Segir ágætt svigrúm til launahækkana

Stefán Ólafsson segir miklar arð­greiðslur fyr­ir­tækja og launa­hækk­anir for­stjóra sýna að svig­rúm til bættra kjara starfs­manna þeirra sé ágætt.

Stefán Ólafsson, sérfræðingur hjá Eflingu stéttarfélagi.
Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu stétt­ar­fé­lagi. Mynd: Skjáskot/RÚV

Stað­hæf­ingar atvinnu­rek­enda um að ekk­ert svig­rúm sé til launa­hækk­ana er óvenju langt frá veru­leik­anum í kom­andi kjara­samn­ingum, líkt og miklar launa­hækk­anir for­stjóra fyr­ir­tækja hér­lendis og arð­greiðslur til hlut­hafa sýna. Þetta skrifar Stefán Ólafsson, pró­fessor emeritus í félags­fræði við Háskóla Íslands og sér­fræð­ingur hjá Eflingu, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Víða veisla í atvinnulífinu

Samkvæmt Stefáni eru þjóð­hags­spár bæði Seðla­bank­ans og Hagstofu bjartar og að gera mætti ráð fyrir upp­sveiflu þrátt fyrir að eitt­hvað gæti hægt á henni vegna stríðs­ins í Úkraínu. Hann segir að Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn árið 2019 hafi verið gerður við óhag­stæð­ari skil­yrði, þar sem þá hafi verið búist við minnk­andi hag­vexti.

Að und­an­tek­inni ferða­þjón­ust­unni, sem gæti þó lag­ast hratt þegar ferða­mönnum fer að fjölga á ráði, segir Stefán að staða flestra fyr­ir­tækja sé nú með miklum ágætum. Því til stuðn­ings bendir hann að búist sé við metári í arð­greiðslum í ár, auk þess sem stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna hafi hækkað mikið í launum. „Það er því víða veisla í atvinnu­líf­inu,“ bætir hann við.

Stefán segir með­al­laun for­stjóra í skráðum fyr­ir­tækjum hafa hækkað um 8,5 pró­sent á milli ára, sem sé vel umfram hækk­anir á almennum vinnu­mark­aði. Alls hækk­uðu mán­að­ar­laun þeirra um 444 þús­und krónur á mán­uði í fyrra, á meðan almenn hækkun launa­fólks hafi verið tæp 16 þús­und krónur á ári.

Þar að auki bætir Stefán við að stjórn­endur hafi verið að taka stærri hluta launa sinna sem bónusa og kaup­rétt­ar­samn­inga, en algengt sé að bónusar geti bætt allt að fjórð­ungi ofan á árs­l­unin og að kaup­réttir geti skilað tug­millj­örðum í hagn­aði.

Launahækkanir til lágtekjufólks og sem vörn gegn verðbólgu

Stefán ber einnig saman þróun ráð­stöf­un­ar­tekna eftir tekju­tí­undum á síð­ustu ára­tugum, en þar segir hann blasa við að hagur tekju­hæstu tíund­ar­innar hafi batnað mest, bæði í góð­ær­inu fyrir hrun og í efna­hags­upp­sveifl­unni eftir árið 2012. Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn hafi bætt hlut þeirra lægst laun­uðu, en ein­ungis að hluta, og því sé ástæða til að ganga enn lengra í kom­andi kjara­samn­ingum með krónu­tölu­hækk­unum.

Samkvæmt Stefáni er einnig mik­il­vægt að hækka þurfi laun í kom­andi kjara­samn­ingum til að vinna gegn hækk­andi verð­bólgu, sem sé að stærstum hluta vegna mis­heppn­aðrar hag­stjórnar á sviði hús­næð­is­mála.

Aðrar leiðir mögulegar

Ef hlífa á fyr­ir­tækjum við miklum launa­hækk­unum segir Stefán að stjórn­völd geti einnig bætt kjör lægri tekju­hópa á aðra vegu. Sem dæmi um slíkt nefnir hann auknar milli­færslur úr vel­ferð­ar­kerf­inu – þ.e.a.s. hærri barna­bætur, vaxta­bætur og húsa­leigu­bætur – en sam­kvæmt Stefáni hafa þessar bóta­greiðslur veikst veru­lega á síð­ustu árum og alls ekki haldið í við þarfir.

Stefán bendir á að barna­bætur á Íslandi séu langt fyrir neðan það sem almennt er í Norð­ur­löndum og á meg­in­landi Evrópu. Einnig hafi vaxta­bætur því sem næst horfið á síð­ustu átta árum, sem gerir eigna­myndun í íbuð­ar­hús­næði hæg­ari og eykur þannig mis­skipt­ingu í eignum. Þar að auki segir Stefán að draga þurfi úr „ofur­skerð­ingum“ líf­eyris í almanna­trygg­ingu með umtals­verðri hækkun frí­tekju­marks.

Hægt er að lesa grein Stefáns í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár