Drífa: Tillaga um lækkun mótframlags hefði kostað launafólk tíu milljarða á ársfjórðungi

Drífa Snædal segir að til­laga sem Vil­hjálmur Birg­is­son og Ragnar Þór Ing­ólfs­son töl­uðu fyrir innan ASÍ, um lækkun mót­fram­lags atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði í upp­hafi veiru­far­ald­urs­ins, hefði kostað launa­fólk tíu millj­arða á árs­fjórð­ungi.

Drífa Snædal er forseti Alþýðusambands Íslands.
Drífa Snædal er for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands segir að til­laga þeirra Vil­hjálms Birg­is­sonar for­manns Verka­lýðs­fé­lags Akraness og Ragnars Þórs Ing­ólfs­sonar for­manns VR, um að draga tíma­bundið úr mót­fram­lagi atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, hefði kostað launa­fólk tíu millj­arða króna á hverjum árs­fjórð­ungi og skilað sam­svar­andi upp­hæð til atvinnu­rek­enda.[links]

Þetta kemur fram í grein Drífu sem birt­ist á Vísi í morgun, en þar fjallar hún um átök í verka­lýðs­hreyf­ing­unni sem Ragnar Þór hefur einnig gert að umfjöll­un­ar­efni á sama vett­vangi á síð­ustu vikum.

Bæði Vil­hjálmur og Ragnar Þór sögðu sig úr mið­stjórn ASÍ í vetr­ar­lok 2020 vegna deilna um hvað skyldi gera til að bregð­ast við áhrifum veiru­far­ald­urs­ins, en báðir voru þeir til­búnir að fall­ast á að að mót­fram­lög atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði yrðu lækkuð úr 11,5 pró­sentum niður í 8 pró­sent, tíma­bundið.

„Sem for­seti ASÍ átti ég í sam­skiptum við atvinnu­rek­endur fyrir hönd ASÍ en Vil­hjálmur og Ragnar áttu greini­lega í hlið­ar­sam­tölum við full­trúa atvinnu­rek­enda þar sem rætt var um að skerða mót­fram­lagið. Sjón­ar­mið þeirra nutu ekki meiri­hluta stuðn­ings innan ASÍ heldur stóð vilji til að verja kjara­samn­inga í lengstu lög. Viðbrögð Vil­hjálms og Ragnars voru að storma á dyr, en eftir viku af yfir­lýs­ingum og gíf­ur­yrðum vildu þeir báðir draga afsögn sína til baka. Þá var búið að afgreiða afsögn Vil­hjálms í mið­stjórn, kom­inn var inn nýr full­trúi í hans stað. Afsögn Ragnars var hins vegar ekki búið að afgreiða þar sem skila­boð sem frá honum bár­ust voru tví­ræð og þegar hann loks stað­festi afsögn sína beið afgreiðslan næsta fundar. Ég rek þetta hér því bæði Ragnar og Vil­hjálmur hafa haldið því ítrekað fram að geð­þótti og ásælni í fjár­magn VR hafi ráðið því að mál þeirra voru afgreidd með ólíkum hætti,“ segir Drífa í grein sinni á Vísi.

Hún bætir því við að síðan hafi „auð­vitað komið í ljós að engin ástæða var til að minnka mót­fram­lag atvinnu­rek­enda til líf­eyr­is­sjóð­anna, nema þá til að þjónkast atvinnu­rek­endum, veikja líf­eyr­is­sjóð­ina og hægja á þeirri veg­ferð að launa­fólk á almennum mark­aði njóti sam­bæri­legra eft­ir­launa og þau sem starfa fyrir hið opin­bera.“

Telur að mótframlagið væri ekki enn komið í sama horf

Drífa segir að eftir miklu hafi verið að slægj­ast, „því til­laga Ragnars og Vil­hjálms hefði sparað atvinnu­rek­endum sam­an­lagt tíu millj­arða króna á hverjum árs­fjórð­ungi og tapið verið hið sama fyrir vinn­andi fólk.“

[adspot]

„Eitt er víst og það er að atvinnu­rek­endur myndu sann­ar­lega meta það svo að við værum enn langt frá því að geta end­ur­vakið mót­fram­lagið á nýju, enda er alltaf kreppa hjá atvinnu­rek­endum þegar umræð­una um kjör launa­fólks ber á góma,“ segir Drífa í grein sinni.

Hreyfingin stærri en persónurnar innan hennar

Drífa seg­ist rita grein sína, þar sem hún svarar Ragnari Þór, þar sem hún geti „ekki setið lengur þegj­andi hjá þegar for­maður stærsta verka­lýðs­fé­lags lands­ins og stærsta aðild­ar­fé­lags ASÍ fer ítrekað fram opin­ber­lega og málar Alþýðu­sam­bandið upp með þeim nei­kvæða hætti sem hann hefur gert í tveimur greinum og fleiri við­tölum.“

Hún segir að sagan hafi sýnt að verka­lýðs­hreyf­ingin sé sterk­ust þegar hún standi saman og að hún telji mis­ráðið að „taka þetta ár – ár þar sem kjara­samn­ingar eru lausir og teknar verða veiga­miklar ákvarð­anir í kjöl­far Covid-krepp­unnar – í harð­vítug inn­an­búð­ar­á­tök.“

„En standi vilji til þess mun ég tala fyrir ASÍ sem sterkum og öfl­ugum heild­ar­sam­tökum. Ég mun tala fyrir sam­stöðu og í þágu þeirra hags­muna sem við sann­an­lega eigum sam­eig­in­lega. Ég mun líka minna ítrekað á að verka­lýðs­hreyf­ingin þarf að lifa allar þær per­sónur og leik­endur sem nú eru á svið­inu; hreyf­ingin er miklu stærri en hvert og eitt okkar,“ skrifar Drífa, sem seg­ist vita að þessi afstaða eigi sterkan hljóm­grunn innan aðild­ar­fé­laga ASÍ og sam­fé­lags­ins í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár