Furðulegasta njósnamál Danmerkur

Í nóv­em­ber 1981 var danskur rit­höf­undur hand­tek­inn, grun­aður um njósnir. Eftir þrjá daga var honum sleppt en hefur aldrei verið hreins­aður af ásök­unum. Málið er nú, 41 ári síðar, komið til kasta Lands­réttar.

Við handtökuna tilkynnti lögreglan Arne Herløv Petersen að hann væri grunaður um njósnir fyrir Sovétríkin.
Við hand­tök­una til­kynnti lög­reglan Arne Herløv Petersen að hann væri grun­aður um njósnir fyrir Sov­ét­ríkin. Mynd: Javier Rincón on Unsplash

Þriðju­dags­kvöld eitt í nóv­em­ber 1981 sat danski rit­höf­und­ur­inn Arne Herløv Petersen í stof­unni á heim­ili sínu í Tryggelev á Langa­landi og horfði ásamt konu sinni á kvöld­fréttir danska sjón­varps­ins. Hús hjón­anna stendur inn­ar­lega í lok­aðri götu. Inn um glugg­ann barst hljóð frá bíl sem fór eftir göt­unni og sneri svo við. Hjónin töldu að bíl­stjór­inn hefði villst en þegar þau heyrðu að bíll­inn stopp­aði fyrir utan húsið stóð Arne upp úr sóf­anum og leit út. En í sama mund var hópur lög­reglu­þjóna kom­inn inn í húsið og Arne til­kynnt að hann væri hand­tek­inn, og eig­in­konan líka. „Og fyrir hvað“ spurði Arne og svarið var „fyrir njósnir“. Þau voru úrskurðuð í þriggja daga gæslu­varð­hald meðan lög­reglan rann­sak­aði íbúð­ar­húsið hátt og lágt og bar út fjöld­ann allan af kössum með bókum og skjölum. Þessi gögn ásamt afrit­unum af síma­hler­unum og upp­tökum úr hler­unar­út­bún­aði ætl­aði danska leyni­þjón­ustan PET að nota til að sýna að Arne hefði unnið fyrir sov­ésku leyni­þjón­ust­una KGB og fengið greitt fyrir, ásamt sígar­ettum og áfengi. Eig­in­kon­unni, sem aldrei var nafn­greind, var sleppt fljót­lega eftir hand­tök­una.

Hér má geta þess að mán­uði fyrir hand­tök­una hafði einum starfs­manni sov­éska sendi­ráðs­ins í Kaup­manna­höfn verið vísað úr landi. Hann var tal­inn hafa verið tengiliður sendi­ráðs­ins við Arne Herløv Petersen.

[adspot]Afkastamikill

Arne Herløv Petersen sem er fæddur árið 1943 lauk stúd­ents­prófi frá banda­rískum mennta­skóla og enn­fremur dönsku stúd­ents­prófi. Síðar lauk hann magister­prófi í sagn­fræði. Hann hefur frá unga aldri feng­ist við rit­störf, skrifað fjöl­margar skáld­sögur og gefið út 13 ljóða­bækur. Hann hefur enn­fremur þýtt fleiri en 500 banda­rískar skáld­sögur auk ljóða­þýð­inga úr ýmsum áttum.

Átti að breiða út jákvæð viðhorf til Sovétríkjanna

Eins og áður sagði til­kynnti lög­reglan Arne Herløv Petersen, við hand­tök­una, að hann væri grun­aður um njósnir fyrir Sov­ét­ríkin.

Gæslu­varð­halds­úr­skurð­ur­inn var kveð­inn upp á grund­velli greinar 108 í dönsku hegn­ing­ar­lög­unum, þessi grein er iðu­lega nefnd „milda njósn­a­laga­greinin“. Ákæru­valdið sagði Arne Herløv Petersen hafa, að beiðni KGB, safnað und­ir­skriftum og rekið áróður fyrir kjarn­orku­lausum Norð­ur­löndum. Fram kom að danska leyni­þjón­ustan hafi um tveggja ára skeið, frá 1979 og fram að hand­tök­unni, hlerað síma Arne Herløv Petersen. Starf hans hefði verið að breiða út jákvæðar skoð­anir um sov­ésk sjón­ar­mið og upp­lýsa sov­éska diplómata í sendi­ráði Sov­ét­ríkj­anna í Kaup­manna­höfn um til­tekna danska ein­stak­linga og skoð­anir þeirra. Arne Herløv Petersen sagð­ist fyrst og síð­ast hafa „rætt málið“ við sov­éska sendi­ráðs­menn, eins og hann komst að orði.

Sleppt án ákæru en þó talinn sekur

Eftir að hafa setið þrjá daga í gæslu­varð­haldi og mætt fyrir dóm­ara var Arne Herløv Petersen sleppt en jafn­framt sagt að hann væri áfram grun­aður. Nokkrum mán­uðum síðar, í apríl 1982, til­kynnti Ole Espersen dóms­mála­ráð­herra að fallið yrði frá ákæru en Arne Herløv Petersen væri þó áfram grun­aður um njósnir. Í yfir­lýs­ingu ráð­herr­ans kom fram að um væri að ræða svo­nefnt „til­talefrafald“ sem þýðir að við­kom­andi sé tal­inn sekur en sæti þó ekki ákæru. Í yfir­lýs­ingu ráð­herr­ans kom enn­fremur fram að hann teldi Arne Herløv Petersen „i prinsippet“ sekan. Áður en til hand­tök­unnar kom hafði dóms­mála­ráð­herra leitað álits rík­is­lög­manns, sem hafði í áliti sínu sagt að Arne Herløv Petersen hefði ekki skaðað danska hags­muni og ekki gert neitt ólög­legt. Ráðherra skip­aði þá leyni­þjón­ust­unni að hand­taka ekki Arne Herløv Petersen, þá skipun lét leyni­þjón­ustan sem vind um eyru þjóta og fór sínu fram.

En af hverju að telja mann­inn sekan en ákæra ekki? Hjá dóms­mála­ráð­herr­anum tog­uð­ust tvö sjón­ar­mið á, ann­ars­vegar álit rík­is­lög­manns og hins­vegar ákvörðun leyni­þjón­ust­unnar um hand­tök­una og harð­orðar yfir­lýs­ingar Kjeld Olesen utan­rík­is­ráð­herra um Arne Herløv Petersen.

Eftir að dóms­mála­ráð­herr­ann hafði veitt áður­nefnt til­talefrafald var Arne Herløv Petersen í sér­kenni­legri stöðu. Hann var tal­inn sekur án þess að hafa hlotið dóm og hafði því hvorki mögu­leika á að áfrýja né að krefj­ast bóta. Hann hefði gjarna viljað að mál sitt færi fyrir dóm­stóla, þar sem hann hefði, að eigin áliti, verið sýkn­aður.

Húðflúr á sálina

Í við­tali við danskt dag­blað lýsti Arne Herløv Petersen því að málið hefði haft þær afleið­ingar að hann væri með húð­flúr á sál­inni. Mannorð sitt hefði beðið hnekki, útgáfu­fyr­ir­tæki sitt sagt upp samn­ingum og les­endur, sumir hverjir, snúið við sér bak­inu.

Leyniþjónustan geymir enn gögnin

Gögnin sem danska leyni­þjón­ustan lagði hald á í nóv­em­ber 1981 eru enn í hennar vörslu. Arne Herløv Petersen hefur margoft, án árang­urs, farið fram á að fá eigur sínar til baka. Árið 1998 óskaði hann eftir að fá aðgang að þeim gögnum sem leiddu til hand­töku hans á sínum tíma. Níu árum síðar fékk hann send tvö skjöl og útskýr­ingar leyni­þjón­ust­unnar á töf­inni. Arne Herløv Petersen sagði í við­tali að þessi tvö skjöl væru ekki það sem hann hefði beðið um. Málið var fyrir mörgum árum rætt í þing­inu en það breytti engu. Árið 2012 kröfð­ust dönsku rit­höf­unda­sam­tökin þess, fyrir hönd Arne Herløv Petersen, að hann fengi öll gögn sín afhent. Allt kom fyrir ekki. Þess má geta að leyni­þjón­ustan afrit­aði dag­bækur Arne Herløv Petersen, án hans sam­þykkis, Rík­is­skjala­safnið gerði þær aðgengi­legar almenn­ingi. Það telur hann ganga gegn höf­und­ar­rétt­ar­lögum.

Kemur til kasta landsréttar

Í maí 2019 fékk danska rit­höf­unda­sam­bandið sam­þykkta gjaf­sókn til máls­höfð­unar gegn leyni­þjón­ust­unni vegna hand­tök­unnar og ólög­legs eft­ir­lits með Arne Herløv Petersen og Rík­is­skjala­safn­inu fyrir að gera dag­bæk­urnar, sem eru uppá 1400 síður, aðgengi­legar almenn­ingi. Lands­réttur tekur málið fyrir síðar á þessu ári.

Arne Herløv Petersen sem nú er að verða 79 ára býr enn í hús­inu í Tryggelev á Langa­landi. Í blaða­við­tali fyrir nokkru sagð­ist hann fyrir löngu kom­inn með nóg af þessu máli sem von­andi lyki sem fyrst. „Það hvarfl­aði ekki að mér þegar ég var hand­tek­inn 1981 að ég yrði aðal­per­sónan í því sem blaða­menn hafa kallað furðu­leg­asta njósn­a­mál í sögu Dan­merkur“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blaðamenn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár