Segir algjöran skort hafa verið á samtali

Halldór Benjamín Þor­bergs­son sagði í Silfrinu í morgun að verka­lýðs­hreyf­ingin hefði hafnað því að eiga í sam­tali um útfærslu­at­riði Lífs­kjara­samn­ings. Kosning fyr­ir­tækja innan SA um afstöðu til upp­sagnar kjara­samn­inga hefst á morgun.

Halldór Benjamín var gestur í Silfrinu í dag.
Halldór Benjamín var gestur í Silfrinu í dag. Mynd: Skjáskot/RÚV

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að skortur hafi verið á sam­tali milli SA og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um for­sendur Lífs­kjara­samn­ings og ýmis útfærslu­at­riði. Þetta kom fram í máli Halldórs í Silfrinu í morgun en þar ræddi hann fyrst og fremst um samn­ing­inn. SA hefur haldið því fram í vik­unni að for­sendur samn­ings­ins séu brostnar en verka­lýðs­hreyf­ingin segir for­sendur halda.

Í þætt­inum sagði Halldór að hann hefði lagt til ýmsar lausnir sem gætu tryggt að samn­ing­ur­inn standi, í því efna­hags­á­standi sem nú er uppi. Meðal hug­mynda hans og SA er að fresta launa­hækk­unum en efna kjara­samn­ing­inn að öðru leyti að fullu. Þá hafi SA lagt til að dregið yrði tíma­bundið úr mót­fram­lagi atvinnu­rek­enda inn í líf­eyr­is­sjóð. Þar að auki væri hægt að bíða og sjá hvernig efna­hags­horf­urnar væru eftir tvo mán­uði eða svo. Hann sagði ekk­ert sam­tal hafa átt sér stað um hug­mynd­irnar og þeim ein­fald­lega hafnað.

Útfærsluatriðin kalli á samtal

„Ég er til í að skoða allar útfærslur. Vanda­málið er að mót­að­il­inn segir: „Við ætlum ekki að ræða þetta við þig.“ Þetta eru atriði sem þurfa að þroskast í ein­hvers konar sam­tali. Þegar mót­að­il­inn okkar hafnar því að eiga sam­talið þá erum við í dálitlum vanda,“ sagði Halldór í þætt­inum.

Hann sagði að það hefði verið for­gangs­mál á síð­ast­liðnum 20 árum, bæði hjá SA og verka­lýðs­hreyf­ing­unni, að við­halda litlu atvinnu­leysi jafn­vel þó það þýddi að draga hafi þurft úr launa­hækk­unum. „Nú er búið að snúa þessu við og verka­lýðs­hreyf­ingin vill tryggja launa­hækk­anir þeirra sem hafa vinnu jafn­vel þó það séu 20 þús­und manns sem ekki hafa vinnu,“ sagði Halldór.

Atkvæðagreiðsla innan SA hefst á morgun

[links]Á morgun hefst atkvæða­greiðsla hjá fyr­ir­tækjum innan vébanda SA um afstöðu þeirra til upp­sagnar kjara­samn­inga. Í beinu fram­haldi mun fram­kvæmda­stjórn SA taka ákvörðun um hvert fram­haldið verður.

„Minn fyrsti kostur er alltaf sá að semja um nið­ur­stöðu og ég tel að við höfum gert allt sem í okkar valdi stendur til þess. En ég held að Bubbi Morthens orði þetta best; Baráttan, Fanney, hún er von­laus þegar miðin eru dauð,“ voru loka­orð Halldórs í þætt­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár