Alls voru 2,8 prósent vinnufærra landsmanna án atvinnu í lok september, eða 5.409 manns. Það er minnsta atvinnuleysi sem hefur mælst hér á landi frá því í desember 2018, eða í næstum fjögur ár.
[links]Á meðan að á kórónuveirufaraldrinum stóð mældist atvinnuleysið mest í janúar 2021, 11,6 prósent, og heildaratvinnuleysi að meðtöldum þeim sem enn voru á hlutabótum í þeim mánuði var 12,8 prósent. Það þýddi að alls 26.403 voru annað hvort atvinnulausir að öllu leyti eða í minnkuðu starfshlutfalli á þeim tíma, eða um 21 þúsund fleiri en um síðustu mánaðamót.
Í upphafi þessa árs var það komið niður í 5,2 prósent og hefur næstum helmingar síðan þá.
Þetta kemur fram í nýjustu mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. HúnAtvinnuleysi ekki minna síðan í desember 2018 en langtímaatvinnulausir mun fleiri spáir því að atvinnuleysið muni ekki breytast mikið í október. Nú er enda staðan sú hérlendis að skortur er á starfsfólki og þau störf sem verða til í hagkerfinu eru að stórum hluta fyllt af erlendu starfsfólki, sem er nú um 20 prósent af öllu vinnuafli hérlendis.
Í nýlegri könnun sem gerð var á meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins sagði 54 prósent þeirra að skortur væri á vinnuafli. Hlutfall fyrirtækja sem segja að það sé skortur á starfsfólki hefur einungis einu sinni mælst hærra, árið 2007 þegar bankagóðærið var í hámarki.
Langtímaatvinnuleysið meira en það var
Í síðustu mánaðaskýrslu Vinnumálastofnunar kemur fram að 2.279 manns verið atvinnulausir í meira en tólf mánuði í lok september. Það eru mun fleiri en glímdu við slíkt atvinnuleysi fyrir faraldurinn. Í febrúar 2020, þegar atvinnuleysi var hlutfallslega meira en það er núna, höfðu 1.893 verið án atvinnu í ár eða lengur. Í desember 2018, þegar atvinnuleysi var síðast svona lítið, voru einungis 977 skilgreindir sem langtímaatvinnulausir, eða 43 prósent þeirra sem eru það í dag. Vert er að hafa í huga að starfandi einstaklingum hefur fjölgað á síðustu fjórum árum samhliða fjölgun starfa.
[adspot]Fjöldi langtímaatvinnulausra er því 20 prósent meiri nú en hann var þá, í minna atvinnuleysi. Í febrúar 2020, þegar atvinnulífið var enn að glíma við afleiðingar af gjaldþroti WOW air og loðnubrest, voru 21 prósent allra atvinnulausra flokkaðir langtímaatvinnulausir en nú er það hlutfall 42 prósent og hefur farið vaxandi á undanförnum mánuðum.
Erlendir 43 prósent atvinnulausra
Atvinnuleysi hjá erlendum ríkisborgurum hefur farið lækkandi á síðustu mánuðum og mælist nú 5,8 prósent. Til samanburðar var það 7,3 prósent í lok júlí. Alls voru 2.505 erlendir atvinnuleitendur án atvinnu í lok september, sem er 337 færri en tveimur mánuðum fyrr.
Hlutfallslega eru erlendir ríkisborgarar þó stærri hluti af atvinnulausum en þeir voru í sumar. Í júlí voru þeir 43 prósent allra í atvinnuleit en í dag eru þeir rúmlega 46 prósent.
Alls bjuggu 61.047 erlendir ríkisborgarar á Íslandi í byrjun september. Þeir eru 15,9 prósent allra íbúa. Því liggur fyrir að atvinnuleysi er mun meira á meðal þeirra en íslenskra ríkisborgara.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir