ASÍ hafnar beiðni Samtaka atvinnulífsins um að lækka launakostnað fyrirtækja tímabundið

Samtök atvinnu­lífs­ins vildu að mót­fram­lag atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði starfs­manna yrði lækkað um 3,5 pró­sentu­stig vegna yfir­stand­andi efna­hags­vanda og báru fyrir sig að launa­kostn­aður muni hækka um fjóra millj­arða á mán­uði með launa­hækk­unum í dag.

Halldór Benjamín Þorbergsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son er fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Samtök atvinnulífsins (SA) og Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hafa átt í óformlegum viðræðum um nokkurt skeið um málaleitan samtakanna um að leita leiða til að draga tímabundið úr launakostnaði fyrirtæki. Þá sendi SA formlegt erindi þess efnis til samninganefndar ASÍ á mánudag, 30. mars, sem nú hefur verið hafnað með því afdráttarlausa svari að verkalýðshreyfingin ljái ekki máls á tímabundinni lækkun launakostnaðar.

Þetta kemur fram á vef SA.

Í formlega erindinu sem sent var á mánudag segir meðal annars að heimsfaraldurinn COVID-19 hafi lamað íslenskt samfélag og atvinnulíf. „Stór hluti atvinnustarfsemi um heim allan hefur stöðvast. Tekjugrundvöllur fjölmargra íslenskra fyrirtækja hefur algjörlega brostið. Stjórnvöld grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot fyrirtækja og fordæmalausa fjölgun atvinnulausra.“

[adspot]Í bréfinu, sem Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA og Eyjólfur Árni Rafnsson formaður SA skrifa undir, var óskað eftir því að mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóði starfsmanna yrði tímabundið lækkað úr 11,5 í átta prósent, eða um 3,5 prósentustig. Lækkunin átti að gilda í sex mánuði en samkomulagið myndi framlengjast í þrjá mánuði ósjálfkrafa ef því yrði ekki sagt upp.

Segja launakostnaðinn aukast um 50 milljarða á ári

Á vef SA er bent á að við lok dags í gær hefðu 25 þús­und umsóknir um hluta­at­vinnu­leys­is­bætur borist Vinnu­mála­stofnun. Ríflega helm­ingur þeirra miðar við að Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóður greiði 75 pró­sent af launum starfs­manna en að þeir haldi 25 pró­sent starfs­hlut­falli hjá atvinnu­rek­anda.

Samkvæmt gerðum kjara­samn­ingum, tengdum Lífs­kjara­samn­ingnum, eiga laun á almennum vinnu­mark­aði að hækka að lág­marki um 24 þús­und krónur í dag hjá þeim lægst laun­uð­ustu og um 18 þús­und krónur hjá hærri launum, í dag þann 1. apríl.

SA segir að sú launa­hækkun auki launa­kostnað alls atvinnu­lífs­ins um 50 millj­arða króna á árs­grund­velli, eða fjóra millj­arða á mán­uði.

Ákvörðun ASÍ um að hafna því að milda eða fresta hækk­un­ar­á­hrifum Lífs­kjara­samn­ings­ins veldur SA von­brigðum. „Launa­hækk­unin 1. apríl stuðlar að fleiri upp­sögnum starfs­fólks en ann­ars hefði orðið. Tíma­bundin lækkun mót­fram­lags í líf­eyr­is­sjóði hefði mildað veru­lega höggið sem fyr­ir­tækin verða fyrir vegna launa­hækk­un­ar­innar ofan á gjör­breytta efna­hags­stöðu. Tíma­bundin lækkun líf­eyr­is­sjóðs­fram­lags atvinnu­rek­enda hefði mildað höggið

Í fram­haldi óform­legra þreif­inga síð­ustu vikna sendu SA form­legt erindi til samn­inga­nefndar ASÍ þann 30. mars. Svar verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar er að ljá ekki máls á tíma­bund­inni lækkun launa­kostn­aðar. Af sam­tölum mátti ráða að ekki næð­ist breið sátt um að fresta að hluta eða öllu leyti umsömdum launa­hækk­unum en SA bundu þó vonir við að sátt gæti náðst um tíma­bundna lækkun fram­lags atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóð úr 11,5 pró­sent í 8 pró­sent. Í svari samn­inga­nefndar ASÍ er þeirri leið einnig hafnað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár