SGS: Einstök stéttarfélög geta að sjálfsögðu átt viðræður beint við atvinnurekendur

Efling og Verka­lýðs­fé­lag Akraness hafa ákveðið að kljúfa sig frá sam­floti með Starfs­greina­sam­band­inu í kjara­við­ræð­unum en í til­kynn­ingu frá sam­band­inu kemur fram að það þyki sjálf­sagt ef aðstæður séu þannig hjá félögum.

1. maí kröfuganga.
1. maí kröfu­ganga. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ef ein­stök stétt­ar­fé­lög meta það svo að það sé skyn­sam­legra vegna aðstæðna hjá þeim að hafa umboðið hjá sér og eiga við­ræður beint við atvinnu­rek­endur þá geta þau að sjálf­sögðu gert það hvenær sem er.

[links]Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Starfs­greina­sam­band­inu.

Eins og fram hefur komið í fréttum hafa Efling og Verka­lýðs­fé­lag Akraness ákveðið að kljúfa sig frá sam­floti með Starfs­greina­sam­band­inu í kjara­við­ræð­unum og mun kjara­deil­unni vera vísað til Rík­is­sátta­semj­ara á næstu dögum.

Í til­kynn­ing­unni segir að innan raða Starfs­greina­sam­bands Íslands séu 19 stétt­ar­fé­lög rúm­lega 57 þús­und félags­manna um land allt. Samn­inga­nefndir hvers félags um sig fari með samn­ings­um­boð fyrir hönd sinna félags­manna en hafi oft falið sam­eig­in­legri samn­inga­nefnd SGS að fara með umboðið.

Sam­bandið muni halda við­ræðum áfram af krafti, í góðri sam­vinnu við öll félög innan sam­bands­ins, í þeim til­gangi að ná fram rétt­mætum kröfum til að bæta hag sinna félags­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár