Stýrivextir hækka í níunda skiptið í röð – Nú upp í 5,75 prósent

Stýri­vextir hafa verið hækk­aðir upp í 5,75 pró­sent. Greiðslu­byrði margra heim­ila mun fyrir vikið þyngj­ast. Ákvarð­anir í atvinnu­lífi, á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum munu skipta miklu um þróun vaxta á næstu miss­erum, að sögn pen­inga­stefnu­nefndar.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri er for­maður pen­inga­stefnu­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig, og upp í 5,75 pró­sent. Þar með hafa stýri­vextir, sem ákvarða fjár­magns­kostnað heim­ila og fyr­ir­tækja, verið hækk­aðir við síð­ustu níu vaxta­á­kvarð­anir nefnd­ar­innar, en þeir voru 0,75 pró­sent í maí í fyrra.

Hækkun stýri­vaxta skilar sér í hækkun á afborg­unum óverð­tryggðra lána sem eru með breyti­lega vexti. Í nýjasta Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands kemur fram að ​​um 28 pró­sent útistand­andi fast­eigna­lána eru óverð­tryggð og með breyti­legum vöxtum. Sam­an­lögð upp­hæð þeirra eru á sjö­unda hund­rað millj­arða króna. Vaxta­byrði slíkra lána hefur þegar hækkað veru­lega.

Í rit­inu er nefnt að vegnir með­al­vextir nýrra íbúða­lána sem veitt voru af bönk­unum í júlí 2021 voru 3,7 pró­sent en ári síðar voru þeir komnir upp í 6,6 pró­sent. Fyrir 40 millj­óna króna óverð­tryggt jafn­greiðslu­lán til 40 ára á breyti­legum vöxtum felur slík vaxta­hækkun í sér rúm­lega 77 þús­und króna hækkun á mán­að­ar­legri greiðslu­byrði eða sem sam­svarar tæpum 48 pró­sent af upp­haf­legri greiðslu­byrði láns­ins.“

Óverð­tryggðir vextir stóru bank­anna þriggja, sem halda á 72 pró­sent af útistand­andi íbúð­ar­lánum, hafa ekki verið jafn háir og þeir eru nú síðan 2015.

[adspot]Þá stytt­ist í end­ur­skoðun á vaxta­kjörum fjölda óverð­tryggðra lána sem veitt voru á föstum vöxtum til til­tek­ins tíma, en alls verða vextir á lánum upp á 340 millj­arða króna end­ur­skoð­aðir á árunum 2023 og 2024 og vextir á lánum upp á 250 millj­arða króna koma til end­ur­skoð­unar árið 2025. Þorri þeirra lána eru óverð­tryggð.

Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum skipta máli

Í yfir­lýs­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar segir að vís­bend­ingar séu um að vaxta­hækk­anir und­an­farin miss­eri hafi hægt á vexti almennrar eft­ir­spurnar og umsvifum á hús­næð­is­mark­aði. Verð­bólga mæld­ist 9,3 pró­sent í sept­em­ber og hefur hjaðnað um 0,6 pró­sentu­stig frá ágúst­fundi pen­inga­stefnu­nefndar. „Und­ir­liggj­andi verð­bólga jókst hins vegar milli funda. Þá eru vís­bend­ingar um að verð­bólgu­vænt­ingar séu farnar að lækka á ný þótt þær séu enn yfir verð­bólgu­mark­miði bank­ans.“

Samkvæmt bráða­birgða­tölum þjóð­hags­reikn­inga var 6,8 pró­sent hag­vöxtur á fyrri hluta þessa árs. „Eft­ir­spurn á þriðja fjórð­ungi árs­ins virð­ist hafa verið kröftug en útlit er fyrir að heldur hægi á umsvifum eftir því sem líður á vet­ur­inn. Nýlegar vís­bend­ingar af vinnu­mark­aði benda jafn­framt til þess að spenna í þjóð­ar­bú­skapnum hafi náð hámarki. Þá hafa alþjóð­legar efna­hags­horfur versnað og óvissa auk­ist sem kann að leiða til þess að hraðar dragi úr inn­lendri eft­ir­spurn en áður var gert ráð fyrir.“

Pen­inga­stefnu­nefnd segir að hún muni áfram tryggja að taum­hald pen­inga­stefn­unnar sé nægj­an­legt til að verð­bólga hjaðni í mark­mið innan ásætt­an­legs tíma. „Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga. Ákvarð­anir í atvinnu­lífi, á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum munu skipta miklu um þróun vaxta á næstu miss­erum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár