Forsendur lífskjarasamningsins brostnar að mati SA

Samtök atvinnu­lífs­ins telja for­sendur að baki lífs­kjara­samn­ingnum brostnar í ljósi gjör­breyttra efna­hags­að­stæðna.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA Mynd: Bára Huld Beck

Samtök atvinnu­lífs­ins telja for­sendur lífs­kjara­sam­ings­ins brostnar og vill að verka­lýðs­hreyf­ingin aðlagi hann að breyttri stöðu efna­hags­mála. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem finna má á vef SA.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni var spáð 10,2 pró­senta sam­felldum hag­vexti skömmu út samn­ings­tíma Lífs­kjara­samn­ings­ins skömmu fyrir gerð hans, en nú sé gert ráð fyrir 0,8 pró­senta vexti á sama tíma­bili. Samtökin telja að ekki séu nægir fjár­munir til staðar hjá fyr­ir­tækjum til að efna umsamdar launa­hækk­anir í þessu ástandi.

SA leggur til nokkrar leiðir fyrir verka­lýðs­hreyf­ing­una til að kom­ast til móts við fyr­ir­tækin svo að samn­ingnum verði ekki rift, en þær fela í sér frestun umsamdra launa­hækk­ana og leng­ingu samn­ings­tím­ans sem því nemur, tíma­bund­inni lækkun á fram­lagi atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóð, eða tíma­bund­inni frestun á end­ur­skoðun kjara­samn­ing­anna.

Samtökin segja að ASÍ hafi hafnað öllum ofan­greindum til­lögum á for­manna­fundi fyrr í vik­unni. Enn fremur seg­ist SA hafa heim­ild til að segja þessum kjara­samn­ingum upp um kom­andi mán­að­ar­mót, komi verka­lýðs­hreyf­ingin ekki til móts við atvinnu­lífið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

SA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár