Tveir fjarvinnudagar í viku gætu skilað 15 milljarða króna sparnaði á ári

Samkvæmt svoköll­uðu sam­göngumati sem unnið hefur verið af Bandalag háskóla­manna í sam­starfi við Mannvit gæti tveggja daga fjar­vinnu­heim­ild fyrir helm­ing starf­andi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu skilað 15 millj­arða sparn­aði fyrir heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Fjarvinna færðist mjög í aukana vegna faraldursins.
Fjar­vinna færð­ist mjög í auk­ana vegna far­ald­urs­ins. Mynd: Pexels

Árlegur sparn­aður heim­ila á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, ef helm­ingur starf­andi fólks gæti unnið að heiman tvo daga í viku, væri um 15 millj­arðar króna. Með þessu fyr­ir­komu­lagi spar­ast 83 millj­ónir ekinna kíló­metra og 3 millj­ónir klukku­stunda.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í svoköll­uðu sam­göngumati, sem Bandalag háskóla­manna (BHM) hefur unnið í sam­starfi við verk­fræði­stof­una Mannvit.

Sagt er frá þessu í til­kynn­ingu frá BHM í dag, en banda­lagið hefur boðað til streym­is­fundar kl. 11:30 þar sem þessar nið­ur­stöður verða kynntar í frek­ari smá­at­riðum, auk þess sem rætt er um kosti og galla við fjar­vinnu og breyt­ingar í sam­göngu­málum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í til­kynn­ingu BHM er haft eftir Friðriki Jónssyni for­manni BHM að fyr­ir­tæki og stofn­anir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ættu að leit­ast við að starfs­mönnum sínum heim­ild til að vinna fjar­vinnu tvo daga í viku, þar sem því verði við komið, enda sé það allra hagur.

„Við höfum áður talað um aukna fram­leiðni, minni yfir­bygg­ingu, auk­inn sveigj­an­leika og bætt lífs­gæði launa­fólks sem helstu sölu­punkt­ana en nú sjáum við líka svart á hvítu hvað fjar­vinnan þýðir fyrir þjóð­fé­lagið. Við hikum ekki við að full­yrða að fjar­vinnan er verð­mætasta sam­göngu­bótin í sögu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins,“ er haft eftir Friðrik í til­kynn­ingu BHM.

[adspot]

Arðsamari aðgerð en Borgarlína og Sundabraut

Í til­kynn­ingu BHM er settur fram sam­an­burður við hag­fræði­legar grein­ingar sem gerðar hafa verið á arð­semi Borg­ar­línu og Sunda­brautar, tveimur stór­verk­efnum í sam­göngu­málum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, á und­an­förnum árum.

Núvirtur þrjá­tíu ára ábati af þessu þrennu er bor­inn saman og þá fæst sú nið­ur­staða að tveggja daga fjar­vinnu­heim­ild muni skila 370 millj­arða ábata á næstu 30 árum, en það er fimm­falt meiri ábati en áætlað er að Borg­ar­lína muni skila og um 50 pró­sent meiri ábati en gert er ráð fyrir að bygg­ing Sunda­brautar hafi í för með sér fyrir sam­fé­lagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár