Vilhjálmur Birgisson segir af sér sem varaforseti ASÍ

Formaður Verka­lýðs­fé­lags Akraness hefur sagt af sér emb­ætti vara­for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands.

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, hefur sagt af sér emb­ætti sem 1. vara­for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ). Þetta stað­festir Drífa Snædal, for­seti ASÍ, í sam­tali við Kjarnann.

Mið­stjórn ASÍ fundar núna en hvorki Vil­hjálmur né Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, verða við­staddir á þeim fundi.

[links]Vil­hjálmur birti stöðu­upp­færslu á Facebook í gær þar sem hann sagði þá stöðu sem væri að teikn­ast upp á íslenskum vinnu­mark­aði vera væg­ast sagt hroll­vekj­andi enda væri alltof stór­hluti tann­hjóla atvinnu­lífs­ins við það að stöðvast. „Þessi staða á vinnu­mark­aðnum er orðin nú þegar mun verri en hún varð í hrun­inu og það er ljóst að við verðum að finna leiðir til að verja störfin, verja kaup­mátt­inn og verja heim­ilin. Við verðum að finna leiðir til að verja lífs­við­ur­væri og síð­ast en ekki síst atvinnu­ör­yggi launa­fólks eins og kostur er á meðan þessi far­aldur gengur yfir.“

Vil­hjálmur sagði að það lægi fyrir að fjöl­margir atvinnu­rek­endur hefðu óskað eftir við stétt­ar­fé­lögin að við þessar for­dæma­lausu aðstæður sem væru við lýði með beiðni um að fresta þeim launa­hækk­unum sem eiga að koma til fram­kvæmda í dag, 1. apríl. „Ég hef alltaf sagt að það komi ekki til greina, enda þarf launa­fólk á þessum launa­hækk­unum á að halda. Hins vegar er ég til­bú­inn að fara aðra leið vegna þess skelf­ingar ástands sem ríkir á vinnu­mark­aðnum vegna far­ald­urs­ins. Sú leið bygg­ist á því að í stað þess að fresta launa­hækk­un­inni þá verði mót­fram­lag atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóð lækkað úr 11,5% í 8% tíma­bundið meðan far­ald­ur­inn gengur yfir. En mark­miðið með þess­ari leið væri að verja atvinnu­ör­yggi launa­fólks og tryggja um leið að launa­hækk­anir skili sér til launa­fólks.“

[adspot]Sam­tök atvinnu­lífs­ins (SA) og ASÍ hafa átt í óform­legum við­ræðum um nokk­urt skeið um mála­leitan sam­tak­anna um að leita leiða til að draga tíma­bundið úr launa­kostn­aði fyr­ir­tæki. Á mánu­dag sendi SA form­legt erindi þess efnis til samn­inga­nefndar ASÍ, sem var í dag hafnað með því afdrátt­ar­lausa svari að verka­lýðs­hreyf­ingin ljái ekki máls á tíma­bund­inni lækkun launa­kostn­að­ar.

Í form­lega erind­inu sem sent var á mánu­dag segir meðal ann­ars að heims­far­ald­ur­inn COVID-19 hafi lamað íslenskt sam­fé­lag og atvinnu­líf. „Stór hluti atvinnu­starf­semi um heim allan hefur stöðvast. Tekju­grund­völlur fjöl­margra íslenskra fyr­ir­tækja hefur algjör­lega brost­ið. Stjórn­völd grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir fjölda­gjald­þrot fyr­ir­tækja og for­dæma­lausa fjölgun atvinnu­lausra.“

Í bréf­inu, sem Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son fram­kvæmda­stjóri SA og Eyjólfur Árni Rafns­son for­maður SA skrifa und­ir, var óskað eftir því að mót­fram­lag atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði starfs­manna yrði tíma­bundið lækkað úr 11,5 í átta pró­sent, eða um 3,5 pró­sentu­stig. Það er sama leið og Vil­hjálmur lýsti sig fylgj­andi að fara. Lækk­unin átti að gilda í sex mán­uði en sam­komu­lagið myndi fram­lengj­ast í þrjá mán­uði ósjálf­krafa ef því yrði ekki sagt upp.

Í kjöl­far þess að ASÍ hafn­aði leið­inni sagði Vil­hjálmur af sér emb­ætti 1. vara­for­seta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár