Forsendur lífskjarasamninga hafa staðist að mati ASÍ

For­sendur kjara­samn­ing­anna sem voru und­ir­rit­aðir í fyrra hafa stað­ist, þar sem vextir hafa lækkað, kaup­máttur hefur auk­ist og rík­is­stjórnin hefur lagt fram frum­varp um bann á 40 ára verð­tryggðum lánum.

Drífa Snædal, forseti ASÍ
Drífa Snædal, for­seti ASÍ Mynd: Bára Huld Beck

ASÍ telur for­sendur lífs­kjara­samn­ings­ins, sem var und­ir­rit­aður í fyrra, hafa stað­ist og telja ekki til­efni til að segja honum upp á þessum tíma­punkti. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá sam­band­inu.

í til­kynn­ing­unni er vitnað í Drífu Snædal, for­seta ASÍ, þar sem hún segir verka­lýðs­hreyf­ing­una munu sýna ábyrgð á erf­iðum tímum og hafa boðið frið og fyr­ir­sjá­an­leika á vinnu­mark­aði.

Þrjár for­sendur að baki lífs­kjara­samn­ings­ins voru til skoð­unar hjá ASÍ, en það var aukn­ing kaup­máttar, lækkun vaxta og fyr­ir­heit stjórn­valda um að vinda ofan af verð­trygg­ing­unni.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu ASÍ héldu allar ofan­greindar for­sendur, og vís­aði sam­bandið í 4,8 pró­senta kaup­mátt­ar­aukn­ingu og 3,5 pró­sentu­stiga vaxta­lækkun það sem af er samn­ings­tím­anum.

Alþýðu­sam­bandið sagði þó stjórn­völd ekki hafa stað­ist ákvæðið um bann á 40 ára verð­tryggðum lánum, en bætti þó við að frum­varp sem tekur á því máli verða lagt fram á kom­andi haust­þingi. ASÍ telur fram­lagn­ingu frum­varps­ins fela í sér efndir á yfir­lýs­ingum rík­is­stjórn­ar­innar frá því í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár