Efling hyggst vísa deilunni til ríkissáttasemjara sem allra fyrst

Yfir­gnæf­andi meiri­hluti samn­inga­nefndar Eflingar sam­þykkti að draga umboð félags­ins til Starfs­greina­sam­bands­ins í kjara­við­ræð­unum til baka. Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar skoðar að vísa deil­unni til rík­is­sátta­semj­ara sem allra fyrst.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Hringbraut

Samn­inga­nefnd Eflingar sam­þykkti í gær að draga samn­ings­um­boð sitt til Starfs­greina­sam­bands­ins til baka. Tillaga þess efnis var sam­þykkt með yfir­gnæf­andi meiri­hluta á fundi nefnd­ar­innar. Í kjöl­far þess hefur Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, umboð til að ákveða hvort að deil­unni verði vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Hún segir að Efling hygg­ist vísa kjara­deil­unni til rík­is­sátta­semj­ara sem allra fyrst.

Aðildarfélög Starfsgreinasambandsins höfnuðu því að fara strax til ríkissáttasemjara

Samn­inga­nefnd Eflingar veitti Starfs­greina­sam­band­inu samn­ings­um­boðið þann 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Fyrr í þess­ari viku felldi fundur aðild­ar­fé­laga Starfs­greina­sam­bands­ins til­lögu um að vísa kjara­samn­inga­við­ræðum strax til rík­is­sátta­semj­ara. Ellefu félög greiddu atkvæði gegn því en sjö vildu sam­þykkja. Meðal þeirra sem vildu sam­þykkja var Efling.

Í kjöl­far þess að for­manna­fundur Starfs­greina­sam­bands­ins hafn­aði því að vísa kjara­deil­unni strax til rík­is­sátta­semj­ara ákvað Efl­ing­ar­fólk að end­ur­skoða sam­flotið. Boðað var til fundar í Eflingu í gær og sam­kvæmt Sólveigu Önnu var ákvörð­unin um að draga umboðið til baka nær ein­róma nið­ur­staða fund­ar­ins. „Þetta var því sem næst ein­róma nið­ur­staða fund­ar­ins og næstu skref eru að ég hef heim­ild frá samn­inga­nefnd­inni til að taka ákvörðun um hvenær við munum vísa við­ræð­unum til sátta­semj­ara,“ segir Sólveig Anna í Frétta­blaðinu í dag.

Sólveig Anna sagði að félag sitt hefði rót­tæk­ari sýn á kjara­bar­átt­una en þeir sem ráða för innan sam­flots Starfs­greina­sam­bands­ins í við­tali við RÚV í gær­kvöldi. Hún sagði jafn­framt að Efling hygði vísa kjara­deil­unni strax til rík­is­sátta­semj­ara svo að emb­ættið tæki strax að sér verk­stjórn samn­inga­við­ræðna við við­semj­endur Eflingar.[adspot]

Vonast til að félögin geti unnið saman þrátt fyrir niðurstöðuna

Björn Snæ­björns­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, seg­ist leiður yfir að svona hafi farið í sam­tali við Frétta­blaðið í dag en að hann von­ist til að félög lands­ins muni vinna saman þó að þau verði ekki saman í hóp. „Félög geta auð­vitað hvenær sem er dregið umboð sitt til baka ef þau eru ekki ánægð. Það er ákvörðun hvers og eins en auð­vitað finnst mér það miður,“ segir Björn.

„Það hefur auð­vitað alltaf áhrif ef menn vinna ekki í sam­ein­ingu. Þetta þýðir að félögin verða ekki saman í hóp en ég von­ast til þess að þau geti unnið saman þrátt fyrir það. Þau félög sem eftir verða innan Starfs­greina­sam­bands­ins munu auð­vitað fylkja liði og vinna að því að ná góðum kjara­samn­ingum,“ segir hann.

Sólveig Anna segir í sam­tali við Frétta­blaðið að hún trúi ekki öðru en að áfram verið gott sam­starf við Starfs­greina­sam­bandið. „Ég vil leggja áherslu á að þrátt fyrir að við séum búin að draga samn­ings­um­boðið til baka vona ég og trúi að það verði áfram gott sam­starf við félögin innan Starfs­greina­sam­bands­ins. Ég reikna ekki með öðru,“ segir hún.

Líklegt að Verkalýðsfélag Akraness og VR fylgi með

Sólveig Anna segir aðspurð ekki ólík­legt að Efling verði í sam­floti með VR og jafn­vel Verka­lýðs­fé­lagi Akraness í að vísa deil­unni áfram til rík­is­sátta­semj­ara. Með því gætu félögin kosið um verk­falls­að­gerðir.

Spurður um mögu­legt sam­flot með öðrum stétt­ar­fé­lögum í Morg­un­blað­inu í dag, segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR, að málið sé flókið. Hugsa þurfi allar ákvarð­anir og alla leiki vel fram í tím­ann. „Mín skoðun er sú að eftir því sem við erum fleiri og eftir því sem við erum sam­einaðri séum við sterk­ari og höfum meiri slag­kraft,“ segir hann.

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, sagði í kvöld­fréttum RÚV í gær­kvöldi að sitt félag myndi lík­lega fylgja með ef bæði VR og Efling ákvæðu að vísa mál­inu til rík­is­sátta­semj­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár