Í könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) í sumar, og fjallaði um húsnæðisstöðu öryrkja, kom í ljós að ellefu prósent svarenda greiddu yfir 75 prósent ráðstöfunartekna sinna í rekstur húsnæðis. Inni í þeirri tölu eru afborganir lána, leigukostnaður hiti og rafmagn.
Þetta kemur fram í umsögn ÖBÍ um frumvarp þingmanna Flokks fólksins um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu og húsaleigulögum. Þar segir enn fremur að niðurstöður könnunarinnar verði birtar opinberlega á næstu vikum.
Í umsögninni segir að ætla megi að tekjulágt fólk velji frekar að taka verðtryggð húsnæðislán vegna lægri afborgana í því vaxtaumhverfi sem ríkt hafi á húsnæðismarkaði, sérstaklega síðastliðið ár. „Verðbólgan er mjög há nú um stundir og alls óvíst hvort hún komi til með að lækka, hækka eða standa í stað næstu misseri. Greiðslubyrði lántaka hefur þyngst verulega og þá sérstaklega hjá þeim hóp sem tók óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum á þeim tíma sem stjórnvöld töluðu á þann hátt að nú væri lávaxtarskeið hafið. Þær forsendur sem þessir lántakar settu sér eru algjörlega brostnar og eru mörg heimili með alltof háa greiðslubyrði.“
[adspot]ÖBÍ telur hættu á að þessi hópur muni þurfa selja eignirnar sínar á næstu misserum og fara þá jafnvel á leigumarkaðinn. „Samkvæmt leigukönnun sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) lét framkvæma árið 2021 jókst hlutfall leigu af ráðstöfunartekjum milli áranna 2020 til 2021. Meðalhlutfall leigukostnaðar af ráðstöfunartekjum er 44 prósent sem gefur til kynna mjög mikla greiðslubyrði vegna leigukostnaðar. Í könnuninni kemur einnig fram að tæp 30 prósent öryrkja greiða meira en 50 prósent af ráðstöfunartekjum sínum í leigu. Þar sem flest allir leigusamningar eru tengdir vísitölu má gera ráð fyrir að þessi greiðslubyrði hafi hækkað þrátt fyrir aukinn húsnæðisstuðning stjórnvalda í sumar.“
Gríðarlegar hækkanir á afborgunum óverðtryggðra lána
Verðbólga mælist sem stendur 9,3 prósent. Í slíku ástandi hækkar höfuðstóll verðtryggðra lána mikið enda leggjast verðbætur á hann. Á móti haldast afborganir skaplegri, enda þeim í raun ýtt inn í framtíðinni.
Til að sporna við þessari stöðu hefur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkað stýrivexti úr 0,75 í 5,75 prósent frá því í maí í fyrra. Vextir hafa verið hækkaðir á við síðustu níu vaxtaákvarðanir nefndarinnar, en þeir voru 0,75 prósent í maí í fyrra.
[links]Hækkun stýrivaxta skilar sér í hækkun á afborgunum óverðtryggðra lána sem eru með breytilega vexti. Í nýjasta Fjármálastöðugleikariti Seðlabanka Íslands kom fram að um 28 prósent útistandandi fasteignalána eru óverðtryggð og með breytilegum vöxtum. Samanlögð upphæð þeirra eru á sjöunda hundrað milljarða króna. Vaxtabyrði slíkra lána hefur þegar hækkað verulega.
Í ritinu var nefnt að vegnir meðalvextir nýrra íbúðalána sem veitt voru af bönkunum í júlí 2021 voru 3,7 prósent en ári síðar voru þeir komnir upp í 6,6 prósent. Fyrir 40 milljóna króna óverðtryggt jafngreiðslulán til 40 ára á breytilegum vöxtum felur slík vaxtahækkun í sér rúmlega 77 þúsund króna hækkun á mánaðarlegri greiðslubyrði eða sem samsvarar tæpum 48 prósent af upphaflegri greiðslubyrði lánsins.“
Óverðtryggðir vextir stóru bankanna þriggja, sem halda á 72 prósent af útistandandi íbúðarlánum, hafa ekki verið jafn háir og þeir eru nú síðan 2015.
Þá styttist í endurskoðun á vaxtakjörum fjölda óverðtryggðra lána sem veitt voru á föstum vöxtum til tiltekins tíma, en alls verða vextir á lánum upp á 340 milljarða króna endurskoðaðir á árunum 2023 og 2024 og vextir á lánum upp á 250 milljarða króna koma til endurskoðunar árið 2025. Þorri þeirra lána eru óverðtryggð.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir