Réttarhöld vegna morðsins á Khashoggi flutt til heimalandsins þar sem stjórnvöld fyrirskipuðu aftökuna

Rétt­ar­höldin vegna morðs­ins á sádi-arab­íska blaða­mann­inum Jamal Khas­hoggi verða flutt frá Tyrk­landi og til Sádi-Arabíu. Óttast er að mál­inu sé þar með lokið án þess að þeir sem fyr­ir­skip­uðu morðið verði látnir sæta nokk­urri ábyrgð.

Blaðamaðurinn Jamal Khashoggi sást aldrei aftur eftir að hann gekk inn í sendiráð Sádi-Arabíu 2. Október 2018.
Blaða­mað­ur­inn Jamal Khas­hoggi sást aldrei aftur eftir að hann gekk inn í sendi­ráð Sádi-Arabíu 2. Október 2018. Mynd: EPA

Dóm­stólar í Tyrk­landi hafa sam­þykkt að flytja eigi rétt­ar­höld vegna morðs­ins á sádi-arab­íska blaða­mann­inum Jamal Khas­hoggi, sem myrtur var í sádi-arab­íska sendi­ráð­inu í Istanbúl árið 2018, til Sádi-Arabíu. Mann­rétt­inda­sam­tök telja þannig alla von úti um að rétt­læti náist vegna máls­ins.

Blaða­mað­ur­inn Jamal Khas­hoggi sást aldrei aftur eftir að hann gekk inn í sendi­ráð Sádi-Arabíu 2. Október 2018 þangað sem hann var mættur til þess að sækja papp­íra svo hann gæti kvænst tyrk­neskri unn­ustu sinni, Hatice Chengiz. Síðar kom í ljós að hann hafði verið myrtur og sund­ur­bút­aður í sendi­ráð­inu og að morðið hafi jafn­vel verið fyr­ir­skipað af Mohammed bin Salman, krón­prinsi Sádi-Arabíu, en Khas­hoggi hafði flúið heima­landið árið 2017 og meðal ann­ars skrifað greinar fyrir Washington Post þar sem hann gagn­rýndi aukna vald­boðs­stefnu krón­prins­ins. Lík blaða­manns­ins hefur aldrei fund­ist.

Þrátt fyrir að rétt­ar­höldin í Tyrk­landi vegna máls­ins hafi í reynd aðeins verið tákn­ræn, þar sem Sádi-Arabía hafði neitað að fram­selja neinn þeirra grun­uðu í mál­inu, hafði í það minnsta staðið vonir til þess að þau myndu varpa betra ljósi á það sem raun­veru­lega gerð­ist í aðdrag­anda morðs­ins og í sendi­ráð­inu þennan örlaga­ríka dag, sem og hverjir raun­veru­lega hafi borið ábyrgð á því sem þar gerð­ist. Meðal ann­ars var von­ast til að upp­taka sem tyrk­neska leyni­þjón­ustan á af athæf­inu, sem og ráða­gerðum ráða­manna um yfir­hylm­ingu morðs­ins, yrði gerð opin­ber. Nú er hins vegar talið ólík­legt að svo geti orðið.

Aðal­dóm­ari í mál­inu, sem las upp ákvörðun dóms­ins um að flytja ætti málið til Sádi-Arabíu, var aðeins skip­aður nýlega og hefur hann aðeins setið þrjár áheyrnir tengdar mál­inu, að því er segir í umfjöllun New York Times, og er talið að skipun hans hafi verið póli­tísk þar sem Tyrkland vinni nú að því að bæta sam­band sitt við Sádi-Arabíu og að ákvörð­unin um að flytja rétt­ar­höldin séu liður í þeirri áætlun.

Ekkert réttlæti fyrirfinnist í Sádi-Arabíu

Stjórn­völd í Tyrk­landi hafa neitað því að um póli­tíska ákvörðun hafi verið að ræða og að gengið verði úr skugga um að rétt­ar­höld­unum verði haldið áfram í Sádi-Arabíu. Það þykir hins vegar afar ólík­legt, en Recep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­fors­seti, ásamt öðrum hátt­settum emb­ætt­is­mönnum þar í landi, hefur áður sagt að ekk­ert rétt­læti fyr­ir­finn­ist í Sádi-Arabíu. Þá hafa nokkrir þeirra sem gegna rétt­ar­stöðu grun­aðra í vegna máls­ins í Tyrk­landi þegar verið sýkn­aðir vegna þess í Sádi-Arabíu.

Sádi-Arabía hélt sín eigin rétt­ar­höld vegna máls­ins árið 2019 og dæmdi þar fimm til dauða og þrjá til við­bótar til fang­els­is­vistar vegna máls­ins. Dómur þeirra fimm sem hlotið höfðu dauða­dóm var hins vegar breytt í fang­els­is­vist ári síðar eftir að einn sona Khas­hoggi var sagður hafa fyr­ir­gefið bana­mönnum föður síns. Menn­irnir sem hlutu dóma í mál­inu hafa hins vegar aldrei verið nafn­greindir og voru rétt­ar­höldin yfir þeim, ásamt dómunum sem þar féllu, liður í her­ferð sádi-arab­ískra stjórn­valda í að reyna að hylma yfir aðkomu æðri stjórn­valda þar í landi og að stimpla morðið sem ein­hvers konar óheim­ila aðgerð (e. rogue operation) nokk­urra manna.

Lögmaður Hatice Chengiz, unnust­unnar sem Khas­hoggi hugð­ist kvæn­ast, og fór því þessa örlaga­ríku ferð í sendi­ráðið í Istanbúl 2. októ­ber 2018, hefur gefið út að ákvörðun tyrk­neskra dóm­stóla um að málið verði flutt til Sádi-Arabíu verði áfrýjað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

blaðamenn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár