Hagalín Björns­dóttur, for­manns FF, í áður­nefndri til­kynn­ingu. „Blaða- og frétta­menn þurfa að þétta rað­irnar og standa saman gegn þeim ógnum sem steðja að stétt­inni. Með sam­ein­ingu Félags frétta­manna og Blaða­manna­fé­lags Íslands verða til öflug heild­ar­sam­tök blaða- og frétta­manna á Íslandi, sem tala máli okkar allra og berj­ast fyrir sam­eig­in­legum hags­munum og bættum starfs­kjörum stétt­ar­innar.“

Undir þetta tekur Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður BÍ. „Sam­ein­ing stétt­ar­innar í eitt öfl­ugt fag- og stétt­ar­fé­lag sendir sterk skila­boð út í sam­fé­lagið um mik­il­vægi fag­legrar blaða­mennsku á tímum þar sem sótt er að blaða­mennsku og fjöl­miðlum, hér sem ann­ars staðar.“

Haft er eftir Sigríði að fram undan séu stór verk­efni á miklum umbreyt­ing­ar­tímum þar sem mik­il­vægt sé að blaða­menn snúi bökum saman til að styrkja stoðir blaða­mennsku og berj­ast fyrir hags­munum stétt­ar­innar. Öflugt, sam­einað félag blaða­manna verður mik­il­vægur vett­vangur fyrir fag­legt starf og mun vinna að því að skapa grund­völl fyrir sterka, sjálf­stæða fjöl­miðla í rekstr­ar­um­hverfi sem er meira krefj­andi en nokkru sinni,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blaðamenn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár