Félagsfólk í Sameyki, stéttarfélag í almannaþjónustu, samþykkti á aðalfundi sínum sem fram fór í gær að hækka félagsgjald sitt úr 1,0 í 1,1 prósent tímabundið til tveggja ára. Tilgangurinn er að styrkja Vinnudeilusjóð Sameykis fyrir komandi átök á vinnumarkaði. Í félaginu eru alls tólf þúsund félagsmenn.
Á aðalfundinum sagði Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, að í ljósi þess hvernig umræðan hefði verið í samfélaginu á vettvangi atvinnurekenda og samtaka þeirra beri Sameyki að búa sig undir átök með því að efla vinnudeilusjóð. Þrengt væri að lífsgæðum með ásókn í opinbera innviði þjóðarinnar ásamt aðgerðaleysi stjórnvalda í jöfnun launa á milli markaða. Sameyki yrði tilbúið undir þær deilur með sterkari Vinnudeilusjóði. Síðasta stóra allsherjarverkfallið á Íslandi var árið 2015.
[adspot]Þórarinn sagði orðræðu atvinnurekenda og hagsmunasamtaka þeirra hafa verið harkalega og einkennst af því að hugsanlega væri verið að hlaða í átök. „Í þessari stöðu teljum við vera skynsamlegt að búa okkur undir harðar vinnudeilur og sendum út þau skilaboð að við séum við öllu búin þegar kjarasamningsviðræður hefjast. Það hefur sýnt sig að sterkur vinnudeilusjóður hefur áhrif í vinnudeilum.“
Kjarasamningar á almennum markaði verða lausir síðar á þessu ári. Sameyki gerir kjarasamninga á almennum markaði við stóra vinnustaði á borð við Isavia, Orkuveitu Reykjavíkur og Fríhöfnina.
Þórarinn segir að það liggi ljóst fyrir, við þær aðstæður, að þörf sé fyrir öflugan Vinnudeilusjóð. „Hækkun félagsgjaldsins tel ég vera nauðsynlega aðgerð í að styrkja sjóðinn til að efla baráttuna vegna komandi kjarasamninga.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir