Verkalýðsfélag Akraness klýfur sig frá samfloti með Starfsgreinasambandinu

Félagið hefur aft­ur­kallað samn­ings­um­boð til Starfs­greina­sam­bands­ins og gerir Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður VLFA ráð fyrir því að kjara­deil­unni verði vísað til Rík­is­sátta­semj­ara í dag eða á morgun.

Vilhjálmur Birgisson
Vil­hjálmur Birg­is­son Mynd: Bára Huld Beck

Verka­lýðs­fé­lag Akraness hefur ákveðið að kljúfa sig frá sam­floti með Starfs­greina­sam­band­inu í kjara­við­ræð­unum eins og Efling gerði í gær. Þetta kemur fram í frétt RÚV en Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður VLFA stað­festi þetta í sam­tali við frétta­stofu RÚV í morgun.

Félagið hefur aft­ur­kallað samn­ings­um­boðið og gerir Vil­hjálmur ráð fyrir því að kjara­deil­unni verði vísað til Rík­is­sátta­semj­ara í dag eða á morgun.

Samn­inga­nefnd Efl­ingar sam­þykkti í gær að draga samn­ings­um­boð sitt til Starfs­greina­sam­bands­ins til baka. Til­laga þess efnis var sam­þykkt með yfir­gnæf­andi meiri­hluta á fundi nefnd­ar­inn­ar. Í kjöl­far þess hef­ur ­Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, umboð til að ákveða hvort að deil­unni verði vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Hún­ ­segir að Efl­ing hygg­ist vísa kjara­deil­unni til rík­is­sátta­semj­ara sem allra fyrst.

Samn­inga­nefnd Efl­ingar veitti Starfs­greina­sam­band­inu samn­ings­um­boðið þann 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. ­Fyrr í þess­ari viku felldi fundur aðild­ar­fé­laga Starfs­greina­sam­bands­ins til­lögu um að vísa kjara­samn­inga­við­ræðum strax til rík­is­sátta­semj­ara. Ell­efu félög greiddu atkvæði gegn því en sjö vildu sam­þykkja. Meðal þeirra sem vildu sam­þykkja var Efl­ing.

Í kjöl­far þess að for­manna­fundur Starfs­greina­sam­bands­ins hafn­aði því að vísa kjara­deil­unni strax til rík­is­sátta­semj­ara ákvað Efl­ing­ar­fólk að end­ur­skoða sam­flot­ið. Boðað var til fundar í Efl­ingu í gær og sam­kvæmt Sól­veigu Önnu var ákvörð­unin um að draga umboðið til baka nær ein­róma nið­ur­staða fund­ar­ins. „Þetta var því sem næst ein­róma nið­ur­staða fund­ar­ins og næstu skref eru að ég hef heim­ild frá samn­inga­nefnd­inni til að taka ákvörðun um hvenær við munum vísa við­ræð­unum til sátta­semj­ara,“ segir Sól­veig Anna í Frétta­blað­inu í dag.

Sól­veig Anna sagði að félag sitt hefði rót­tæk­ari sýn á kjara­bar­átt­una en þeir sem ráða för innan sam­flots Starfs­greina­sam­bands­ins í við­tali við RÚV í gær­kvöld­i. Hún sagði jafn­framt að Efl­ing hygði vísa kjara­deil­unni strax til rík­is­sátta­semj­ara svo að emb­ættið tæki strax að sér verk­stjórn samn­inga­við­ræðna við við­semj­endur Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár